Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Í fréttum var þetta helst – Veikindi, vefja, Efling og fleiri sögur

Í fréttum var þetta helst – Veikindi, vefja, Efling og fleiri sögur
Samsett mynd

Veik­inda­leyfi Krist­jáns fram­lengt um þrjár vikur: „Hoppandi út um allar koppa­grundir á okkar kostnað“

Kristján Þór Magn­ús­son

Eins og Mannlíf greindi fyrst frá er Kristján Þór Magn­ús­son, sveit­ar­stjóri Norð­ur­þings, í veik­inda­leyfi af ótil­greindum ástæðum. Veik­inda­leyfi hans hefur nú verið fram­lengt.

Kristján Þór er kvæntur fyrr­ver­andi fjöl­miðla­kon­unni Guðrúnu Dís Emils­dóttur, en eins og Mannlíf greindi frá þá herma heim­ildir að hún sé að pakka niður og und­ir­búa flutn­ing frá Húsavík.

Guðrún Dís Emils­dóttir

Tekið skal fram að Mannlíf hefur ekki fengið stað­fest hvað veldur því að hún hyggst flytja á brott. Í sam­tali við blaða­mann Mannlífs vildi Guðrún Dís ekki stað­festa hver ástæðan væri.

Stefán Guð­munds­son, eig­andi hvala­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Gentle Giants á Húsavík, sagði eft­ir­far­andi í frétt Mannlífs sem virð­ist renna stoðum undir að eitt­hvert ólag sé á einka­lífi Krist­jáns Þórs:

„Enda býsna fjöl­breytt að því er virð­ist á hvaða for­sendum starfs­menn stjórn­lauss stjórn­sýslu­húss­ins fara í svo­kallað veik­inda­leyfi und­an­farnar vikur á fullum launum eftir því sem mér skilst best og mán­uðum saman … og gjarnan tengt svo­kall­aðri „kulnun“ í starfi. En eru um leið hopp­andi og skopp­andi út um allar koppa­grundir á okkar kostnað. Svo er hitt. Sumir virð­ast ekki geta skilið á milli póli­tíkur og einka­mála. Hafa ekk­ert endi­lega greind eða vilja til þess. Þá verður gjarnan til hræri­grautur skrít­inna til­finn­inga og skoð­ana­skipta. Skoðun mín á bæj­ar­stjóra og hans fram­göngu und­an­farin ár er óbreytt. Meira síðar. En ef hann á um sárt að binda í sínu einka­lífi og veik­inda­leyfi – þá óska ég honum alls hins besta og góðs bata.“

Sjá alla frétt­ina: Veik­inda­leyfi Krist­jáns fram­lengt um 3 vikur: „Hoppandi út um allar koppa­grundir á okkar kostnað“

Reynir og nafn­lausa blaða­konan: „Fæ oft skila­boð í þessum dúr frá vin­konum sem ég hef sofið hjá“

„Reglu­lega fæ ég skila­boð í þessum dúr frá gömlum vin­konum sem ég hef sofið hjá eitt­hver­tíman á lífs­leið­inni … Þar sem þær eru spurðar um kyn­lífið með mér eða hvort við höfum sofið saman“

Þannig hefst pist­ill Reynis Bergmann, eig­anda veit­inga­stað­ar­ins Vefj­unnar, sem hann birti á Facebook-síðu sinni fyrir nokkru.

Pistli Reynis fylgja skjá­skot sem hann segir koma frá vin­konu sinni og inni­haldi send­ingar frá ónefndri blaða­konu til hennar. Auk þess eru með­fylgj­andi skjá­skot af spjalli Reynis við vin­kon­una í gegnum sam­skipta­for­ritið Snapchat, þar sem kemur fram að hún heiti Guðrún.

Skjáskot af spjalli Reynis og Guðrúnar á Snapchat.

Samtal Reynis og Guðrúnar á Snapchat:

Guðrún:

„Hvað seigir fræg­asti vinur minn ?“ 

Reynir:

„Frægasti ojjj þetta orð

Nei ann­ars er ég bara flenni fín en hvernig er Gunnsan mín ?“ 

Guðrún:

„Haha bara stríða þér

En mig langar að seigja þér eitt það var stelpa að senda mér skila­boð og reyna að spurja mig hvort þú hafir verið vondur við mig eitt­hver­tíman haha“ 

Reynir:

„Haaa ? Ertu ekki að djóka eitt­hvað að þessu me2 hreyf­ingu kannski ? Þetta er vel þreytt

Þeir/þær/það eru búnin að senda á fleirri vin­konur mínar sem ég hef sofið hjá og nán­ast beðið þær um að finna eitt­hvað til að kæra mig og koma fram obin­ber­lega sjúkasta sem ég hef séð bara til að níð­ast á mer af því eg sagði ovart fukk you bla bla

Má ég spyrja áttu þetta viltu senda mer það

Gunnsa plís það þarf að stoppa þessa plön­uðu glæpa­vinnu­brögð hjá þeim á fólk sem á það ekki skilið“

Sjá alla frétt­ina: Reynir og nafn­lausa blaða­konan: „Fæ oft skila­boð í þessum dúr frá vin­konum sem ég hef sofið hjá“

Tvær sögur af Þóri Sæmunds­syni: „Hann vissi allan tím­ann að hann var að tala við barn“

Þórir Sæmunds­son. Mynd/skjá­skot RÚV

„Ég var 17 ára þegar hann byrj­aði að senda óvið­eig­andi skila­boð á Facebook,“ segir í frá­sögn ungrar konu sem lýsir þar reynslu sinni af sam­skiptum við Þóri Sæmunds­son, sem kom fram í við­tali í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik í gær. Mannlíf fékk sög­una senda og er hún birt með góð­fús­legu leyfi kon­unnar.

Eft­ir­far­andi frá­sagnir eru ein­hliða og því birtar með fyr­ir­vara. Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir náð­ist ekki í Þóri Sæmunds­son við vinnslu frétt­ar­innar.

Konan segir frá því hvernig þau Þórir hafi á þessum tíma leikið saman í sýn­ingu. Þar var hann í aðal­hlut­verki en hún til­heyrði barna­hópi í leik­rit­inu og var, eins og áður sagði, enn barn­ung þegar sam­skipti þeirra hófust.

Hún segir frá því hvernig hún hafi seinna meir hitt hann á bar og farið heim með honum, þá orðin 18 ára gömul. Þau hafi í fram­hald­inu sofið saman.

„Þar sagði hann meðal ann­ars að ég væri svo ung og sak­laus.“

Hún lýsir því hvernig hann hafi seinna fal­ast eftir því við hana og aðra stúlku, þá 17 ára, að þær kæmu heim með honum og þau færu í tre­k­ant (threesome). Hann hafi reynt að selja hug­mynd­ina með því að segja stelp­unum að hann ætti mjög mikið af grasi.

Stuttu seinna hafi hún og tvær vin­konur hennar, þær allar á aldr­inum 17-18 ára, átt í Snapchat-sam­skiptum við Þóri, þar sem hún segir hann ýmist hafa sent myndir af typp­inu á sér eða beðið þær um að koma til sín í kyn­lífs­orgíu (foursome).

„Á þessum tíma var ég mjög ung og leit upp til eldri og reynd­ari manns sem naut virð­ingar í leik­húsi og sjón­varpi og var upp með mér að fá athygli frá honum og að hann vildi sofa hjá mér. En þegar ég lít til baka núna finnst mér þetta allt mjög ógeðs­legt og að hugsa til þess að ég hafi verið rétt skriðin yfir 17 ára aldur og varla komin með brjóst eða búin með kyn­þrosk­ann.“

Sjá alla frétt­ina: Tvær sögur af Þóri Sæmunds­syni: „Hann vissi allan tím­ann að hann var að tala við barn“

Sólveig tjáir sig um hót­anir: „Kallaði mig alltaf „kon­una“ þegar hann var að úthúða mér sem fífli“

Sólveig Anna Jóns­dóttir.

Frá því að Sólveig Anna Jóns­dóttir ákvað frá að hverfa sem for­maður Eflingar hefur hún gefið út sex yfir­lýs­ingar á Facebook-síðu sinni.

Þær snerta allar brott­hvarf hennar og þær ástæður sem hún segir liggja þar að baki. Sömu­leiðis fjalla þær um átök og deilur innan skrif­stofu Eflingar.

Sólveig Anna hefur ekki enn viljað tala beint við fjöl­miðla. Hún hafn­aði því til að mynda að mæta í Kastljós fyrir nokkru.

Í nýj­ustu yfir­lýs­ingu sinni kemur Sólveig meðal ann­ars inn á þær hót­anir sem hún seg­ist hafa orðið fyrir af hálfu starfs­manns Eflingar.

„Í ályktun trún­að­ar­manna starfs­fólks skrif­stofu Eflingar frá því í sumar var því haldið fram að ég hefði stöðugt í hyggju eða væri búin að fram­kvæma fyr­ir­vara­lausar upp­sagnir.

Fyr­ir­vara­laus upp­sögn er talið mjög alvar­legt brot á launa­manni hafi atvinnu­rek­andi ekki fyrir henni mjög góðar ástæður svo sem að launa­maður hafi sýnt stór­kost­legt gáleysi, hafi rækt störf sín með veru­lega ófull­nægj­andi hætti eða gerst alvar­lega brot­legur í starfi,“ segir Sólveig Anna í sjöttu yfir­lýs­ingu sinni sem hún birti á Facebook-síðu sinni.

„Ég hugsa að ég hefði getað fram­kvæmt fyr­ir­vara­lausa upp­sögn á þeim manni sem hót­aði því að koma heim til mín og gera mér mein þegar ég fékk um hót­un­ina vit­neskju 13. októ­ber síð­ast­lið­inn. Það gerði ég þó ekki. Hann var ekki einu sinni áminntur.

Hvers vegna ákvað ég að gera ekk­ert? Vegna þess að mér var til­kynnt að mann­eskjan sem hann upp­lýsti um lang­anir sínar til að fara heim til mín og gera mér illt (sem hann myndi kom­ast upp með vegna þess að hann væri með hreina saka­skrá og yrði því ekki dæmdur til fang­els­is­vistar) vildi ekki, þrátt fyrir að vera svo brugðið við orð þess sem hót­aði að hún leit­aði með áhyggjur sínar til ann­ars trún­að­ar­manns starfs­fólks skrif­stof­unnar og alla­vega eins ann­ars starfs­manns, standa með mér vegna þess að hún vildi „vernda vinnu­sam­band sitt sam­starfs­fé­laga sinn til margra ára“.

Smelltu hér til að lesa brak­andi feskt helg­ar­blaðið eða flettu því hér fyrir neðan:

Sjá alla frétt­ina: Sólveig tjáir sig um hót­anir: „Kallaði mig alltaf „kon­una“ þegar hann var að úthúða mér sem fífli“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð