Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rótgróið viðhorf að hampa dugnaði

Rótgróið viðhorf að hampa dugnaði
Jón Atli Bene­dikts­son er rektor HÍ.

Í umræðum um yfir­stand­andi kjara­deilur Eflingar og Reykja­vík­ur­borgar hefur farið æ meira fyrir þeirri skoðun að ekki beri að meta menntun til launa. Nú síð­ast tjáði Kári Stef­áns­son þá skoðun sína á Pírata­spjall­inu við góðar und­ir­tektir. Hvað finnst for­svars­fólki háskóla­fólks um þessa umræðu? Mannlíf leit­aði svara við því hjá Jóni Atla Bene­dikts­syni, rektor Háskóla Íslands.

„Ég held að við séum á villi­götum sem sam­fé­lag ef við erum farin að trúa því að menntun skipti ekki máli á vinnu­mark­aði og eigi ekki að meta til launa,“ segir hann. „Að mínu mati hefur frekar vantað upp á að háskóla­menntun sé metin almenni­lega til launa en hitt. Fyrir ekki svo löngu síðan birti Hag­stofan tölur sem sýndu að þeir sem hafa ein­göngu lokið grunn­menntun á borð

við stúd­ents­próf séu að jafn­aði með 86% af heild­ar­tekjum þeirra sem hafa lokið háskóla­prófi. Nú skal ég ekki segja um hvort þetta sé lít­ill eða mik­ill munur. En Hag­stofan benti á sama tíma á að þetta sé minni munur en í nokkru öðru Evr­ópu­ríki. Þetta er áhyggju­efni. Við byggjum ekki upp blóm­legt sam­fé­lag nema við höfum yfir að búa vel mennt­uðu og fram­sæknu fólki. Ég held að við ættum miklu frekar að huga að því hvernig hægt er að meta menntun enn frekar með sann­gjörnum hætti til launa heldur en að gera lítið úr mik­il­vægi háskóla­mennt­unar.“

Spurður hvort hann sé sam­mála Þórunni um að það sé þjóðar­í­þrótt á Íslandi að tala menntun niður segir Jón Atli: „Það hefur lengi verið rót­gróið við­horf hér á landi að hampa dugn­aði umfram öðru. Það þarf sann­ar­lega ekki háskóla­próf til að sýna dugnað í vinnu. Tölurnar sem ég vitn­aði til áðan gefa til kynna að við séum kannski viljugri en aðrar þjóðir að horfa til fleiri þátta en háskóla­mennt­unar þegar laun eru metin. Nú er nátt­úr­lega, og kannski eðli­lega, mikil umræða um lægstu launin og skilj­an­legt að for­ystu­fólk stétt­ar­fé­laga lág­launa­hópa berj­ist fyrir bættum kjörum sinna félags­manna. En það er vara­samt að etja fólki eða hópum saman. Auðvitað á að borga fólki mann­sæm­andi laun, til dæmis fyrir umönn­un­ar­störf, en það á líka að meta menntun til launa. Þetta eru ekki ósam­rým­an­leg sjón­ar­mið, að mínu mati.“

„Ég held að við séum á villi­götum sem sam­fé­lag ef við erum farin að trúa því að menntun skipti ekki máli á vinnu­mark­aði og eigi ekki að meta til launa.“

Gröfum undan okkur sjálfum

Í umræð­unni er alltaf talað um að háskóla­menntað fólk þurfi hærri laun vegna taps á líf­eyr­is­rétt­indum á meðan það er í námi og skulda­bagg­ans sem fylgir náms­lán­unum, er menntun sem slík þá einskis virði?

„Auðvitað þarf að taka til­lit til þess að langt háskóla­nám hefur áhrif á ævi­tekj­urnar,“ segir Jón Atli. „Fólk er að mestu leyti tekju­laust á meðan á námi stendur og greiðslu­byrði náms­lána getur verið há. En fyrir mér snýst þetta fyrst og fremst um það hvers konar sam­fé­lag við viljum skapa. Ef við viljum stíga skrefið frá því að vera algjör­lega háð sjáv­ar­út­vegi, stór­iðju og nú síð­ast ferða­þjón­ustu yfir í að vera sam­fé­lag sem byggir á nýsköpun og þekk­ingu, rann­sóknum og vís­indum þá krefst það ein­fald­lega ákveð­innar for­gangs­röð­unar. Það kostar ákveðna fjár­fest­ingu í menntun og við sjáum að nágranna­þjóðir okkar fjár­festa mark­visst í háskóla­stig­inu einmitt til að tryggja slíka fram­tíð­ar­sýn. Ef við gerum lítið úr menntun hvað laun varðar, þá gröfum við undan þess­ari fjár­fest­ingu og gröfum hrein­lega undan okkur sjálfum og hags­munum kom­andi kyn­slóða.“

Sjá einnig: Þjóðar­í­þrótt að tala gildi mennt­unar niður

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi