Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Bjarni greindist með hjartabilun: „Fannst áhugavert að vera með myndir innan úr mér“

Bjarni greindist með hjartabilun: „Fannst áhugavert að vera með myndir innan úr mér“
Bjarni Sig­ur­björns­son mynd­lista­maður. Ljós­mynd­ari: Róbert Trausta­son

„Hold og lík­ami hafa alla tíð verið mér mjög hug­leikin í list­inni og lít ég mikið til sögu mál­verks­ins út frá því, allt frá Titian og Rembrandt til þess sem er verið að gera í dag,“ segir hinn góð­kunni mynd­list­ar­maður Bjarni Sig­ur­björns­son sem við hittum í sér­lega ánægju­legu og ein­lægu spjalli.

Bjarni hefur upp á síðkastið feng­ist við verk­efni sem hann kallar Hug­ar­hold, fag­ur­ræði og lík­ams­vit­und. Verk­efnið samstendur af sex stórum verkum sem er um þrír metrar á kant ásamt fleiri smærri verkum. Einnig er í smíðum bók með við­tölum sem hann hefur tekið við valda ein­stak­linga með ólík sér­svið; hjarta­skurð­lækni, prest, sál­fræð­ing, heim­spek­ing, jógagúru og list­fræð­ing „sem allir eru með einum eða öðrum hætti að fást við til­gang og merk­ingu okkar vit­und­ar­lífs sem lík­ams­verur og hvernig fag­ur­fræði­leg gildi tvinn­ast inn í það.“

Áhuga­vert að vera með myndir innan úr mér
Bjarni greind­ist með hjarta­bilun í byrjun árs 2020 og fór í ýmsar rann­sóknir og þar á meðal seg­u­l­óm­myndir af brjóst­holi.

„Ég fékk leyfi til að fá þessar myndir í tölvu­tæku formi og mér fannst mynd­irnar ein­stak­lega spenn­andi. Einnig fannst mér áhuga­vert að vera með myndir innan úr mér, sem ég gæti að öðrum kosti aldrei séð. Það sem kemur upp í hug­ann eru spurn­ingar eins og hver er ég?

Hvert er mitt innsta eðli og hvað veldur því að við getum í raun ekki séð inn í okkar eigin lík­ama? Og þar af leið­andi minn lík­ama. Er ég þá ekki að aðskilja lík­amann að vissu leyti frá „sjálfum“ mér?“

Seg­u­l­óm­myndir nást með því að dæla svoköll­uðu skugga­efni inn í lík­amann og þannig má segja að í gegnum skugga­efni teikn­ist líf­færin fram. Það að teikna eitt­hvað fram með skugga og það að skera inn í það sem; „ég kalla hold heims­ins, (hug­tak tekið frá Marleu Ponty  – „Flesh of the World“).

Bjarni segir að fyrir honum sé málar­inn ein­hver sem skynjar með lík­am­anum og er mál­verkið hold­gerv­ingur athafna mál­ar­ans. Málarinn ljær heim­inum lík­ama sinn og breytir heim­inum í mál­verk.

„Þótt verk mín séu iðu­lega skil­greind sem abstrakt og að þar sé ekki að finna fígura­sjón, þá eru verkin frekar fyrir mér eins og lík­amar án skil­grein­inga. Þar sem hefð­bundin tengsl bak­grunns og for­grunns í hefð­bundnu fígura­tífu mál­verki hverfa. Hin hreina hug­lægni abstrakts­ins á ekki við þar sem lík­am­inn er alltaf til staðar.“

Frjáls andi skól­ans
Bjarni er búsettur í Kópavogi þar sem hann starf­rækir vinnu­stofu sam­hliða list­inni. Hann heldur úti nám­skeiðum í mynd­list ásamt konu sinni, Ragn­heiði Guð­munds­dóttur, starf­andi mynd­list­ar­manni.

Bjarni fór til Kali­forníu í nám í mynd­list, nánar til tekið San Francisco Art Institute, eftir nám í Mynd­lista- og hand­íða­skól­anum. Hann var í San Francisco  árin 1990-1996 og útskrif­að­ist þaðan með bæði BFA- og MFA-gráðu í mynd­list.

„Frjáls andi skól­ans, sem um leið var mjög beittur þegar kom að gagn­rýni og allri umræðu um listir, var gott vega­nesti fyrir þau sjálf­stæðu vinnu­brögð og skipu­lag sem lista­maður þarf að til­einka sér.“

Þegar hann kom aftur heim byrj­aði sýn­ing­ar­hald á fullu og hefur hann unnið mikið með stórar flæð­andi myndir mál­aðar á plex­i­gler og vildi með því losa mál­verkið frá blindramm­anum og flet­inum.

