Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Hjólað í Höllu

Eins og búast mátti við situr Halla Hrund Loga­dóttir ekki á frið­ar­stóli sem þing­maður, eftir að í ljós kom að hún tók aðra afstöðu en stjórn­ar­and­staðan í mörgum þing­málum.

Þannig ákvað Halla Hrund að taka ekki þátt í mál­þófi gegn veiði­gjalds­frum­varp­inu í sumar og sagð­ist „styðja mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar“. Heim­ildin greindi síðan frá því að Halla Hrund hefði verið óvenju­lega jákvæð, sagt „já“ í 69,5% atkvæða­greiðslna, nei í 5,2% þeirra og setið hjá í 16,1% þeirra. Flest mál­anna sem hún studdi eru stjórn­ar­frum­vörp en í mörgum þess­ara mála sátu stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hjá eða greiddu atkvæði gegn þeim.

Nafnlaus dálkur Við­skipta­blaðs­ins, Týr, er oft hita­mælir á hlý­hug hægr­is­ins gagn­vart stjórn­mála­mönnum. Þar er spjót­unum nú beint að Höllu Hrund. Týr vitnar í sögu­sagnir um að Halla hafi viljað í Sam­fylk­ing­una, en Kristrún Frosta­dóttir sett fót­inn niður. Þá segir höf­undur Týs að Halla sé „best geymd í Sam­fylk­ing­unni“ og að póli­tískt erindi hennar „liggi í sam­blöndu af stuðn­ingi við skatta­stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar og stefnu Land­verndar í orku­málum“. Þá sé „vand­fund­inn eitr­aðri kok­teill“ en þessi nátt­úru­vernd og auð­lind­arenta. „Þrátt fyrir að hafa varið nokkrum sumrum í sveit á barns­aldri er skiln­ingur hennar á mál­efnum lands­byggð­ar­innar ekki meiri en þetta,“ úrskurðar Við­skipta­blaðið og telur að Halla Hrund fæli frá kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks á lands­byggð­inni.

Vanda­málið við kenn­ingu Við­skipta­blaðs­ins er bara að í öllum lands­hlutum eru mun fleiri óánægð en ánægð með störf stjórn­ar­and­stöð­unnar, sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu. Ánægjan með stjórn­ar­and­stöð­una nær ekki 18% í neinum lands­hluta, og óánægjan fer varla niður fyrir 50%. Kjós­endur í öllum lands­hlutum, fyrir utan Vest­firði og Vest­ur­land, eru í meiri­hluta ánægð með störf rík­is­stjórn­ar­innar. Og að nán­ast jafn­margir stuðn­ings­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins eru óánægðir með stjórn­ar­and­stöð­una eins og ánægðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Slúður