Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Helga Vala leiðréttir lygar Brynjars

„Megi okkur bera gæfa til að lifa í kær­leika og svæla burt það hatur sem grass­erar í sam­fé­lagi okkar”

Helga Vala Helgadóttir
Helga Vala Helga­dóttir Lög­mað­ur­inn leið­réttir ára­tugagamla lygi. Mynd: Heimildin/Heiða Helgadóttir

Helga Vala Helga­dóttir skrif­aði í morgun færslu þar sem hún leið­réttir „síend­ur­tekin ósann­indi“ um störf hennar sem lög­maður.

Dóttir Helgu Völu, Snærós Sindra­dóttir fjöl­miðla­kona skrif­aði harð­orða færslu á Facebook þar sem hún tekur fyrir orð tengda­sonar Bjarna Bene­dikts­sonar, Brynjari Barkassyni sem hann hélt á mót­mælum gegn útlend­inga­stefnu yfir­valda á laug­ar­dag­inn og athuga­semdir hans á Facebook. Þar sagði hún meðal ann­ars: „Ein þrá­látasta lygin sem vellur upp út ras­istum lands­ins er sú að mamma mín hafi beinan fjár­hags­legan hag af því að til Íslands komi hæl­is­leit­endur. Það líður ekki sá dagur að ég lesi ekki komment um þetta kjaftæði, og nýverið þurfti ég að leið­rétta bullið þegar það kom upp í fjöl­skyldu­spjalli vin­konu minnar”.

Athuga­semd BrynjarsMæðgurnar eru orðnar lang­þreyttar á lyg­unum.

Helga Vala er sem sagt að svara sömu lygum Brynjars í sinni Facebook-færslu sem byrjar á eft­ir­far­andi hátt:

„Að gefnu til­efni, vegna síend­ur­tek­inna ósann­inda um fjár­hags­lega hags­muni mína vegna þjón­ustu við flótta­fólk.

Sem lög­maður sinnti ég, auk ann­arra lög­manns­starfa, störfum sem tals­maður fólks á flótta fram í byrjun árs 2014, rétt eins og fjöldi kollega minna í lög­manns­stétt. Árið 2014 tók Rauði kross­inn við þeim störfum og lauk þá störfum mínum fyrir íslenska ríkið. Eftir að Jón Gunn­ars­son rifti samn­ingum við Rauða kross­inn og fól verk­efnið lög­mönnum að nýju hef ég ekki tekið að mér eitt ein­asta tals­manna­verk­efni og má sjá lista lög­manna sem sinna því van­þakk­láta hlut­verki á heima­síðu Útlend­inga­stofn­unar.“

Útskýrir hún að hún hafi aftur á móti starfað eins og margir aðrir lög­menn fyrir ríki og sveit­ar­fé­lög meðal ann­ars fyrir brota­þola kyn­ferðis- og heim­il­is­of­beldi og fyrir börn.

„Ég hef hins vegar líkt og margir kollegar mínir sinnt marg­vís­legum lög­manns­störfum gegn fram­lagi ríkis og sveit­ar­fé­laga, t.a.m. fyrir brota­þola kyn­ferðis- og heim­il­is­of­beldis, fyrir börn og for­eldra vegna sam­skipta barna­verndar, fyrir sak­born­inga í saka­málum, og fyrir brot úr tíma­kaupi fyrir þau sem hafa verið svipt fjár­ræði eða lög­ræði og þurfa stuðn­ing við sitt dag­lega líf.“

Segir hún enn­fremur að það sé ánægju­legt að fá að leið­rétta marg­tuggna lygi um sín störf. Þá talar hún um eig­in­mann sinn, Grím Atlason, sem fékk sinn skerf af ósann­indum í ræðu Brynjars á laug­ar­dag­inn.

„Svona er hluti starfa lög­manns í þágu borg­ar­anna, og ánægju­legt að fá að leið­rétta enn einus sinni síend­ur­tekin ósann­indi sem verða ekki sönn þótt tifað sé á þeim í á annan ára­tug.

Rétt er að geta þess einnig, að gefnu til­efni, að ég er feiki­lega vel gift öfl­ugum grein­anda á sam­fé­lagið í nútíma og sögu­legu ljósi og er hann góður penni að auki. Hann skrifar sína pistla og ég mína.“

Að lokum seg­ist Helga Vala vona að hægt verði að „svæla burt það hatur sem grass­erar í sam­fé­lag­inu“:

„Megi okkur bera gæfa til að lifa í kær­leika og svæla burt það hatur sem grass­erar í sam­fé­lagi okkar sem end­ur­spegl­ast í kommenta­kerf­inu.
Namaste.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

„Lífið er svo miklu betra með þér“
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu