Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Páll sagður ýta undir kvenfyrirlitningu og hatur

Páll Magnússon, fyrr­verandi þingmaður Sjálfstæðis­flokksins og útvarps­stjóri, blandar sér í skessu­málið á Facebook og segir Eddu Falak eiga skilið afsökunar­beiðni frá þeim sem merktu skessu nafni hennar á Þrettándanum í Vestmanna­eyjum. Hann hafnar því þó alfarið að það hafi verið rasismi þrátt fyrir að skessan hafi helst líkst litla svarta Sambó.

Mynd/Skjáskot sem Edda birtir á Twitter.

Páll skrifar: „Þeir sem skreyttu tröllin á Þrettándanum í Eyjum gerðu sig seka um dómgreindar­laust smekk­leysi þegar eitt tröllið var merkt með afbökuðu nafni Eddu Falak. Þetta kallaði á skýra og afdráttar­lausa afsökunar­beiðni frá ÍBV – bæði opinber­lega og til Eddu persónu­lega – með loforði um bót og betrun. En að kalla þetta “haturs­orðræðu“, “rasisma“ eða “ofbeldis­hótun“ er einfald­lega yfir­gengilegur hugtakarugl­ingur – og óðaverðbólga í orða­notkun.“

Hann bætir svo við þetta: „Hvaða hugtök ætla menn að nota um þessi fyrir­brigði þegar þau skjóta raun­verulega upp kollinum ef búið er að gengis­fella þau svona rækilega? Þegar þessi hugtök eru notuð svona gáleysis­lega er beinlínis verið að gera lítið úr þolendum raun­verulegrar haturs­orðræðu, ofbeldis og rasisma.“

Ekki eru allir sammála þessu en Sema Erla Serdar segir í athugasemd að Páll sé með þessum skrifum að ýta undir kven­fyrirlitningu og hatur. Sema skrifar:

„Það er almennt ekkert sérstak­lega vel séð að fólk í yfirburða- og valda­stöðu í samfélaginu sem mun aldrei upplifa haturs­orðræðu og rasisma sé að skilgreina fyrir þolendur hvað sé og hvað sé ekki haturs­orðræða og rasismi enda munu þið aldrei skilja áhrifin og þær alvarlegu afleiðingar sem því geta fylgt að vera þolendur slíks ofbeldis.“

Hún segir að skilgreiningar­valdið sé ekki hjá honum. „Það er því æskilegt að spyrja sig að því hvort skilgreiningar­valdið sé ykkar eða ekki. Því næst væri æskilegt að afneita ekki upplifun þolenda haturs­orðræðu og rasisma og sýna frekar auðmýkt og stuðning í stað þess að vera með tilraun til réttlætis sem gerir nákvæmlega ekkert fyrir neinn og er einungis til þess fallin að gera lítið úr ofbeldinu og afleiðingum þess,“ segir Sema og heldur áfram:

„Að því sögðu hvet ég þig og stuðnings­fólk þitt hér til þess að kynna sér skilgreiningar og birtingar­myndir haturs­orðræðu. Þið munuð þá mögulega sjá að það að uppnefna konu af erlendum uppruna (út frá erlendu ættar­nafni hennar), setja nafn hennar á svarta brúðu og láta hana ganga innan um brennandi kyndla er auðvitað ekkert annað en kven­fyrir­litning og haturs­orðræða.“

Sema vísar svo í almenn hegningarlög og biður Eyjamenn að hugsa um gjörningin í því samhengi:

„Til stuðning er hér grein 233a. í almennum hegningar­lögum. Ef þið sjáið þetta ekki hvet ég ykkur til frekari sjálfs­skoðunar.

„Hver sem opinber­lega hæðist að, rógber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna með ummælum eða annars konar tjáningu, svo sem með myndum eða táknum, vegna [þjóðernis­uppruna eða þjóðlegs uppruna], litar­háttar, kynþáttar, trúar­bragða, [fötlunar, kyneinkenna], kynhneigðar eða kynvitundar, eða breiðir slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi