Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Ástin bjargaði Guðmundi Inga frá glötun

„Í raun og veru fékk ég ekki að bjóða honum út nema að vera edrú.“

Guðmundur Ingi Þóroddsson
Guð­mundur Ingi Þór­odds­son Ástin, sigrar að eilífu, sagði skáldið Mynd: Golli

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga, leiðir lista Flokkur fólksins í Reykjavík. Í viðtali við Mannlíf fer hann yfir helstu áherslur sínar í borgar­málum, meðal annars húsnæðismál, stöðu eldri borgara og stuðning við fólk sem stendur höllum fæti í samfélaginu, þar á meðal fyrr­verandi fanga.

Guðmundur Ingi segir einnig frá afstöðu flokksins til Borgar­línunnar og telur þörf á að endurmeta samgöngu­sáttmála ríkis og sveitar­félaga. Þá ræðir hann opinskátt um eigin fortíð og reynslu af fangelsis­vist og segir þá reynslu hafa mótað sig og orðið honum styrkur í dag. Markmið sitt sé meðal annars að styðja aðra og leggja sitt af mörkum til samfélagsins.

Í einum kafla viðtalsins segir Guðmundur Ingi frá því hvernig ástin bjargaði honum frá glötun. Þann kafla má lesa hér fyrir neðan.

Ástin bjargaði mér

Guðmundur Ingi var frelsinu feginn eftir að hafa setið inni á Litla-Hrauni. Hann fór ekki í meðferð því ástin bjargaði honum. Hann kynntist eigin­manni sínum áður en hann var settur inn í seinna skiptið og hætti þá í neyslu hans vegna. Hann hefur verið edrú síðan. Ástin í lífi Guðmundar Inga er frá Rúmeníu, en þeir kynntust og bjuggu fyrst saman á Spáni.

„Í raun og veru fékk ég ekki að bjóða honum út nema að vera edrú. Það var það sem hjálpaði mér. Það er alveg ljóst að það var ástin sem bjargaði mér í raun og veru og breytti minni stefnu,“ segir hann.

Ástin hafi verið kletturinn í bata hans.

„Ég væri ekki að gera það sem ég er að gera í dag, alveg sama hvað það er, ef ekki væri fyrir Tito eins og hann er kallaður. Það er alveg ljóst. Ég og samfélagið eigum honum það að þakka.“

Þeir hafa verið saman í átján ár og giftir í þrettán ár.

„Það sem dreif mig líka áfram var að ég sá hvað ég var að gera ástvini mínum með neyslunni. Það getur tekið menn tíma að átta sig á aðstæðum sínum en ég rankaði við mér fyrir alvöru í seinna skiptið sem ég sat inni,“ segir Guðmundur Ingi.

Hann fann að hann vildi sanna sig, byggja upp traust aftur og ná einhverjum árangri. Kannski hafi hann reynt of mikið með enda­lausri vinnu, en vinnan gefi honum einnig mikið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.
Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Húsið var reist árið 1916

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Vigtuð vikulega og sett á matarplan aðeins tíu ára gömul