Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

„Við lifum á tímum þegar þjóðarmorð blasir við í beinni útsendingu“

Auður veltir því fyrir sér hvernig fólk í „Palest­ínu er svelt, sprengt og pyntað hefur mætt for­dæm­ingu víða um heim en hún ein hefur litla þýð­ingu þegar nauð­syn­legar aðgerðir fylgja ekki í kjöl­farið“

Auður Jónsdóttir rithöfundur
Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur Segir ástandið á Gaza minna á hel­för nas­ista Mynd: Wikipedia

Rit­höf­und­ur­inn Auður Jóns­dóttir segir um ástandið á Gaza - þar sem hel­för Ísra­els­manna gegn Palest­ínu­mönnum fer fram og allur heim­ur­inn horfir á og aðhefst ekk­ert - að „við lifum á tímum þegar þjóð­ar­morð blasir við í beinni útsend­ingu bæði á tölvu­skjánum og sjón­varps­skjánum.“

Auður veltir því fyrir sér hvernig fólk í „Palest­ínu er svelt, sprengt og pyntað hefur mætt for­dæm­ingu víða um heim en hún ein hefur litla þýð­ingu þegar nauð­syn­legar aðgerðir fylgja ekki í kjöl­farið.“

Hún segir að „það sem ger­ist er að almenn­ingur horfir upp á aðfarir sem við fengum á til­finn­ing­una sem börn í skóla að myndu aldrei end­ur­taka sig þegar við lærðum um Auschwitz-Birkenau.“

Bætir við:

„Í dag horfum við hins vegar á kerf­is­bundin fjöldamorð og svo hræði­legar aðfarir að engin orð fá þeim lýst. Flest þau sem drepin hafa verið eru börn og ungt fólk. Skot­mörkin hafa verið spít­alar jafnt sem skólar, hjálp­ar­starfs­menn, heil­brigð­is­fólk og blaða­menn. Fólk er bæði sprengt og svelt til dauða. Og eitt­hvað í okkur rugl­ast.“

Auður vill meina að svo lengi sem þjóð­ar­leið­togar heims­ins grípi ekki til aðgerða gegn Ísrael þá við­hald­ist „normalís­er­ingin, íþrótta­fé­lög halda áfram að keppa við kepp­endur frá Ísrael og evr­ópskar sjón­varps­stöðvar halda áfram að stuðla að því að mann­fjöld­inn fagni kepp­endum þaðan. Allir segja: Ekki benda á mig – ég get ekk­ert gert meðan allt er svona, ekki for­dæma mig!“

Auður segir að „seig­drep­andi normalís­er­ing“ haldi áfram og við verðum „öll aðeins ringlaðri með hverjum deg­inum sem líður.“

Hún segir að skáld hafi „mætt for­dæm­ingu fyrir að hafa tekið í hönd Hitlers, slíkt handa­band hefur þótt normalís­er­ing á morð­ingja. En hvað um okkur? Í dag? Núna? Hvernig munu kom­andi kyn­slóðir skilja við­brögð eða við­bragðs­leysi okkar?“

Und­an­farin miss­eri hefur Auður bæði talað við flótta­fólk frá Palest­ínu hér á landi - sem lifir í ótta um ætt­ingja jafnt sem vini - og einnig rætt við fólk á Gaza sem ótt­ast að börnin sín muni svelta í hel um leið og heyra má spreng­ingar í næsta nágrenni þess.

„Veru­leiki þeirra er alveg jafn raun­veru­legur og veru­leiki fólks­ins sem ég rabba við í Nettó eða krakk­anna að leika á skóla­lóð sonar míns, þau eru alveg jafn nálæg.“

Hún færir í tal að hvert og eitt „okkar getur hringt í mann­eskju á Gaza til að fá úr því skorið, til að veru­leikar þeirra mæt­ist. Fjar­lægðin er ekki meiri en svo. En nú er ann­ars konar fjar­lægð að há okkur, nefni­lega fjar­lægðin frá því að skynja veru­leika ann­arra. Taka mark á honum. Gera það sem okkur sem börnum í skóla að læra um útrým­inga­búðir nas­ista hefði þótt sjálf­sagt.“

Og Auður vill „grípa til aðgerða, reyna að gera okkar til að stöðva martröð­ina, taka ekki þátt í normalís­er­ing­unni. Meðan það er ekki gert þá höldum við áfram að rugl­ast. Höldum áfram að normalísera hið óeðli­lega, bara af því að hinir gera það. Vitum á end­anum ekki hver við erum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu