Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Bless, bless Bjarni

Skjáskot af Bjarna þar sem hann skreytir bæði fallega og girnilega köku
Skjáskot af Bjarna þar sem hann skreytir bæði fal­lega og girni­lega köku

„Afsögn“ Bjarna Benedikts­sonar fjármála­ráðherra hefur vakið gríðar­lega athygli. Sumir gleypa það hrátt að hann sé í raun að segja af sér embætti, nauðugur og rauna­mæddur. Aðrir telja sig sjá í gegnum marg­brotna leik­fléttu sem geri honum kleift að hreinsa sig af Íslands­bankamálinu og stilla VG upp við vegg með fordæmi sínu. Aðrir í sigti umboðs­manns Alþingis munu þurfa að axla sín skinn ef álit falla þeim í óhag.

Eðli málsins samkvæmt hafa ótal margir tjáð sig á samfélags­miðlum.„Bjarni Benediktsson var að segja af sér. Ja hérna. Á dauða mínum átti ég von,“ sagði Sara Óskarsson, listakona og fyrr­verandi þingmaður Pírata. „Adieu,“ sagði Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, og birti mynd af Bjarna þar sem hann skreytir fallega köku. Þá eru fleiri sem kveðja Bjarna á látlausan hátt en „Bless bless,“ sagði Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, borgar­fulltrúi Sósíalista­flokksins.

Það mun skýrast á næstunni hverjir næstu leikir í refskák Bjarna verða. Afsögnin verður væntanlega ekki dýpri en svo að hann færir sig í annað ráðuneyti. Nær öruggt er að Sönnu borgar­fulltrúa verður ekki að þeirri ósk sinni að fá að kveðja Bjarna strax.

Spennandi dagar eru framundan. Vitað er að Bjarni hefur lengi verið þreyttur á því fargi sem fylgir því að vera í forystu fyrir flokk sem er á fallanda fæti og þurfa stöðugt að glíma við syndir föður síns. Því er einn mögu­leikinn í stöðunni sá að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir vara­formaður taki við keflinu en Bjarni setjast á friðar­stól í utan­ríkis­ráðuneytinu. Haldi Bjarni áfram sem formaður þá blasir leik­fléttan við og allt var þetta ys og þys til að rétta af ímyndina. Svo er þetta spurning um pólitíska inneign hans og hvort flokkurinn rétti úr kútnum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.
Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Slúður