Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna og Elísa fullyrða að Ingó Veðurguð hafi verið bannaður í félagsmiðstöðvum – Sjáðu svar Samfés

Anna og Elísa fullyrða að Ingó Veðurguð hafi verið bannaður í félagsmiðstöðvum – Sjáðu svar Samfés

Tvær konur hafa stigið fram í opnum færslum á Facebook og tjáð sig um meint brot Ingólfs Þór­ar­ins­sonar eða Ingós Veð­urguðs. Í færslum kvenn­anna kalla þær meðal ann­ars eftir því að Samfés stígi fram og stað­festi það sem þær og fleiri eru að segja, að Ingó hafi verið bann­aður á skemmt­unum á þeirra vegum vegna ósæmi­legrar hegð­unar í garð ungra stúlkna, einmitt í tengslum við slíkar skemmt­anir.

Sjá einnig: Ingó Veðurguð í við­tali við Mannlíf: „Ég ætla ekki að láta eyði­leggja mann­orð mitt“

Elísa Snæ er önnur kvenn­anna og segir hún að fyrir ein­hverjum árum hafi hún unnið í Félags­mið­stöð og þá hafi verið komið bann á það að ákveðin aðili fengi að spila á skemmt­unum fyrir ung­linga. Ástæðan var sú að hann hafi verið þekktur fyrir að sitja fyrir stúlkum á heim­leið og bjóða þeim far heim. Við erum að tala um 13 til 15 ára gamlar stúlkur á leið heim frá skemmtun í félags­mið­stöð­inni sinni, segir Elísa. Færsla Elísu endar svo á þessum orðum: „Það er í raun ótrú­legt að það hafi ein­fald­lega verið hætt að ráða mann­inn, og látið þar við sitja. Segir eflaust meira um breyttan tíð­ar­anda en annað, að við fag­fólk í frí­stunda­starfi höfum ekki farið með málið lengra á sínum tíma. En nú er tím­inn til að færa þetta grund­vallar, lág­marks við­mið aðeins hærra. Ráðum fólk a skemmt­anir sem við erum alla­vega þokka­lega viss um að beiti ekki kyn­ferð­is­of­beldi. Þó fyrr hefði verið. Samfés ég skora á ykkur að koma fram og stað­festa þetta bann við ráðn­ingu á ákveðnum manni“.

Elísa Snæ Mynd af Facebook

Sjá einnig: Þetta er fólkið sem henti Ingó af Þjóð­há­tíð – Nafn­lausar ásak­anir kost­uðu Veð­urguð­inn „giggið“

Anna María Þor­kels­dóttir sem starfar við skóla og frí­stunda­deild Breið­holts hafði meðal ann­ars þetta um málið að segja: „Ég er agn­dofa yfir við­brögðum kvenna við fréttum dags­ins um að ákveð­inn tón­list­ar­maður fái ekki að syngja fyrir framan ara­grúa af ungum stúlkum í sumar eftir að tugir stúlkna eru búnar að lýsa fram­ferði manns­ins gagn­vart þeim. Sumar af þessum konum sem eru að segj­ast ekki styðja þessa ákvörðun eru ömmur og mömmur stúlkna og þær vilja að þær séu í návígi við mann sem hefur lengi verið þekktur fyrir ósæmi­legt atferli. Ein af þeim sem kom fram þurfti að lesa færslu frá ömmu sinni þar sem hún styður þennan mann. Pössum okkur, við vitum ekki hvað dætur okkur og barna­börn hafa lent í, því að það eru fáir sem segja frá af ýmsum ástæðum. Þessi umræða er ekki gripin úr lausu lofti“. Anna María segir að téður maður hafi verið bann­aður á skemmt­unum Samfés vegna þess að hanna var að sýna ung­lingum á aldr­inum 13 til 15 ára ósæmi­lega hegðun. „Hann söng á jóla­skemmtun (þar sem voru yngri börn og for­eldrar þeirra ) um að maður setur tillann inn og setur tillann út og hristir hann svo til (í Hókí Pókí)“.

Færslu Önnu Maríu má sjá í heild sinni hér.

Anna María Þor­kels­dóttir Mynd af Facebook

Mannlíf kallaði eftir viðbrögðum Samfés

Mannlíf setti sig í sam­band við Samfés og spurði út í það hvort téðum tón­list­ar­manni hefði verið mein­aður aðgangur að þeirra við­burðum vegna ósæmi­legrar hegð­unar í garð ungra stúlkna. Svarið frá stjórn Samfés er svo hljóð­andi:

 „Hvað varðar skemmti­krafta á við­burðum Samfés þá hafa full­trúar Ung­menna­ráðs Samfés alltaf valið hverja þau vilja bóka. Við­kom­andi hefur ekki komið fram í þeim umræðum né vali frá árinu 2015 sam­kvæmt vit­neskju núver­andi stjórnar sam­tak­anna og fram­kvæmda­stjóra. Rétt er að taka fram að starfs­fólk félags­mið­stöðva og ung­menna­húsa sjá sjálf um að bóka skemmti­krafta á sína við­burði. Samfés kemur ekki að dag­legu starfi aðild­ar­fé­laga“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi