Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Össur og Sighvatur dásömuðu barnaníðing í Morgunblaðinu: „Mér þótti vænt um hann“

„Algjör­lega og þetta var fáránlegt. Þegar Gísli var borinn til grafar, ég hef aldrei lesið aðrar eins minninga­greinar. Það voru sitjandi Alþingis­menn að skrifa minningar­greinar í blöðin þar sem maðurinn er dásamaður og honum lyft upp til skýjanna. Þetta er svo öfugsnúið og galið. En það gerist alltaf þegar stemmning nær suðu­punkti í einhverja svona eina átt þá tapar fólk sér, allt samhengi glatast og öll örlítil krítík þornar og gufar upp.“

Þessi orð eru höfð eftir Andra Ólafssyni, fyrr­verandi blaða­manni, í frétt sem birtist á Vísi fyrr í dag sem unnin var upp úr viðtali við hann í þættinum Eftirmál, sem Nadine Guðrún Yaghi og Þórhildur Þorkels­dóttir stýra. Andri er maðurinn sem skrifaði nú fræga frétt í DV um barnaníð kennara á Ísafirði, Gísla Aðalsteins Hjartarssonar. Fyrir­sögnin á forsíðu DV er nú löngu orðin fræg: „Einhentur kennari sagður nauðga piltum“.

Gísli svipti sig lífi þegar málið komst upp og vildu margir kenna DV um það. Svo margir raunar að má tala um sefsýki samfélagsins en líkt og Andri bendir á hér fyrir ofan þá var Gísli dásamaður af stjórn­málamönnum í minningar­greinum í Morgun­blaðinu. Gísli viðurkenndi sök í bréfi sem hann skyldi eftir sig og því óumdeilt að hann var sekur um barnaníð. Ekki er vitað hve marga drengi Gísli misnotaði en þeir voru í það minnsta þrír.

Það voru Össur Skarp­héðinsson og Sighvatur Björgvinsson sem ákváðu að stinga niður penna og dásama Gísla í minningar­greinum sem birtust í Morgun­blaðinu. Þær eru aðgengilegar í heild sinni á tímarit.is og má sjá þær hér. Báðir voru í Alþýðu­flokknum sem síðar varð Samfylkingin.

„Nú er Gísli genginn – fyrr en nokkurn varði. Ævi sérhverrar manneskju hefur sínar björtu hliðar og sínar miður björtu. Enginn er þar undan­tekning. Þannig er lífið. Minn dómur um Gísla Hjartarson er um þann Gísla, sem ég þekkti og hafði þekkt bæði vel og lengi. Mér þótti vænt um hann. Þannig minnist ég hans. Gísli Hjartarson var vinur minn.“ Svo lýkur Sighvatur nokkuð langri minningar­grein sinni og er hann titlaður fyrr­verandi þingmaður og formaður Alþýðu­flokksins.

Ljóst er að stjórnmál hafa átt sinn þátt í málinu enda segir Sighvatur að Gísli hafi hjálpað mörgum í kosninga­baráttu sinni á Vestfjörðum. „Gísli var ekki bara áhuga­maður heldur líka ákafa­maður í pólitík og þeir sem áttu stuðning hans áttu hann allan og óskiptan. Þá sögu geta fleiri sagt en ég – þar á meðal eru einstaklingar eins og fyrr­verandi formaður Samfylkingar, Össur Skarp­héðinsson, og forseti lýðveldisins, Ólafur Ragnar Grímsson, en báðir þessir einstaklingar nutu atfylgis Gísla Hjartarssonar í baráttu sinni fyrir þeim framgangi, er þeir fengu.“

Össur segir Gísla hafa verið einn af stofn­endum Samfylkingarinnar í sinni minningar­grein. „Gísli var frá fyrstu tíð einn af mótorum vinstri manna um alla Vestfirði og víðar. Hann var í forystu róttækrar æsku á Vestfjörðum og lengi formaður Alþýðu­banda­lagsins á Ísafirði. Í átökunum í kringum stofnun Samfylkingarinnar skipti það heldur betur máli þegar róttækur vinstri sinni einsog hann ákvað að ganga til liðs við okkur. Hann var einn af stofn­endum flokksins, og meðal þeirra manna sem ég var í stöðugu sambandi við svo að segja í hverri viku. Ég þáði frá honum ráð, lét hann stappa í mig stálinu og stappaði hann á móti, því Gísli var leitandi sál og einsog á prestana sótti stundum á hann efi um að fagnaðar­erindið væri nógu tært.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi