Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

FIFA horfir til Íslands: Alþjóðleg rannsókn á máli Þórhildar Gyðu og KSÍ

Siða­nefnd FIFA, Alþjóða knatt­spyrnu­sam­bands­ins, rann­sakar nú við­brögð og fram­komu Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands í máli þar sem Þór­hildur Gyða Arn­ars­dóttir kærði lands­liðs­mann­inn Kolbein Sig­þórs­son fyrir ofbeldi gegn sér árið 2017.

Þetta herma heim­ildir Mannlífs. Samkvæmt þeim á Þórhildi Gyðu að hafa borist fyr­ir­spurnir frá FIFA um málið.

Á málið að hafa yfir sér þann blæ að um sé að ræða rann­sókn á því hvort KSÍ hafi haft óeðli­leg afskipti af mál­inu og þaggað það niður með ein­hverjum hætti.

Blaða­maður Mannlífs hafði sam­band við Þórhildi Gyðu en hún vildi ekki tjá sig um málið. Lögmaður hennar, Gunnar Ingi Jóhanns­son vildi heldur ekki tjá sig efn­is­lega um fyr­ir­spurn blaða­manns. Hann sagð­ist hvorki geta stað­fest né neitað því að umrædd rann­sókn væri í gangi, né heldur hvort Þórhildi Gyðu hefði borist fyr­ir­spurnir frá FIFA. Ef svo væri, hlyti að vera um trún­að­ar­mál að ræða.

„Ég get ekki stað­fest eða neitað fyrir það að slíkt hafi borist en efni þess væri þá vænt­an­lega trún­að­ar­mál,“ sagði Gunnar Ingi.

Árið 2017 kærðu þær Þór­hildur Gyða Arn­ars­dóttir og Jóhanna Helga Jens­dóttir Kolbein Sig­þórs­son, lands­liðs­mann í fót­bolta, fyrir ofbeld­is­brot gegn þeim. Stjórn KSÍ var upp­lýst um málið. Komið var á sátta­fundi á sínum tíma þar sem Kolbeinn sam­þykkti að greiða út bætur vegna máls­ins gegn því að kær­urnar yrðu felldar niður.

Þór­hildur Gyða greindi frá mál­inu í sumar eftir að Guðni Bergsson, fyrrum for­maður KSÍ, hafði sagt frá því í Kast­ljósi að sam­band­inu hefði aldrei borist erindi vegna ofbeldis lands­liðs­manna. Þór­hildur Gyða sagði meðal ann­ars frá því að henni hefði á sínum tíma verið boðið á fund með stjórn­ar­með­limum KSÍ og til­teknum lands­liðs­manni, þar sem bera átti undir hana þagn­ar­skyldu­samn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið í vikunni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

„Lífið er svo miklu betra með þér“
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu