Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Dr. Selló er full af keppnisblóði: „Læt ekki stjórna för ef litlu munar“

Dr. Guðrún Svana Hilmarsdóttir er neytandi vikunnar
Dr. Guðrún Svana Hilm­ars­dóttir er neyt­andi vik­unnar

Dr. Guðrún Svana Hilm­ars­dóttir er lektor í mat­væla­fræði við HÍ. Guðrún er gift Hjalta Hann­essyni, for­rit­ara, og saman eiga dóttur sem heitir Emma Kristín. Hún er ættuð frá Akureyri en býr í Reykja­vík. Guðrún er selló­leik­ari, mál­ari, brand­ara­kona, prjón­ari og púsl­ari. Guðrún er neyt­andi vik­unnar.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?

Ég gerði aðal­lega verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu hérna áður fyrr, og bar einnig saman verð milli Noregs og Dan­merkur því ég bjó þar í alls 3 ár. Í dag hef ég þetta bak við eyrað en læt ekki stjórna för ef litlu munar. Ég reyndar læt vita ef þjón­ustan er mjög góð eða mjög slæm.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég get ekki sagt að ég spari í mat­ar­inn­kaupum lengur en á náms­árum mínum þá spáði ég mikið í þessu þar sem ég sleppti að taka náms­lán. Það gæti þó stefnt í að maður spái meira í þessu ef hús­næð­is­lána­vextir fara að hækka við end­ur­fjár­mögnun! En það eru ýmis ráð, myndi segja að þetta væri oft sam­spil milli tíma og króna; ef þú sparar kemur það niður á lengri tíma í eld­hús­inu og búðum. Þetta var þó oft nokkuð spenn­andi, hvað maður kæm­ist langt niður fyrir vik­una.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já, ég er mikið í end­ur­nýt­ingu. Finnst mjög leið­in­legt að henda mat, svo ég deili honum til ann­arra fjöl­skyldu­með­lima og geri það sem ég get til að sporna við því að henda mat. Kaupi frekar not­aða hluti heldur en nýja, og föt eru ýmist notuð eða ný og sendi ég þau áfram og enda oft í hring­sóli. Einnig barna­dót sem ég átti þegar ég var lítil leikur dóttir okkar með auk þess að við kaupum bæði ný og notuð leik­föng.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Það er nú frekar ein­falt: Hvað langar mig í, og hvað vantar.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Mér finnst í raun ekki erfitt að draga úr neinu, gæti jafn­vel verið spenn­andi – það er keppn­is­blóð í mér enn frá mínum fyrri hand­bolta árum.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já, hún skiptir mig og okkur fjöl­skyld­una máli. Við flokkum og reynum að bæta við baunum og græn­meti og minnka kjöt­neyslu sem dæmi og einnig erum við með mat­jurta­garð sem von­andi stækkar í fram­tíð­inni. Svo er ég í rann­sókn­ar­verk­efnum sem rann­saka umhverf­is­á­hrif ýmissa pakkn­inga, hlið­ar­strauma eða orku­fram­leiðslu meðal ann­ars í dokt­ors­verk­efn­inu mínu svo umhverf­is­á­hrif eru mikið rædd í vinnu.

Annað sem þú vilt taka fram?

Já, kannski að ýta undir gagn­rýna hugsun hjá öllum, því nýjar hug­myndir eru fram­tíðin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar