Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Vilhjálmur fjúkandi illur út í Stefán: „Ógeðfelldur blekkingarleikur sem forysta Eflingar ástundar“

Vilhjálmur Birgisson.
Vil­hjálmur Birg­is­son.

Verkalýðs­forkólfurinn Vilhjálmur Birgisson ritar langan pistil á Facebook-síðu sinni – þar sem meðal annars þetta og margt annað kemur fram:

„Ég hef ítrekað spurt sjálfan mig að því á liðnum vikum hvort það sé þessi virði að vera að reyna að leiðrétta ítrekaðar rang­færslur og villandi og afveiga­leiðandi athuga­semdir við kjara­samning sem 18 aðildar­félög Starfs­greina­sambands Íslands undir­rituðu 3. desember sl. Kjara­samning sem í þokkabót var samþykktur að meðaltali með 86% greiddra atkvæða.“

Bætir við:

„Niður­staða mín er einfald­lega sú að það er ekki hægt að sitja aðgerða­laus og horfa á allar þær rang­færslur sem forsvar­menn Eflingar með Stefán Ólafsson prófessor og fræðimann í broddi fylkingar, setja fram. Rang­færslur sem byggja á því að rýra trúverðug­leika 18 aðildar­félaga SGS vítt og breitt um landið. En förum yfir stað­reyndir og þær stórkost­legu rang­færslur sem forsvars­menn Eflingar hafa haldið linnulaust uppi.

Meðal annars hefur því ítrekað verið haldið fram að nýgerður kjara­samningur SGS kalli á kaupmáttar­skerðingu og það þrátt fyrir að kaup­taxtar verka­fólks í þessum samningi séu að hækka frá 10% upp í 13% eða að meðaltali um 11,28% Það liggur fyrir að SGS, VR og iðnaðar­manna­félögin unnu með verðbólguspá Seðla­bankans í þessum viðræðum sem gerir ráð fyrir tæplega 6% verðbólgu sem þýðir að kaupmáttar­aukning yrði á kaup­töxtum SGS um 5,28% ef þessi verðbólguspá gengur eftir.“

Vilhjálmur nefnir að „í þættinum Sprengis­andi í gær spurði ég Stefán Ólafsson prófessor og fræðimann hví í ósköpunum hann sé að ýja að því að kjara­samningur SGS muni leiða til kaupmáttar­skerðingar í ljósi þess að kjara­samningurinn sé að skila 11,28% meðaltals­hækkun og verðbólgu­spáin sé 6%. Svarið frá fræði­manninum var vægast sagt stór­undarlegt svo ekki sé fastar að orði kveðið en hann sagði orðrétt:

„Hins vegar að taka verði rýrnun á kaupmætti, sem hafi orðið á síðari hluta síðasta árs, inn í myndina.“

Hérna komum við að einum óheiðarlegasta blekkingar­leik sem ég hef orðið vitni að, allt til að senda grafal­varlegar rang­færslur út til almennings og afvega­leiða innihald kjara­samnings SGS.“

Vilhjálmur segir að „það sem Stefán fræði­maður gerir ásamt forystu Eflingar er að taka hækkun á vísitölu neyslu­verðs frá 1. apríl 2022 til desember 2022 sem var hækkun upp á 4,8% og segja að þessa hækkun á vísitölu neyslu­verðs verði að draga frá 11,28% hækkun á kaup­töxtum sem SGS samdi um. En um hvað snýst þessi ógeð­felldi blekkingar­leikur fræði­mannsins? Jú, hann sleppir 25.000 kr. launa­hækkunum sem komu á kauptaxta verka­fólks 1. janúar 2022 og 10.500 kr. hækkun vegna hagvaxtar­auka sem kom til framkvæmda 1. apríl 2022. En þessar tvær launa­hækkanir samtals að fjárhæð 35.500 kr. skiluðu 10,7% launa­hækkun. Forysta Eflingar með Stefán Ólafsson prófessor og fræðimann í broddi fylkingar sleppir þessari 10,7% launa­hækkun sem kom til framkvæmda á fyrstu mánuðum ársins 2022 og velur sér síðan að mæla hækkun á neyslu­vísitölunni eftir að þessar launa­hækkanir eru komnar til framkvæmda og segir að draga þurfi „kaupmáttar­rýrnun“ á seinni hluta ársins frá!“

Vilhjálmur segist hafa „séð Samtök atvinnu­lífsins velja sér tímabil til að fá sem bestu niður­stöðu máli sínu til stuðnings en skal fúslega viðurkenna að svona grófan blekkingar­leik hef ég aldrei séð áður. Hvað skyldu t.d. fulltrúar í kjara­tölfræði­nefnd segja um svona blekkinga­leik, að sleppa 10,7% launa­hækkun og byrja að mæla hækkun á neyslu­vísitölunni um leið og launa­hækkun er komin til framkvæmda. Málið er að ætíð þegar verið er að skoða kaupmáttar­aukningu eða skerðingu kjara­samninga þá er miðað við þegar kjara­samningar koma til framkvæmda og þar til þeir renna út. Ef kaupmáttar­aukning lægsta taxta verka­fólks í lífs­kjara­samningum sem var frá janúar 2019 til október­loka 2022 er skoðuð þá hækkaði lægsti taxti um 37,62% en neyslu­vísitalan hækkaði á sama tímabili um 20,5% Það þýðir að á samnings­tíma lífs­kjara­samningsins nam kaupmáttar­aukning 17 prósentu­stigum. Málið er að alltaf þegar samið er þá eru stéttar­félögin að semja fram í tímann og á það eins við núna og eins og áður hefur komið fram þá er þessi skammtíma­samningur að skila verka­fólki 11,28% launa­hækkun á kaup­töxtum í verðbólguspá sem miðast við 6% en það mun ef sú spá gengur eftir skila 5,28% kaupmáttar­aukningu.“

Hann segir einnig að „þessi ógeð­felldi blekkingar­leikur sem forysta Eflingar ástundar til að koma villandi og röngum upplýsingum á framfæri til að koma ógeð­felldu höggi á 18 aðildar­félög SGS er afar óheiðarlegur. Það er umhugsunar­efni að fræði­maður eins og Stefán Ólafsson sem ætlast til þess að hann sé tekinn alvarlega skuli voga sér að ástunda svona óheiðarleg vinnu­brögð sem standast ekki eina einustu fræðilegu skoðun. Ég hef áður sagt að við erum að stíga þétt og jöfn skref í því að lagfæra kjör verka­fólks á hinum almenna vinnu­markaði og er þessi kjara­samningur sem við undir­rituðum 3. desember einn áfangi í því enda framhald af lífs­kjara­samningnum.“

Vilhjálmur bendir á að „launa­taxtar verka­fólks eru að hækka frá 35.000 kr. upp í 52.000 kr. í þessum skammtíma­samningi og laun stórra hópa eins og vakta­vinnu- og fiskvinnslu­fólks eru að hækka um frá 50.000 upp í tæplega 70 þúsund krónur á mánuði. Kjara­baráttu fyrir bættum kjörum verka­fólks lauk ekki í þessum kjara­samningi né lýkur henni í kjara­samningum fram­tíðarinnar enda er barátta fyrir bættum hag verka­fólks eilífðar­verkefni.

Ég óska félags­fólki Eflingar svo sannarlega velfarnaðar í sinni kjara­baráttu sem framundan er en mér sem formanni SGS ber skylda til að upplýsa og verja þegar svona óheiðarlegur blekkingar­leikur er ástundaður. Það er alls ekki hægt að sitja undir hvaða óhróðri sem er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi