Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ragna farin í veikindaleyfi frá Alþingi

„Nú er und­ir­bún­ingur fyrir barns­burð framundan og stærsta nýja hlut­verk okkar Árna í líf­inu.“

Ragna Sigurðardóttir
Ragna Sig­urð­ar­dóttir Þing­konan ætlar að ein­blína á með­göng­una. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Ragna Sig­urð­ar­dóttir, læknir og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar er komin í veik­inda­leyfi. Þetta til­kynnti hún á Facebook.

Þinkonan og lækn­ir­inn Ragna Sig­urð­ar­dóttir til­kynnti á Facebook í gær­kvöldi að hún væri komin í veik­inda­leyfi frá þing­stöfum vegna með­göng­unnar en hún er komin 33 vikur á leið.

„Kæru vinir,

Ég er komin í veik­inda­leyfi frá þing­störfum vegna með­göng­unnar. Í minn stað er kom­inn frá­bær vara­þing­maður, Sig­ur­þóra Bergs­dóttir, sem hefur tekið mitt sæti í vel­ferð­ar­nefnd og efna­hags- og við­skipta­nefnd og á Alþingi.“ Þannig hefst til­kynn­ing Rögnu en í næstu orðum segir hún að fyrstu mán­uð­irnir á þingi hafi verið „magn­aðir“. Notar hún lýs­ing­ar­orð á borð við áhuga­vert, lær­dóms­ríkt og skemmti­legt, til að lýsa nefnd­ar­starf­inu.

„Það hafa verið magn­aðir fyrstu mán­uðir á þingi - ég tel mig heppna og er þakk­lát fyrir tæki­færið að sinna þing­störfum fyrir þjóð­ina. Nefnd­ar­starfið hefur verið gef­andi, áhuga­vert, lær­dóms­ríkt og skemmti­legt - og starfið í þing­sal Alþingis ekki síður áhuga­vert. Sam­starfs­fólkið mitt í þing­flokki Sam­fylk­ing­ar­innar er í fremstu röð og sam­starfið við þing­menn stjórn­ar­flokk­anna hefur verið frá­bært. Þá hef ég eign­ast vini úr öllum flokkum og mun sakna sæt­is­fé­laga minna í þing­sal!“

Þá seg­ist Ragna hefði viljað ná að fylgja öllum hennar málum út úr nefnd en vegna meðal ann­ars tafa­leikja, hafi þau ekki öll kom­ist að í tæka tíð.

„Ég hefði viljað fylgja öllum fimm mál­unum sem ég var fram­sögu­maður fyrir í vel­ferð­ar­nefnd út úr nefnd og í aðra umræðu í þing­sal en meðal ann­ars vegna langra umræðna (og tafa­leikja í sumum til­vikum) komust þau ekki öll að í tæka tíð. Ég vil þakka félögum mínum Krist­jáni Þórði og Sig­ur­þóru fyrir að flytja þau mál í minni fjar­veru - og frá­bæru nefnda­sviði Alþingis fyrir alla aðstoð við und­ir­bún­ing.“

Að lokum segir Ragna und­ir­bún­ing fyrir fæð­ing­una vera framunda en að mark­miðið sé að halda drengnum inni eins lengi og hægt er.

„Nú er und­ir­bún­ingur fyrir barns­burð framundan og stærsta nýja hlut­verk okkar Árna í líf­inu. Ég er gengin tæp­lega 33 vikur í dag og dreng­ur­inn sem á eftir að fæð­ast er því strax orð­inn móð­ur­betr­ungur þar sem mamma hans fædd­ist eftir rúm­lega 32 vikna með­göngu. Mark­miðið er að halda honum inni aðeins lengur - helst fulla með­göngu - hlusta á lík­amann, sam­drætt­ina og fara sér hægt.

Ég hlakka til hlut­verks­ins framundan meðan ég þakka fyrir tæki­færin síð­ustu mán­uði til að hafa áhrif. Þar til næst!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“