Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Kári myndar fyrir stóru tískutímaritin: „Ég hef fengið milljón nei en gafst aldrei upp“

Kári myndar fyrir stóru tískutímaritin: „Ég hef fengið milljón nei en gafst aldrei upp“

„Það er auð­vitað brjáluð sam­keppni í þessum bransa. En númer eitt, tvo og þrjú er að hafa hug­sjón, sjá hvert maður ætlar og hvernig maður hyggst kom­ast þangað. Ég hef fengið milljón nei en gafst aldrei upp,“ segir Kári Sverriss, ljós­mynd­ari sem hefur myndað fyrir heims­þekkt vöru­merki og tísku­blöð á við Elle, Harper´s Baazar og Glamour.

Gerist ekki af sjálfu sér

Kári tók nokkur ár til að byggja sér upp möppu til að koma sér á fram­færi við stóru nöfnin í brans­anum. „Þetta er ótrú­lega mikil vinna en ef maður hefur hug­sjón og draum á maður að fylgja því eftir. Þetta ger­ist ekki af sjálfu sér”.

Kári seg­ist hafa unnið nán­ast kaup­laust fyrir stóru blöðin í upp­hafi en þá hafi fólk smám saman að taka eftir honum. „Það þarf ekki nema einn réttan aðila og þá er bolt­inn far­inn að rúlla. Og það eru þessi stóru tíma­rit sem geta komið manni á fram­færi í alvöru“.

Kári bjó í Þýska­landi í þrjú ár og hefur verið þar með annan fót­inn auk þess sem að ferð­ast út um allan heim við mynda­tökur. Hann hefur meðal ann­ars flakkað á milli London, Parísar, Mílanó, Cape Town og er nú nýkomin frá Barcelona þar sem hann dvaldi í mánuð að mynda fyrir Yamaha svo og snyrti­vöruris­ann Eucerin. Meðal merkja höf­uð­stöðva Eurcerin eru Nivea, La Praire, Bobbi Brown og Labello, svo fátt eitt sé nefnt.

Sígeyspandi með dívustæla

„Ég hef náð að skapa mér nafn í Þýska­landi og er með stóran og góðan hóp við­skipta­vina þar. Þjóð­verjarnir hugsa líka vel um mann, þeir borga vel og eru með flotta hönn­uði og stílista sem ég kýs að vinna með. Það er líka mörg stór­fyr­ir­tæki með höf­uð­stöðvar í Þýska­landi og það er geggjað að fá að ferð­ast um heim­inn fyrir þau.

Aðspurður um hvort fyr­ir­sætur eigi það til að sýna dívu­stæla segir Kári það koma fyrir en ekki oft. „Ég hef núna verið að vinna með fimm fyr­ir­sætum í bók sem ég er að fara að gefa út og ein þeirra var með gríð­ar­lega dívu­stæla, sígeyspandi og kvart­andi yfir hvað allt væri erfitt. Hinar fjórar voru ekk­ert nema ynd­is­legar. Ein þeirra, Meghan Collison, er kanadísk súper­fyr­ir­sæta sem hefur komið fram yfir 20 sinnum í Vouge og var hreint ótrú­leg. Við vorum að mynda rétt fyrir ofan frost­mark, í dún­úlpum með húfur á meðan hún lét mynda sig í þunnum kjólum og kvart­aði aldrei nokkurn tíma“.

Fyrirsætur af öllum stærðum og gerðum

Kári seg­ist sjá mikla breyt­ingu á teg­und fyr­ir­sæta frá því hann hóf sin feril. „Allur brans­inn er að breyt­ast, sem er gott. Það er til dæmis ekk­ert lengur til sem heitir „plus size”. Ég var nýlega að mynda her­ferð sem heitir Generations, eða Kyn­slóðir, og mynd­aði mæðgur, vin­konur, ömmur með barna­börnin sín og bara alls konar fólk, á öllum aldri, stærðum og gerðum. Margar þeirra voru auð­vitað stress­aðar en þá er líka svo gott að hafa gott teymi með sér, til dæmis í hári og förðun því orkan á sett­inu skiptir svo miklu máli og maður þarf að vera svo­lít­ill sál­fræð­ingur í sér til að allt gangi upp. En það var svo gaman að sjá hvað þær voru allar glaðar með útkom­una.

Kári er kom­inn á þann stað í ferli sínu að geta valið sér verk­efni. „Ég er eng­inn diva en get leyft mér að velja þau verk­efni sem ég kýs að taka. Ég er klofin per­sónu­leiki, finnst til dæmis rosa­lega gaman af að mynda mat og auð­vitað er dásam­lega gaman að mynda fólk en ég er minna fyrir nátt­úru­mynda­töku. Í enda dags gefur það mest að ganga ánægður frá verk­efn­inu, að allir í teym­inu séu ánægðir og útkoman eins og ég sá hana fyrir mér“.

Aldrei gefast upp

Næst á dag­skrá hjá Kára er ljós­mynda­bók. Hann vill ekki gefa of mikið upp um efnið en þemað er seventís ára­tug­ur­inn frá a til ö og er hann á kafi að vinna í henni þessa dag­ana. „Þar verður að finna fólk, eðlur, svín og hestar svo fátt eitt sé nefnt”.

Hefur Kári ráð til ungs fólks sem leggur hug á ljós­myndun? „Ég mæli alltaf með að fara í nám og er sjálfur að kenna í Ljós­mynda­skól­anum. Finnið út hvað ykkur finnst sjálfum flott hvort sem það er tíska, lands­lag eða matur. Æfið ykkur enda­laust og aldrei gef­ast upp,“ segir Kári Sverriss.

Myndir Kára má meðal ann­ars sjá hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una