Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Einar Þorsteinsson tekur við undirskriftarlista um Elísabetarstíg: „Í húsinu skrifaði ég 26 bækur“

Elísabet horfir vongóð á skiltið
Elísabet horfir von­góð á skiltið

Einar Þor­steins­son, for­seti borg­ar­stjórnar Reykja­víkur tekur á móti und­ir­skrift­ar­lista borg­ara sem vilja sjá Elísa­bet­ar­stíg verða að veru­leika. Verða und­ir­skrift­irnar afhentar í Ráðhúsi Reykja­víkur á morgun klukkan 10:20.

Samkvæmt til­kynn­ingu sem Mannlífi barst, telja und­ir­skrift­irnar rúm­lega 1100 kvenna og karla sem vilja að stígur sem gert er ráð fyrir á milli Sól­vall­ar­götu og Hring­brautar, hljóti nafnið Elísa­bet­ar­stígur en Elísabet Jök­uls­dóttir rit­höf­undur og skáld bjó í ára­tugi í hverf­inu.

Í til­kynn­ing­unni segir eft­ir­far­andi:

Nú er gert ráð fyrir stíg sem lægi milli Sól­valla­götu og Hring­brautar, hann þá myndi þá skera í sundur gömlu húsin við Fram­nes­veg og risa­bygg­ingu sem verið er að reisa á gamla Bykóreitnum. Mikil mót­mæli urðu við þessa risa­bygg­ingu sem þótti úr stíl við gamla og töfr­andi bæj­ar­mynd, ásamt því að skerða sól­ar­lagið.

Stíginn átti að kenna við Pétur Hoffmann og kalla hann Hoff­manns­stíg. Nú er Hoffmann löngu far­inn undir græna torfu og auk þess einn af hinum hund­ruðum karla sem götur hafa verið kall­aðar eftir í áranna rás. 

Hoffmann var frægur fyrir að gramsa í fjör­unni eftir allskyns dóti sem hann kall­aði gull. Hvað um það; Hofmann var skrít­inn og skemmti­legur karl. En hvað um skrítna og skemmti­lega konu!? Elísabet Jök­uls­dóttir hafði búið í sínu Töfra­húsi einsog nágrannar hennar köll­uðu húsið hennar.

Hún átti það til að stilla alls­konar hlutum útí glugg­ana, björg­un­ar­hringjum, skilti þarsem á stóð Mundu töfrana, þjóð­bún­inga­dúkkum, gyðjum ogs­vfrv. Hún klædd­ist síðum rósóttum kjól og dans­aði kringum Ufsa­klett þegar hann stóð á umferð­ar­eyju. Á meðan hún bauð fólki í kaffi á stein­inum. Kveikti ljós í klett­inum á ára­mótum. Sinnti stundum börnum sem áttu bágt í hverf­inu. Börn komu og bönk­uðu uppá og spurðu: Hver býr hér, mikið er þetta fal­legt hús.

Og þannig urðu ævin­týrin til hvert af öðru. En þarna bjó Elísabet í þrjá­tíu ár ásamt sonum sínum, gefum henni orðið: 

„Í hús­inu skrif­aði ég 26 bækur, í hús­inu skrif­aði ég leik­rit í 30 ár, það var sama leik­ritið: Mundu töfrana. Ég fór í áfeng­is­með­ferð og fékk nýtt líf, ég fór á geð­deild og fékk nýjan skiln­ing á líf­inu, ég fór í for­seta­fram­boð og fékk skiln­ing á sjálfri mér og þjóð­inni. Ól upp strák­ana mína og eld­aði ótelj­andi kjöt­súpur en þeir færðu ótelj­andi pizzur inní húsið. Svo lék lúðra­sveit á tröpp­unum.“

Með und­ir­skrift­unum fylgja und­ur­sam­legar athuga­semdir þar sem fólk lýsir yfir ótví­ræðum og fal­legum stuðn­ingi við til­lög­una. Hér má sjá nokkrar þeirra:

„Það er full þörf á að fá götu­heitið Elísa­bet­ar­stígur á götu sem yrði þá fyrir vikið full af töfrum.“ Þóra Gylfa­dóttir

„Elísa­bet­ar­stígur er eina rétta nafnið á þessa götu. Stór­skáld og mest lit­rík­asta mann­eskja lands­ins.“ Arn­fríður Ein­ars­dóttir

„Mér finnst þetta.“ Sigurður Ing­ólfs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar