Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Vísbendingar um nýjan fentanyl-faraldur – Lyfjatengdum andlátum hefur fjölgað um 47% hjá 30-44 ára

Vísbendingar um nýjan fentanyl-faraldur – Lyfjatengdum andlátum hefur fjölgað um 47% hjá 30-44 ára
Hin ýmsu form fent­anyls Mynd: biotage.com

Vís­bend­ingar eru um að fent­anyl far­aldur sé haf­inn á Íslandi. Hvergi á Norð­ur­lönd­unum er verslað jafn mikið af ópíóð­íum en á Íslandi. Í ald­urs­hópnum 30-44 ára hafa lyfja­tengd and­lát auk­ist um 47% á milli 2011-2015 og 2016-2020.

Sjá einnig: Fentanyl far­aldur á Íslandi segir sprautu­fík­ill: „Fentanyl er svaka­leg­asti morð­ing­inn á göt­unni“

Áður en lengra er haldið er best að skoða hvað ópíóíða-lyf eru. Eft­ir­far­andi texti er úr Talna­brunni, frétta­bréfi Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins um heil­brigð­is­upp­lýs­ingar, sem kom út í mars á þessu ári.

Ópíóíðar falla í flokk ávana- og fíkni­lyfja en lang­tíma notkun þeirra getur valdið því að not­and­inn verður háður lyfj­unum vegna vana­bind­ingar eða lík­am­legrar fíknar. Auk þess að vera mjög ávana­bind­andi, geta of stórir skammtar ópíóíða verið lífs­hættu­legir vegna bælandi áhrifa sem þeir hafa á þann hluta heil­ans sem stýrir öndun. Of stórir skammtar geta því valdið önd­un­ar­stoppi og dauða. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Lyfja­stofnun sem Mannlíf fékk í hend­urnar, er árleg sala fent­anyl-lyfja minni árin 2017-2021 en árið 2016 þegar salan náði hámarki en nú má þó merkja tals­verða aukn­ingu í söl­unni eins og sjá má á mynd­inni fyrir neðan:

Grafið sýnir fjölda skil­greindra dag­skammta sem seldir eru frá lyfja­heild­sölum á dag fyrir hverja 1.000 íbúa. Graf: Lyfja­stofnun.

Eins og sést á graf­inu er salan orðin álíka mikil nú og hún var árið 2013 en hún hefur hækkað um rúm 10% milli áranna 2020 og 2021.

Ef bornar eru saman sölu­tölur á almennum ópíóíðum á Íslandi, við sölu­tölur á Norð­ur­lönd­unum, sést að Ísland gnæfir yfir frændur sínar og frænkur. Þó að kaup á almennum ópíóíðum hafi fækkað tölu­vert á und­an­förnum árum á Ísland enn lagt í land með að ná öðrum Norð­ur­löndum.

Ísland ber af í ópíóíða­notkun á Norð­ur­lönd­unum. Graf: Lyfja­stofnun

Eins og sést á graf­inu sést að salan minnk­aði milli áranna 2019 og 2020 en ef litið er á nýlegri tölur má sjá að fjölgun hefur orðið aftur á sölu ópíóíðum á Íslandi.

Talsverð aukn­ing hefur orðið á sölu ópíóíð-lyfja á Íslandi sam­kvæmt nýj­ustu tölum.

Líkt og sést á mynd­inni hér fyrir ofan má sjá að kven­kyns kaup­endur lyfj­anna eru fleiri en karl­kyns kaup­endur. Í frétta­blaði Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins sem minnst er á að ofan segir að eftir sam­drátt síð­ustu ára hafi nú orðið lít­ils­háttar fjölgun ein­stak­linga sem leystu út ópíóíð-lyf eða frá 157/1.000 íbúa 2020 í 166/1.000 íbúa 2021. Þetta sam­svarar því að ríf­lega 61 þús­und ein­stak­lingar hafi leyst út að minnsta kosti eina ávísun á ópíóíða á árinu 2021 sam­an­borið við ríf­lega 57 þús­und árið áður.  

Mannlíf hafði sam­band við lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og spurði hana út í lyfja­tengd dauðs­föll á Íslandi. Sagði full­trú­inn að full­snemmt sé að tala um fjölgun er segir þó að lög­reglan hafi fengið nokkur slík mál inn á borð þeirra að und­an­förnu.

„Hvað varðar lyfja­tengd dauðs­föll á Íslandi það sem af er ári 2022, myndi ég vilja segja að enn sé of snemmt að tala um fjölgun – við sjáum reglu­lega sveiflur í þessum fjölda sem stundum jafnar sig svo út með tím­anum. Þá liggja nið­ur­stöður krufn­inga ekki fyrir en það getur tekið allt að hálfu ári að fá krufn­ing­ar­skýrslur í mál­unum. Hins vegar er rétt að við höfum á stuttum tíma fengið nokkur slík mál inn á borð til okkar án þess að geta farið frekar út í þau mál.“

Mannlíf spurði full­trú­ann einnig að sölu og dreif­ingu á fent­anyl og skyldum lyfjum, á svarta mark­aðnum.

„Varðandi sölu og dreif­ingu þá er og hefur verið tals­vert um sölu á lyfjum. Þetta er ýmist lyf sem flutt eru inn til lands­ins sem og lyf sem ein­stak­lingar eru að selja eftir að hafa orðið sér út um þessi lyf m.a. hjá ein­stak­lingum sem hafa fengið þessum lyfjum ávísað á sig. Það er allur gangur á því og stundum á það ekki við.“

Mannlíf fékk töl­fræði­sér­fræð­ing til þess að rýna í tölur frá Land­lækn­is­emb­ætt­inu er snúa að lyfja­tengd and­lát á Íslandi frá árinu 2011.

Lyfja­tengd dán­ar­tíðni Gögn unnir úr tölum Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins

Þetta eru lyfja­tengd and­lát á 100.000 íbúa niður á ald­urs­bil. Töl­fræð­ing­ur­inn tók með­al­tal áranna 2011-2015 og 2016-2020. Þar sést að lyfja­tengd and­lát hafa auk­ist um 80% í ald­urs­hópnum 18-29 ára , úr 6,7 í 12,1 and­lát á hverja 100.000 íbúa. Breyt­ingin á milli áranna 2020 og 2019 er þó minnkun um 60% á milli ára í sama ald­urs­hópi, úr 15,4 í 6,2 and­lát.

Í ald­urs­hópnum 30-44 ára hafa lyfja­tengd and­lát auk­ist um 47% á milli 2011-2015 og 2016-2020, úr 11,9 í 17,5 and­lát á hverja 100.000 íbúa og auk­ist um 29% á milli 2019 til 2020, úr 15,8 í 20,4 and­lát á hverja 100.000 íbúa.

Áhuga­vert verður að skoða tölur varð­andi lyfja­tengd and­lát fyrir árið 2021 en þær eru ekki komnar frá Land­lækna­emb­ætt­inu. Ef marka má fjölg­un­ina á sölu ópíóíða-lyfjum síð­asta ár, má búast við fjölgun á lyfja­tengdum and­látum.

Mannlíf mun á næst­unni rann­saka svarta mark­að­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina