Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Tíu góð ráð fyrir barnaafmælið

Mat­ar­blogg­ar­inn María Gomez deilir góðum ráðum sem koma sér vel fyrir þá sem eru að halda barna­af­mæli.

Tíu góð ráð fyrir barnaafmælið
|

María Gomez er snill­ingur í að halda veislur og er gest­risin með ein­dæmum. Á dög­unum hélt hún glæsi­legt afmæli fyrir dóttur sína sem varð þriggja ára. Veislan heppn­að­ist afar vel og fengum við því Maríu til að gefa les­endum góð ráð sem ættu að koma sér vel fyrir þá sem eru að fara að halda barna­af­mæli.

„Heima­gert gúmmelaði og þema í takt við áhuga­svið barns­ins er eitt­hvað sem ég legg ríka áherslu á þegar ég held barna­af­mæli,“ segir María.

„Ég spyr kakk­ana mína alltaf hvernig köku þau vilja hafa og fæ oft mjög skýr svör,“ útskýrir María sem sníðir gjarnan afmæl­is­þema í kringum afmæliskök­una sem börnin hennar biðja um. „Það dugir oft að hafa bara köku og serví­ettur í saman þema og þá er þetta komið.“

María tekur fram að það sé óþarfi að flækja hlut­ina. „Mér finnst að fólk eigi að njóta ferl­is­ins og fara sínar leiðir í þessum málum. Ekki láta ýktar veislur, sem sjást oft á sam­fé­lags­miðlum, hafa áhrif á það hvernig þeirra barna­af­mæli á að vera.“

Mér finnst að fólk eigi að njóta ferl­is­ins og fara sínar leiðir í þessum málum.

Með­fylgj­andi eru tíu góð ráð fyrir barna­af­mælið:

1 – Byrjið und­ir­bún­ing­inn snemma, um það bil tveimur vikum fyrr. Þá er gott að vera búin að ákveða hvernig afmælisköku þið ætlið að hafa og svo er til­valið að kaupa diska, skraut og serví­ettur í kringum kök­una.

2 – Byrjið að baka köku­botna og annað sem hægt er að frysta snemma. Ég t.d. gerði litlar kjöt­bollur í viku fyrir afmælið. Þær frysti ég hráar og tók út dag­inn áður og eld­aði á afmæl­is­dag­inn í ofni. Takið svo út köku­botn­ana dag­inn áður og skreytið kvöldið fyrir veisl­una. Það er alveg ótrú­legt hvað þetta léttir lífið að gera þetta svona.

3 – Ekki vera hrædd við að nota til­búið kökumix á borð við Betty Crocker. Það er til gott úrval af slíku kökumixi sem bragð­ast afskap­lega vel.

4 – Ef þið eruð ekki góð í að skreyta kökur má kaupa allskyns sniðugar syk­ur­massa­myndir sem sett er ofan á kök­una. Svo er líka hægt að láta prenta mynd á syk­ur­massa til að setja á kök­una. Þá er líka hægt að kaupa til­búin smjör­krem. Og ekki örvænta þó að kakan líti ekki út eins og hún sé keypt úti í bak­aríi því það er lang­fal­leg­ast að sjá heima­gerðar kökur for­eldra sem gerðu sitt besta til að búa til fína köku handa barn­inu sínu.

Ekki örvænta þó að kakan líti ekki út eins og hún sé keypt úti í bak­aríi.

5 – Ef þið treystið ykkur ekki í köku­bakst­ur­inn sjálf er ekk­ert að því að kaupa til­búna köku og annað hvort skreyta sjálf eða kaupa hana til­búna út í búð.

6 – Hafið meira af heitum réttum en kökum því þeir eru alltaf vin­sæl­astir.

7 – Gerið heitu rétt­ina dag­inn áður ef það er mögu­leiki. Ég mæli samt ekki með að gera rúllutertu­brauð­rétt­ina fyrr en sam­dæg­urs.

8 – Dekkið borðið og skreytið ekki seinna en deg­inum fyrir afmælið.

9 – Leyfið afmæl­is­barn­inu að taka sem mestan þátt í und­ir­bún­ingi og ferl­inu því það gerir ofboðs­lega mikið fyrir barnið. Það skapar fal­legar og góðar minn­ingar.

10 – Að lokum reynið að njóta und­ir­bún­ings­ins. Ef þið gerið þetta allt tím­an­lega þá verður allt ferlið svo miklu skemmti­legra og maður nær að njóta afmæl­is­ins betur.

María deilir hér upp­skrift að bragð­sterkum brauð­rétt sem hún segir full­kom­inn í barna­af­mæli.

Bragðsterkur brauðréttur

Þessi réttur hentar vel í barna­af­mæli.
  • 1 pip­arostur
  • 1 mexico-ostur
  • ca 100 gr rjóma­ostur
  • 4-5 dl mat­reiðsl­urjómi
  • 1 box af sveppir (250 gr)
  • 100 gr pepp­er­oni
  • 1 beikon­bréf
  • 2 dósir sýrður rjómi
  • 1/2 frans­brauð, tætt niður
  • Anan­as­dós
  • Rifinn ostur

Aðferð:

  1. Ostarnir og rjóm­inn eru settir í pott og bræddir, sýrða rjóm­anum síðan hrært saman við.
  2. Rífið brauðið niður og setjið í eld­fast mót.
  3. Sveppir og beikon steikt á pönnu og raðað ofan á brauðið.
  4. Ananas skorin smátt og stráð yfir allt saman
  5. Pepp­er­oni stráð þar ofan á og osta­blönd­unni hellt yfir.
  6. Að lokum er rifnum osti stráð yfir allt og gott er að setja ögn af papr­íku­dufti yfir
  7. Bakað í ofni við 200°c í u.þ.b. 20-30 mín­útur eða þar til allt er orðið gyll­in­brúnt

Mynd af Maríu / Unnur Magna
Mynd af brauð­rétt / María Gomez

Sjá einnig: Kom í jóla­frí til Íslands en snéri ekki til baka

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Annar glæpamannanna hafði sakaferil að baki en hinn hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað
Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Innlent

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

ASÍ ráðleggur fólki að óska eftir staðfestu heildarverði.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu