Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Þóra Kristín býður sig fram til formanns SÁÁ til að „hrinda í framkvæmd tímabærum breytingum“

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir

„Eftir áskorun frá fjölmörgum innan samtak­anna hef ég ákveðið að bjóða mig fram til formennsku í SÁÁ. Það geri ég í trausti þess að ég fái stuðning til að hrinda í framkvæmd tímabærum breytingum á starfseminni sem ekki er hægt að skorast undan lengur í ljósi síðustu atburða,“ segir Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir upp­lýs­inga­full­trúi Íslenskr­ar erfða­grein­ing­ar, og bætir við:

„Okkar sameiginlegu hagsmunir, bæði þeirra sem hafa glímt við fíkni­vanda og/eða eiga ástvini í þeim sporum, og samfélagsins alls, eru að við gerum allt sem við getum til að að styðja veika alkóhól­ista til betra lífs, með meðferð, endur­hæfingu, sálrænum stuðningi og eftir­fylgd.“

Hún segir einnig að „SÁÁ er samansafn ólíkra einstaklinga með mjög fjöl­breyttan farangur mannlegra breysk­leika. Samtökin vilja taka utan um alla, hjálpa öllum. Það má aldrei breytast. Þegar það koma upp erfið mál innan samtak­anna eða á sjúkra­stofnunum þeirra verðum við alltaf að taka stöðu með þolendum ofbeldis. Þetta getur verið flókið en það þýðir ekki að það megi gefa afslátt af öryggi fólks eða mannlegri reisn.“

Að mati Þóru Kristínar er „Þetta flókið viðfangs­efni vegna þess að við erum öll saman í þessu, karlar, konur og ungmenni, bæði gerendur og þolendur ofbeldis­brota. Eitruð karl­mennska og harka er fylgi­fiskur harðrar neyslu og þótt fólk komi úr allskonar aðstæðum höfum við flest verið föst inni í vítahring og útsett fyrir margskonar ofbeldi og sárindum.

Konur hafa oft veikari félags­lega stöðu og minni líkams­burði til að verja sig. En það er til mikils að vinna. Ofneysla áfengis, lyfja og annarra vímuefna er algengasta dánar­orsök ungs fólks í dag. Bakvið slys, afbrot, ofbeldi, ótímabæra örorku, geðsjúk­dóma, og hræðileg barnaverndarmál, felur þessi sjúkdómur sig oft í bakgrunninum sem orsök eða meðvirk­andi þáttur.“

Meðal markmiða Þóru Kristínar er að setja saman sannleiks­nefnd til að taka á ofbeldis- og áreitnis­málum innan vébanda samtak­anna í fortíð og framtíð:

„Nýkjörin stjórn þarf að setja sér siða­reglur til að tryggja að það hafi sjálf­krafa í för með sér brott­vísun úr öllum trúnaðar­stöðum ef fólk innan samtak­anna verður uppvíst að því að brjóta á veiku fólki eða misnota aðstöðu sína.

SÁÁ eru grasrótar­samtök ólíkra einstaklinga sem hafa borið uppi meðferð alkóhól­ista og vímuefna­sjúklinga áratugum saman. Karlar og konur, fólk úr öllum stéttum samfélagsins, hafa tekið höndum saman í barátt­unni og sú samkennd ásamt velvild þjóðarinnar er dýrmætasta eign samtak­anna. Samtökin hafa haft ótrúlegan meðbyr í samfélaginu vegna þess ótvíræða árangurs sem hefur náðst. Þar hafa margir einstaklingar lyft grettis­taki og ég ber ómælda virðingu fyrir þeim öllum. Ég bið um ykkar stuðning til að leiða umbóta­starfið framundan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi