Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Gunnar Kristinn er látinn

kerti
kerti

Gunnar Kristinn Gunn­ars­son fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri lést mið­viku­dag­inn 4. sept­em­ber síð­ast­lið­inn á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­lands í Vest­manna­eyjum. Hann var 74 ára.

Gunnar fædd­ist 21. febr­úar árið 1950 í Reykja­vík, sonur hjón­anna Gunnars Krist­ins­sonar, versl­un­ar­manns og söngv­ara og Maríu Tryggva­dóttur tann­smiðs.

Fram kemur í and­láts­frétt mbl.is að Gunnar hafi gengið í Mela­skóla, Haga­skóla, Mennta­skól­ann í Reykja­vík og Háskóla Íslands og hafi útskrif­ast árið 1974 sem við­skipta­fræð­ingur. Með skóla starf­aði hann á sumrin hjá Verk­smiðj­unni Víf­il­fell hf. og eftir að námi lauk starf­aði hann sem skrif­stofu­stjóri hjá Víf­il­felli og stýrði einnig tölvu­deild fyr­ir­tæk­is­ins til 1986. Þá varð hann aðstoð­ar­for­stjóri og síðar fram­kvæmd­ar­stjóri fram­kvæmd­ar­sviðs hjá Olís frá 1986 til 1991. Frá 1991 til 1995 starf­aði hann við ýmis­legt, meðal ann­ars sem fram­kvæmd­ar­stjóri hjá Hand­knatt­leiks­sam­bandi Íslands sem og fram­kvæmd­ar­stjóri á heims­meist­ara­mót­inu í hand­bolta í Reykja­vík 1995. Árið 1995 var hann ráð­inn fram­kvæmd­ar­stjóri Heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar í Vest­manna­eyjum og starf­aði þar til 2014 þegar starfsæv­inni lauk.

Var Gunnar virkur í félags­störfum innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar en hann sat í mörg ár í stjórn hand­knatt­leiks­deildar Þróttar í Reykja­vík og í stjórn HSÍ frá 1980 til 1984 og aftur 1987 til 1992. Þá var hann eft­ir­lits­dóm­ari hjá HSÍ frá því að eft­ir­lits­dóm­ara­kerfið var sett á til árs­ins 2018. Auk þess var hann eft­ir­lits­dóm­ari hjá Evrópska Hand­knatt­leiks­sam­band­inu frá 1993 til 2018 en þá þurfti hann að hætta sökum ald­urs en var þá sæmdur gull­merki EHF.

Hand­bolti var ekki eina íþróttin sem var Gunnari hug­leik­inn en hann var for­maður Golf­klúbbs Vest­manna­eyja frá 1996 til 2000 og sat í stjórn Golf­sam­bands Íslands 2001-2019. Um ævina hlaut Gunnar gull­merki HSÍ, GSÍ og ÍSÍ og silf­ur­merki ÍBV. Gunnar var aukreitis virkur félagi í Oddfellow í Vest­manna­eyjum þar sem hann var meðal ann­ars yfir­meist­ari sinnar stúku og stór­full­trúi stúkunnar fram að and­láti.

Gunnar lætur eftir sig eig­in­kon­una Sigrúni Ingu Sig­ur­geirs­dóttur en hún er fyrr­ver­andi bóka­vörður. Börn þeirra eru þau María Kristín, Gunnar Geir og Inga Lilý og barna­börnin eru sjö.

Útför Gunn­ars fer fram frá Landa­kirkju í Vest­manna­eyj­um 14. sept­em­ber kl. 13.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

„Það er kapps­mál að gera það að aðlað­andi kosti að flytja á lands­byggð­ina“

María Rut Kristinsdóttir vill fjölga sérfræðingum í heimabyggð og nýta sjúkrastofnanir betur til að bæta aðgengi að heilbrigðisþjónustu.
Pólitík

Grímur telur vel rök­stutt að fella brott­vís­un­ina úr gildi

Sport

Átján ára knatt­spyrnu­maður lést eftir höf­uð­högg í miðjum leik

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Lögregla rannsakar einnig tilkynningu um líkamsárás í miðborginni.
Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti