Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Velferðarsvið Reykjavíkur vegna ákalls heimilislausra: „Það samtal er í gangi“

Ákall heimilislausra um gegnsæi í neyðaráætlunum Borgarinnar Mynd/samsett
Ákall heim­il­is­lausra um gegn­sæi í neyð­ar­á­ætl­unum Borg­ar­innar Mynd/sam­sett

Á síðustu misserum hafa heimilis­lausir óskað eftir aðstoð fjölmiðla og samlanda sinna við að kasta ljósi á aðstæður þeirra. Veturinn hefur verið í kaldara lagi og veðurofsi ríkt. Neyðar­skýlum á vegum Borgarinnar er haldið opnum frá klukkan fimm síðdegis til klukkan tíu að morgni. Þess á milli er fólki gert að yfirgefa skýlin.

Umgangs­pestir, veðurofsi og frosta­hörkur hafa valdið heimilis­lausum miklum kvíða og óskuðu tvær konur á dögunum eftir svörum Borgarinnar þegar kæmi að svokölluðum neyðar­áætlunum og gegnsæi hvenær þær væru virkjaðar.

Sjá nánar: https://gamla.mannlif.is/frettir/innlent/heimilislausar-konur-krefja-borgina-um-svor-vid-erum-badar-maedur-eigum-vid-bara-ad-deyja-uti/

Mannlíf setti sig í samband við Hólmfríði Helgu Sigurðar­dóttur, upplýsinga­fulltrúa velferða­sviðs Reykja­víkurborgar og óskaði eftir svörum.

Hér eru svör frá velferðar­sviði:

Hvar liggja mörk borgarinnar er varða opnunar­tíma neyðar­skýlanna?

Hversu vont skal veðrið vera – til að Borgin ákveði að halda skýlunum opnum?

Hvert er gagnsæið, hvað t.d. veður­skilyrðin varða? 

Neyðar­skýlin eru opin allan sólar­hringinn þegar neyðar­áætlun í mála­flokki heimilis­lausra með miklar og flóknar þjónustu­þarfir vegna veðurs er virkjuð. Neyðar­áætlunin er virkjuð í rauðum og appelsínu­gulum veður­viðvörunum, þegar fólki er almennt ráðlagt að halda sig inni við. Hún er líka virkjuð í miklu frosti en það er ekki miðað við ákveðið hitastig. Vel er fylgst með veðurspám og tilkynningum frá Almanna­vörnum allan veturinn.

Hér má lesa viðbragðs­áætlun neyðar­áætlun vegna veðurs.

Hvar geta heimilis­lausir og aðrir nálgast þessar upplýsingarnar?

Þegar slæm veður eru í kortunum og áætlunin virkjast er það tilkynnt á vef og samfélags­miðlum Reykja­víkurborgar, auk þess að frétta­tilkynning er send fjöl­miðlum. Leitað er allra leiða til að ná til fólks enda er markmið neyðar­áætlunarinnar að tryggja að upplýsingar um slæmt veður og opnun neyðar­skýla berist notendum í ótryggum aðstæðum. Allir sem vinna með og fyrir hópinn eru látnir vita, svo upplýsingarnar berist gestum neyðar­skýlanna. VoR-teyminu, stjórn­endum neyðar­úrræða fyrir heimilis­lausa, bráða­móttöku Land­spítalans, lögreglu, Rauða krossinum og forsvars­mönnum tjaldsvæða er gert viðvart.

Eru aðrir staðir/athvörf á vegum borgarinnar sem heimilis­lausir geta leitað yfir daginn á meðan skýlin eru lokuð?

Reykja­víkurborg styrkir og á í góðu samstarfi við Kaffi­stofu Samhjálpar, Hjálpræðis­herinn og Skjólið, sem er dagsetur fyrir konur sem er opið á virkum dögum. Þá hefur heimilis­laust fólk líkt og annað fólk í borginni aðgang að opinberum byggingum Reykja­víkurborgar.

Eru fyrir­hugaðar einhverjar breytingar á fyrir­komulaginu/ástandinu?

Hvorki skipulag á starfsemi neyðar­skýlanna, né húsnæði sem þau eru í, býður upp á að þeim verði breytt í varanlegt dagúrræði. Þann 16. desember síðastliðinn fól velferðarráð velferðar­sviði að eiga samtal við þau hjálpar­samtök sem sinna þjónustu við heimilis­lausa, eða eftir atvikum aðra aðila, um möguleika á að auka þjónustu við hópinn. Það samtal er í gangi. Þá má benda á að Reykja­víkurborg hefur lagt áherslu á að ríkið og önnur sveitar­félög komi í ríkari mæli að þessari þjónustu.

Þá sendi Hólm­fríður Helga fundar­gerð frá fundi velferðar­ráðs frá 21. desember. Á þeim fundi var fjallað með ítarlegum hætti um málefni heimilis­lausra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi