Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Skarphéðins minnst: „Einstakt ljúfmenni, djúpvitur og sérstaklega vel að sér um alla náttúru“

Skarphéðinn Þórisson er jarðsunginn í dag.
Skarp­héð­inn Þórisson er jarð­sung­inn í dag.

„Skarp­héð­inn var ein­stakt ljúf­menni, djúp­vitur og sér­stak­lega vel að sér um alla nátt­úru og dýra­líf,“ segir í minn­ing­ar­orðum Land­verndar um Skarð­héð­inn. G. Þórisson líf­fræð­ing sem er jarð­sung­inn í dag. Hann lést af slys­förum sunnu­dag­inn 9. júlí í hörmu­legu flug­slysi ásamt tveimur öðrum.Félagar Skarp­héð­ins segja að meðal margra verk­efna Skarp­héð­ins hafi verið að hafa eft­ir­lit með hrein­dýrum af hálfu Nátt­úru­stofu Aust­ur­lands. Hann hafi einmitt verið í slíkri ferð yfir búsvæði þeirra þegar hið hörmu­lega slys átti sér stað.„Land­vernd naut góðs af verkum og fag­mennsku Skarp­héð­ins hvort þá heldur þurfti að leita í hans visku­brunn eða gríð­ar­mikið mynda­safn. Fullyrða má að eng­inn ein­stak­lingur hafi búið yfir jafn mik­illi þekk­ingu á lifn­að­ar­háttum hrein­dýra á Íslandi og Skarp­héð­inn. Auk þess átti hann stór­feng­legt safn hrein­dýra­mynda, enda var hann frá­bær ljós­mynd­ari. Myndir hans hafa meðal ann­ars um langt skeið prýtt veggi flug­stöðv­ar­innar á Egils­stöðum, far­þegum og gestum til ynd­is­auka. Þá hafa myndir frá Skarp­héðni einnig skreytt nátt­úru­tengdar sýn­ingar um land allt, stórar sem smáar,“ segir í minn­ing­ar­orð­unum.

Minn­ing­ar­orðin í heild sinni: „Góður liðs­maður og félagi Skarp­héð­inn G. Þórisson líf­fræð­ingur hjá Nátt­úru­stofu Aust­ur­lands er fall­inn frá. Skarp­héð­inn var einn þeirra sem lét­ust í hörmu­legu flug­slysi við Sauða­hnjúka sunnu­dag­inn 9. júlí. 

Skarp­héð­inn var einn af mátt­ar­stólpum íslenskrar nátt­úru­verndar og sat í stjórn Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Aust­ur­lands um langt ára­bil. Þar vann hann mikið starf af hug­sjón­inni einni með góðum félögum, einnig átti hann sæti í fag­hópi 2 v/ramma­á­ætl­unar og kom víðar við á þessu sviði.

Land­vernd naut góðs af verkum og fag­mennsku Skarp­héð­ins hvort þá heldur þurfti að leita í hans visku­brunn eða gríð­ar­mikið mynda­safn. Fullyrða má að eng­inn ein­stak­lingur hafi búið yfir jafn mik­illi þekk­ingu á lifn­að­ar­háttum hrein­dýra á Íslandi og Skarp­héð­inn. Auk þess átti hann stór­feng­legt safn hrein­dýra­mynda, enda var hann frá­bær ljós­mynd­ari. Myndir hans hafa meðal ann­ars um langt skeið prýtt veggi flug­stöðv­ar­innar á Egils­stöðum, far­þegum og gestum til ynd­is­auka. Þá hafa myndir frá Skarp­héðni einnig skreytt nátt­úru­tengdar sýn­ingar um land allt, stórar sem smáar.

Meðal margra verk­efna Skarp­héð­ins var eft­ir­lit með hrein­dýrum af hálfu Nátt­úru­stofu Aust­ur­lands. Hann var einmitt í slíkri ferð yfir búsvæði þeirra þegar hið hörmu­lega slys átti sér stað.

Skarp­héð­inn var ein­stakt ljúf­menni, djúp­vitur og sér­stak­lega vel að sér um alla nátt­úru og dýra­líf.

Um leið og Land­vernd vill þakka Skarp­héðni allt hans ómet­an­lega fram­lag til nátt­úru­verndar í land­inu sem og sam­starf, vottum við aðstand­endum öllum okkar dýpstu samúð“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar