Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Helga Vala segir konuna sem leiki sér að kæra kynferðisbrot ekki vera til

Helga Vala Helgadóttir.
Helga Vala Helga­dóttir.

Helga Vala Helga­dóttir segir að á löngum ferli sem lögmaður brotaþola kynferðis­brota hafi hún aldrei hitt neina konu sem gerði það að gamni sínu að kæra mann til lögreglu. Undan­farið hafa furðu margir talað líkt og það væri algengt að konur kærðu karlmenn fyrir rangar sakir. Helga Vala bendir á að það sé svo óalgengt ekki síst fyrir þær sakir að ferlið sem tekur við er vægast sagt óþægilegt.

„Ég starfaði um árabil sem lögmaður brotaþola kynferðis- og ofbeldis­brota. Gekk vaktir á Neyðar­móttöku í viku í senn á 6 vikna fresti allt árið um kring. Ég hitti aldrei á þessum tíma brotaþola sem hefði að gamni sínu gengið í gegnum þá raun sem því fylgir. Að mæta á Neyðar­móttöku og greina frá því sem gerðist, fara í læknis­skoðun, taka lyf til að varna þungun, sýnatökur til að kanna möguleg smit, aðgerðir vegna áverka, ítrekaðar lýsingar á atburðum, skýrslu­taka, önnur skýrslu­taka til að bregðast við frásögn geranda, bið… bið…. bið…. enn ein skýrslu­taka… opinber umfjöllun, umfjöllun í nánasta samfélagi, útskúfun, meðaumkun, hverjir vita og hverjir vita ekki hvað gerðist…. bið… sálfræði­viðtöl…. og meiri bið… ,“ skrifar Helga Vala.

Hún segir svo dóms­kerfið vera ómanneskjulegt. „Ákvörðun lögreglu um að halda áfram með málið, senda málið til Héraðs­saksóknara til að gefa út ákæru… ákvörðun lögreglu um að fella niður málið því það er orð gegn orði… eða, ákæra gefin út…. undir­búningur fyrir það að gefa skýrslu fyrir dómi… en fá ekki að vera viðstödd/viðstaddur því þú ert ekki aðili máls, þú ert bara vitni að broti gegn þér…  bið…“

Niður­staðan eftir allt þetta er svo oft slæm fyrir viðkomandi. „Niður­staða héraðs­dóms… nokkrum árum eftir að brot átti sér stað… mögulega sýkna… mögulega sakfelling…. mögulega áfrýjun… en þú þarft að halda áfram með lífið fyrir þig og þitt fólk… Ég ítreka, ég hitti aldrei á mínum lögmanns­ferli einstakling sem var að leika sér að því að leita á Neyðar­móttöku eða kæra brot til lögreglu. Þetta er engin gleði­stund…“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi