Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Manndráp oftast framin af vini eða ættingja

„Manndrápsmál eru að öllu jöfnu ástríðu­tengd. Þetta eru þau mál sem snerta okkur dýpst,“ segir Helgi Gunnlaugsson, afbrota­fræðingur og prófessor í félags­fræði við Háskóla Íslands. Fregnir bárust í vikunni af manndráps­máli á Spáni þar sem Íslendingar eiga í hlut. Guðmundur Freyr Magnússon, sem hefur á bakinu langan afbrota­feril á Íslandi, er í haldi vegna andláts Sverris Arnar Olsen um síðustu helgi. Sverrir var sambýlis­maður móður Guðmundar og því stjúpfaðir hans.

Mynd / Skjáskot RÚV
Mynd / Skjáskot RÚV

Mannlíf rifjar í dag upp átta manndrápsmál sem upp hafa komið allra síðustu ár, eða frá árinu 2016. Til viðbótar er fjallað um eitt mál þar sem gerandinn var dæmdur fyrir stór­fellda líkams­árás sem leiddi til dauða þolandans.

Gerandi oft vinur eða fjölskyldumeðlimur

Helgi bendir á að í flestum tilvikunum, eins og jafnan í manndráps­málum, hafi gerandi og þolandi átt í nánu vina- eða fjölskyldu­sambandi. Oft sé um fjölskyldu­harmleik að ræða.

„Fjölskyldu­tengsl eiga við í um helming manndráps­mála erlendis,“ útskýrir Helgi og bætir við að hlut­fallið sé áþekkt á Íslandi; gerandi og þolandi séu tengdir fjöl­skyldu­böndum í um helmingi tilvika.

Málið sem kom upp á Spáni um síðustu helgi er annað manndráps­málið í röð þar sem Íslend­ingur er grunaður um að verða öðrum Íslendingi að bana á erlendri grundu. Gunnar Jóhann Gunnarsson situr í varðhaldi í Noregi, grunaður um að hafa drepið hálf­bróður sinn seint í apríl í fyrra. Búist er við að málið fari fyrir dóm í Noregi í febrúar.

Noregs­málið er ekki eina nýlega dæmið um að maður verði bróður sínum að bana en þess má geta að Gunnar hefur játað að hafa valdið dauða bróður síns. Hann hefur þó fullyrt að um óhapp hafi verið að ræða.

Skemmst er að minnast málsins sem upp kom á Gýgjar­hóli í Árnes­sýslu vorið 2018. Þá myrti Valur Lýðsson Ragnar bróður hans eftir að þeir höfðu setið að drykkju á heimili Ragnars. Fyrir það var hann dæmdur til 14 ára fangelsis­vistar í Lands­rétti í fyrra.

Annað mál, þar sem nánir fjölskyldu­meðlimir áttu í hlut, kom upp á Akranesi vorið 2016, en talið er að eigin­maður hafi þar drepið eiginkonu sína áður en hann svipti sig lífi.

Lesa Mannlíf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi