Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Nara fékk nóg og beit tunguna úr eiginmanni sínum – Kærði íslenska ríkið

Nara fékk nóg og beit tunguna úr eiginmanni sínum – Kærði íslenska ríkið

Að kvöldi 9. nóv­em­ber 2017 beit hin ástr­alska Nara Walker tungu fransks eig­in­manns síns í sundur. Þau höfðu verið búsett hér á landi í eitt ár, þar sem maður hennar hafði þáð starf, þegar umrætt atvik átti sér stað. Hún var dæmd til 12 mán­aða fang­els­is­dóms í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir lík­ams­árás og stór­fellt ofbeld­is­brot í nánu sam­bandi en níu mán­uðir voru skil­orðs­bundnir.

Fórnarlamb ofbeldis

Í kjöl­farið fór af stað mikil umræða í þjóð­fé­lag­inu um rétt­mæti dóms­ins en Nara hélt því fram statt og stöðugt að hún hefði margoft verið fórn­ar­lamb and­legs, lík­am­legs og kyn­ferð­is­legt ofbeldis af hálfu eig­in­manns síns. Hún kom fram í fjölda blaða­við­tala og sagði ofbeldið hafa haf­ist frá því fljót­lega eftir að sam­band þeirra hófst

Nara kynnt­ist manni sínum þegar hún var í háskóla­námi í Ástralíu og sagði hann hafa spilað með sig frá upp­hafi. Hún taldi hann hafa skynjað að hún kom úr fjöl­skyldu sem lituð var ofbeldi og því útsett­ari fyrir hegðun hans en ella. „Hann er franskur, hávax­inn, hraustur og sex árum eldri en ég og í dag líður mér eins og ég hafi verið veidd. Hann kunni að spila á veik­leika mína og bak­grunn minn og til þess að gera langa sögu stutta end­aði það með því að við byrj­uðum saman og allt frá upp­hafi var til staðar þetta sál­ræna ofbeldi þar sem það var gefið og tekið á víxl og allt sner­ist um að ná fullri stjórn á ein­stak­lingnum,“ sagði hún síðar í við­tali við Mannlíf.

Föst í vítahring einangrunar

Hún sagð­ist hafa sog­ast inn í ofbeld­is­sam­band án þess að gera sér grein fyrir því og stig­magn­að­ist ofbeldið stöðugt. Hún sagð­ist hafa verið föst í víta­hring ein­angr­unar og ofbeldis enda hafi maður hennar kerf­is­bundið rofið tengsla­net hennar.

Nara sagði mann sinn alltaf gætt sig á að berja hana í brjóst- og kvið­ar­hol svo áverk­arnir væru síður sýni­legir.

Hún sagði ofbeldið hafa haldið áfram á Íslandi og lýsti atburðum kvölds­ins sem svo að umrætt kvöld hafi þau hjón verið úti að skemmta sér ásamt íslenskri vin­konu þeirra hjóna og banda­rískum ferða­manni sem þau hafi ving­ast við. Nara telur umrædda konu hafa verið ást­konu eig­in­manns síns og þau hafi bæði verið í fíkni­efna­notkun. Eftir úti­ver­una á skemmt­ana­líf­inu héldu þau heim til þeirra þar sem eig­in­mað­ur­inn og íslenska konan hófu ást­ar­at­lot og sagð­ist Nara hafa kysst Banda­ríkja­mann­inn til að jafna sak­irnar. Í kjöl­farið urðu átök sem urðu til þess að Banda­ríkja­mað­ur­inn hélt á brott eftir að eig­in­mað­ur­inn henti honum niður stiga.

Fimmtán tíma í fangaklefa

Í kjöl­far átak­anna vildi Nara yfir­gefa íbúð­ina en haml­aði eig­in­maður hennar því, kýldi hana svo ítrekað að hún ótt­að­ist um líf sitt og reyndi að kyssa hana. Hún sagð­ist hafa orðið stjörf af hræðslu og bitið í tungu hans í ótta sínum. Hún taldi enn­fremur að eig­in­maður hennar hefði byrlað henni eit­ur­lyf umrætt kvöld sem hafi orðið til þess að hún hafi ekki fundið fyrir tungu hans.

Lögregla var kvödd til og ásak­aði eig­in­maður Nöru hana strax um lík­ams­árás sem hún seg­ist hafa mót­mælt þar sem hún hefði verið þol­and­inn. Íslenska konan studdi fram­burð eig­in­manns­ins.

Fjöldi manns mótmælti

Nara var járnuð, hand­tek­inn, og sat í 15 tíma í fanga­klefa áður en hún var yfir­heyrð. Hún sagð­ist allanb tím­ann sem hún sat í gæslu­varð­haldi hafa verið viss um að hún yrði sýknuð þar sem hún hefði verið fórn­ar­lamb langvar­andi ofbeldis.

Svo fór þó ekki og var Nara dæmd í 12 mán­aða fang­elsi sem Lands­réttur þyngdi í 18 mán­uði, þar af 15 mán­uði skil­orðs­bundna. Und­ir­skrift­ar­listi var sendur til Alþingis til styrktar Nöru og söfn­uð­ust 43 þús­und und­ir­skriftir.

Nara Walker kærði síðar íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Hún er enn búsett á Íslandi og starfar sem lista­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