Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Telur ljósmynd sanna brot á nýjum reglum: „Greinilega legið svona mikið á að fara að drepa“

Myndin sem birtist með Facebook-færslunni
Myndin sem birt­ist með Facebook-færsl­unni

Facebook færsla um veiði Hvals hf hefur vakið mikla athygli síð­asta sól­ar­hring en höf­undur færsl­unnar er Katrín Odds­dóttir. Katrín birtir mynd af annarri af tveimur langreiðum sem skotin voru í fyrsta veiði­túr Hvals hf en mynd­ina tóku nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Hard to Port.
„HVALUR HF SKÝTUR SIG Í FÓTINN!
Hér sést mynd sem nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Hard to Port náðu af annarri af TVEIMUR lang­reyðum sem var skotin með tveimur skutlum í fyrsta veiði­túr Hvals hf. 

Tvö af þremur dýrum voru þannig aug­ljós­lega ekki drepin sam­stundis. Þetta er brot gegn lögum og reglu­gerð og ekki síst í ljósi þess að vakt­stjóri Hvals hf. hefur við­ur­kennt í við­tali við Moggann að veð­ur­skil­yrði til veið­anna hafi verið mjög slæm. 

Þeim hefur greini­lega legið svona mikið á að fara að drepa,“ segir í upp­hafi færsl­unnar og bætir hún við:

„Í frétt Moggans (hlekkur í athuga­semd segir): 

„Veiðarn­ar gengu vel þrátt fyr­ir blind­þoku og leið­inda­veður. Hval­ur 8 með einn og Hval­ur 9 með tvo.

Guðmund­ur F. Gunn­laugs­son, stöðvar­stjóri í hval­stöð­inni í Hval­f­irði, seg­ir veiðarn­ar hafa gengið nokkuð vel þrátt fyr­ir aðstæður.

„Það geng­ur verr þegar er lítið skyggni,“ seg­ir Guðmund­ur sem var á leið í hval­stöð­ina til að und­ir­búa komu skip­anna þegar Morg­un­blaðið náði tali af hon­um í gær­kvöldi.“

Það að skjóta á dýrin í slæmum veð­ur­skil­yrðum er aug­ljóst brot nýrri reglu­gerð sem Svandís Svav­ars­dóttir setti þegar hún aflétti tíma­bundnu banni við veið­unum. Þar segir: 

„5. gr.

Aðstæður við veiðar.

Veiðar á lang­reyðum skulu fara fram í dags­birtu. Þá skulu ytri skil­yrði vera með þeim hætti að líkur séu til þess að aflífun fari fram sam­stundis og m.a. gætt að öldu­hæð, veð­ur­skil­yrðum og skyggni í því sam­bandi.“

Þessi fyrsti veiði­túr sýnir okkur því ekki aðeins að Hvalur hf. hefur ekki þróað sínar aðferðir þannig að hægt sé að tryggja taf­ar­lausan dauða í takt við lög um vel­ferð dýra. Hann sýnir okkur líka að Hvali hf. er sama þótt veið­arnar séu í aug­ljósri and­stöðu við fyr­ir­mæli reglu­gerð­ar­innar.’’

Segir hún þá að krafa hafi verið lögð fram að MAST stöðvi veið­arnar og það strax. Bendir hún einnig á að eft­ir­lit með veiðum hafi verið ábóta­vant og nær aldrei sé gripið til við­ur­laga sem lög segja til um.

„Ég held því að nú þurfi mat­væla­ráð­herra að finna aftur beinið sem hún hafði í nef­inu í júní og stöðva þessar veiðar með reglu­gerð, enda er ásetn­ingur Hvals hf. aug­ljós­lega ekki að fara að þeim regluramma sem veið­unum hafa verið settar. 

Það hægt að halda því fram að þú hafir óvart þurft að skjóta tvisvar, en það er aldrei hægt að halda því fram að þú hafir ekki vitað hversu slæm veð­ur­skil­yrðin voru þegar þú byrj­aðir að reyna að drepa þessi stóru sjáv­ar­spen­dýr. Þegar fyrir liggur að fleiri en eitt skot þurfti til að drepa fyrsta dýrið var aftur mögu­leiki á að end­ur­meta stöð­una og stöðva veiðar í óhag­stæðum skil­yrðum en þess í stað héldu starfs­menn Hvals hf. áfram og drápu annað dýr með óþarf­lega kval­ar­fullum hætti.

Hvalur hf. skaut því ekki aðeins þrjár lang­reyðar í sínum fyrsta veiði­túr árið 2023. Hann skaut líka sjálfan sig í fót­inn.’’

Myndin sem birt­ist með Facebook-færsl­unni
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar