Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Síamstvíburarnir Carmen og Lupita svara algengum spurningum: „Við erum tvær mismunandi manneskjur“

Carmen og Lupita
Carmen og Lupita Mynd: Instagram-skjáskot

Í mynd­bandi sem nýlega kom fram á sjón­ar­sviðið aftur, svara TikTok not­end­urnir og síam­st­ví­burarnir Carmen og Lupita Andrade spurn­ingum um það hvernig það sé að vera síam­st­ví­buri.

Hinar 23 ára gömlu systur eru tengdar við búk­inn og deila blóð­rás og æxl­un­ar­færum, svipað og raun­veru­leika­stjörn­urnar Abby og Brittany Hensel sem Mannlíf fjall­aði um á dög­unum.

„Við ætlum að svara algengum spurn­ingum af því að sum ykkar getið ekki haldið kjafti í mynd­böndum sem koma lík­ömum okkar ekk­ert við,“ sagði Lupita í mynd­band­inu sem birt­ist á TikTok í des­em­ber 2022 en ENews! fjall­aði um það í dag.

Carmen tók svo við mynda­vél­inni og beindi henni að and­liti sínu.

„Ef önnur okkar er þreytt, þurfum við ekki báðar að vera þreyttar af því að við erum með tvo mis­mun­andi heila,“ útskýrði Carmen og hélt áfram: „Já, önnur okkar getur verið vak­andi á meðan hin sefur af því að, eins og ég sagði, mis­mun­andi heilar.“

„Við erum tvær mis­mun­andi mann­eskjur,“ sögðu tví­burarnir í kór.

Carmen svarar svo spurn­ingu um dauð­ann en nákvæm­lega hvað var spurt kemur ekki fram. „Við deilum blóð­rás. Þannig að á end­anum fáum við sýkla­sótt og auð­gljós­lega deyr önnur okkar innan klukku­tíma eða daga. En við erum ekki dánar, þannig að af hverju að spyrja okkur að þessu? Erum við læknar?“

Þá útskýrður syst­urnar í sam­ein­ingu að þær geti ekki stjórnað útlimum hvor ann­arrar, né lesið huga hvor ann­arrar en þar sem þar sem þær deila blóð­rás finna þær báðar á sig ef önnur þeirra neytir áfengis eða eit­ur­lyfja. Og sam­kvæmt umfjöllun Today, eru þær með mjög mikið inn­sæi fyrir til­finn­ingum hvor ann­ars. Í raun vita þær báðar af því ef önnur þeirra er sorg­mædd eða kvíðin.

Carmen, er í sam­bandi með Daniel McCormack sagði í mynd­band­inu að aðeins hún sé að deita hann, ekki systir hennar. Lupita, sem skil­greinir sig sem eikyn­hneigða, bætti við: „Ég vil engan.“

Carmen, Daniel og Lupita.

Þá útskýrði Carmen í við­tali við Today árið 2023, að þær systur geti ekki orðið þung­aðar: „Við erum með endó­metríósu og erum líka á horm­óna­blokka sem kemur í veg fyrir að við fáum tíðir.“

Syst­urnar, svör­uðu fleiri skrítnum spurn­ingum með húmor­inn á lofti, í hinu tveggja ára gamla TikTok mynd­skeiði: „Ef ég loka aug­unum, þá sé ég ekki með hennar augum,“ sagði Carmen. „Við höfum fengið þessa spurn­ingu svo oft …“ Lupita bætti við: „Almenn skyn­semi er ekki svo almenn.“

Samkvæmt frétt ENews! svör­uðu syst­urnar spurn­ing­unum aðal­lega til að fá fylgj­endur sína til að hætta að biðja þær um að svara spurn­ingum.

„Af hverju þarf öll til­vera okkar að snú­ast um að svara spurn­ingum sem ég hef þegar svarað áður?“ spurði Lupita í öðru TikTok mynd­bandi frá því í mars 2022. „Það þú nennir ekki að fletta því upp er ekki mitt vanda­mál, eða vanda­mál Carmenar. Við erum ekki kenn­arar. Við erum ekki tals­menn. Við lifum bara.“

Hér má sjá mynd­skeiðið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027