Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Tveir skemmtistaðir með of unga viðskiptavini – Tilkynnt um spyrnu í anda Fast and the furious

Lögreglan að störfum.
Lög­reglan að störfum. Mynd: Lára Garðarsdóttir

Mikið var um ölv­un­arakstur í nótt sam­kvæmt dag­bók lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þá voru tveir skemmti­staðir ávíttir fyrir að leyfa fólki undir áfeng­is­aldri að vera inni á stöð­unum.

Aðili var til ama og óþurftar í og við fyr­ir­tæki í miðbæ Reykja­víkur. Var honum gefið tæki­færi á að láta af hegðun sinni en hann lét sér ekki segj­ast. Var hann því han­tek­inn en reynd­ist hann þá vera með fíkni­efni á sér. Var aðil­inn vistaður í fanga­klefa.

Til­kynn­ing barst um spyrnu og bif­reiða­hitt­ing, líkt og sjá má í ung­linga­myndum níunda ára­tug­ar­ins, nú eða í Fast and the Furious mynd­unum. Þegar lög­reglu bar að garði var ekk­ert í gangi.

Við vín­húsa­eft­ir­lit reynd­ist einn skemmti­staður hafa fjóra dyra­verði án til­skil­inna rétt­inda. Einnig fund­ust ung­menni undir tví­tugu inni á staðnum. Rætt við ábyrgð­ar­mann rekstrar og honum kynnt að lög­reglu­skýrsla yrði rituð um málið.

Þá var til­kynnt um slags­mál fyrir utan bar. Var búið að leysa málið þegar lög­reglan mætti á vett­vang­inn. Á sama stað voru þrjú ung­menni undir 18 ára aldri. Skýrsla var rituð um þann hluta máls­ins.

Til­kynn­ing barst um aðila sem svaf ölv­un­ar­svefni á hót­eli við brotna rúðu. Eftir að aðil­inn gaf lög­reglu upp­lýs­ingar var honum sleppt.

Lík­ams­árás var til­kynnt í mið­bænum og hafði lög­reglan uppi á ger­end­unum þar sem einn hljóp frá lög­reglu. Voru þeir teknir höndum og fluttir á lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu þar sem einn var vistaður í klefa en tveimur sleppt að lok­inni upp­lýs­inga­töku.

Þá voru lög­reglu­menn stöðv­aðir af borg­urum við eft­ir­lit þar sem þeir til­kynntu lík­ams­árás. Árás­ar­að­il­inn var han­tek­inn og vistaður í klefa. Málið er nú rann­sakað.

Úr Kópa­vog­inum barst til­kynn­ing um átök þar sem hugs­an­lega væri aðili með vopn á vett­vangi. Árás­ar­að­il­arnir voru farnir er lög­reglan mætti á vett­vang en fund­ust þeir stuttu síðar. Voru þeir vistaðir í fanga­klefa vegna máls­ins, sem nú er rann­sakað.

Lög­reglan á öllum stöðvum stöðv­uðu á ein­hverjum tíma­punkti öku­menn sem reynd­ust undir áhrifum áfengis eða fíkni­efna. Þá voru nokkrir öku­menn án rétt­inda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar