Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Egill skapstyggur

Mynd / Skjáskot af ruv.is.
Mynd / Skjáskot af ruv.is.

Egill Helgason fjöl­miðla­maður og Guð­mundur Magn­ús­son rit­höf­undur lögð­ust báðir á eitt með að gera því ræki­leg skil að séra Friðrik Frið­riks­son hefði verið hald­inn barna­girnd og hugs­an­lega mis­notað einn dreng. Þetta er byggt á heim­ild sem er nafn­laus. Viðtalið við Guðmund í Kiljunni þessa efnis hefur sett allt á annan end­ann og krafa er uppi um að taka niður styttur af Friðriki og steypa honum í ónáð.

Hörku­deilur spruttu um þetta mál á Facebook-síðu Egils eftir að hann skor­aði á menn að fella ekki dóma án þess að hafa lesið bók­ina. Sós­í­alista­for­ing­inn Gunnar Smári Egilsson spyr þá hvort þeir einir sem hafi lesið bók­ina hafi mál­frelsi. Egill brást illa við og sagð­ist hafa sett fram ein­falda kröfu um að menn kynni sér mál áður en þeir ræða þau. „Veit ekki hvort það gildir hjá sós­í­alistum en þar er nú einn sóða­leg­asti umræðu­vett­vangur á Íslandi,“ skrifar Egill snak­illur og vísar vænt­an­lega til Sam­stöðv­ar­innar sem for­ing­inn heldur úti. „Jæja góði, það vantar ekki yfir­lætið í þig,“ svar­aði Gunnar Smári.

Jón Viðar Jónsson gagn­rýnd­andi benti á að Egill og Guð­mundur bæru fulla ábyrgð á því hvernig umræðan hefði þró­ast þar sem úr efni 500 blað­síðna bókar hefði aðeins meint mis­notkun verið rædd. Sagði hann Kiljuna ein­kenn­ast af yfir­borðs­kenndum vinnu­brögðum.

Þótt fjöl­margir séu á því máli að slaufa eigi minn­ingu séra Friðriks eru aðrir sem telja fram­setn­ingu máls­ins ein­kenn­ast af æsifrétta­mennsku Egils og þörf Guð­mundar til að koma vöru sinni á fram­færi með sölu­trikki. Reynslan er þó gjarnan sú að bækur með fingraförum á borð við þessi fara síður í jóla­pakka og verða gjarnan undir í jóla­bóka­flóð­inu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Öskurapi með vesen

Tveir gistu í fangageymslum lögreglu í nótt.
Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Slúður