„Spurn­ingar um við­fang, form og aðferð­ar­fræði hafa alla tíð verið stór þáttur í list­rænu ferli mínu, bæði í þróun verk­anna og mín sem lista­manns. Með því að brjóta upp hefð­bundin efn­is­tök og finna nýjar leiðir að því sem mál­verk stendur fyrir, bæði sem hlutur og vett­vangur hug­renn­inga og tján­ingar.“

Vett­vangur þess að lifa án örygg­is­nets
Blaða­maður spyr hvað hafi orðið til þess að hann hafi farið þessa leið, þá segir Bjarni: „Það var ekki eitt­hvað sér­stakt sem varð til þess að ég fór að vinna eða helga mig list­inni. Það var frekar þannig að það var og er hjá mér knýj­andi þörf að fást við skap­andi verk­svið þar sem ég er ekki að vinna inn í ákveð­inn fyr­ir­fram­gefnum ramma eða sam­fé­lags­legu reglu­verki. Mér fannst heill­andi allt frá því ég var barn og ung­lingur að kanna mörk þeirra gilda sem við gefum okkur og til­gang þess að vera til. Ég átti erfitt með að sjá til­gang í því að lífið væri ein­ungis fólgið í því að vinna fyrir sér til að við­halda sjálfum sér og því sam­fé­lagi sem maður fæð­ist inn í, eftir þeim kerfum sem til staðar eru og er að vissu leyti þröngvað upp á þig strax við komu þína í heim­inn. Listin er vett­vangur þess að lifa án örygg­is­nets hins fyr­ir­fram­gefna og umskapa sig í sífellu gegnum skap­andi ferli.“

Bjarni hefur starfað lengi innan mynd­list­ar­heims­ins og segir fátt koma sér á óvart lengur.

„Ég hef verið sam­of­inn mynd­list­ar­heim­inum alla tíð og má segja að í öllum þeim fyr­ir­heitum um frelsi sem list gefur sig út fyrir að vera, þá er list­heim­ur­inn ekki síður en önnur svið gegn­sýrður af kenjóttu reglu­kerfi þeirra stofn­ana og sam­taka sem kenna sig við listir. Á móti tel ég það svo vera, að það að fást við list­sköpun sé allt annað en það að koma sér á fram­færi innan list­heims­ins.“

Hafa feg­urð­ina að leið­ar­ljósi
Hann er stolt­astur af börn­unum og fjöl­skyldu, „en ef við tökum það frá, þá er ég í sjálfu sér stolt­astur af því að standa fyrir það við­horf sem ég hef fylgt í gegnum lífið. Að lifa hinu fag­ur­fræði­lega lífi og hafa feg­urð­ina að leið­ar­ljósi í stað hins skyn­sama. Sumir eru kannski á önd­verðum meiði um að skyn­semi sé and­stæð feg­urð.“

Bjarni rifjar upp erf­iðar stundir þegar Gulli, bróðir hans, dó aðeins 32 ára að aldri eftir erf­iða bar­áttu fyrir sinni lík­ams­til­vist.

„Hann var mér alltaf mikil hvatn­ing í list­inni og hafði óbilandi trú á því sem ég var að gera. Það var erfitt að vera hinum megin á hnett­inum í námi stóran part af þeim tíma þegar hann var að fara í gegnum hvert áfallið á fætur öðru í veik­ind­unum sem drógu hann síðar til dauða. Að koma síðan heim og horfa á hann læs­ast sífellt fastar inni í hrjáðu hold­inu, það risti mig djúpt og ætli það sé ekki partur af því hversu upp­tek­inn ég hef verið af lík­am­legri til­vist okkar.“

Þarna kom listin sterk inn og var hans öfl­ug­asta tæki til að vinna sig úr þessu áfalli, sem varð síðar að sýn­ingu sem nefnd­ist Bið­stofan, með vísun í beðið eftir Godot eftir Beckett.

„Listin er sífelld áskorun og í því felst gald­ur­inn. Hún er ekki eitt sér­tækt verk­efni heldur flæði milli áfanga­staða. Áfanga­stað­irnir eru þá þær sýn­ingar eða verk­efni sem leiða mann áfram. Þannig að fyrir mér snýr þetta ekki að því að fá verk­efni heldur rými til fram­kvæmdar. Verk­efnin og við­föngin spretta fram við hverja fram­kvæmd.“

Eft­ir­minni­legar stundir á ferl­inum
„Þegar ég hugsa til baka yfir lífið og fer­il­inn kemur svo margt eft­ir­minni­legt í hug­ann og erfitt að taka eitt­hvað sér­stakt út.

Það má segja að þegar maður er yngri þá hafi hlutir og reynsla meira mót­andi áhrif á mann. Þar má nefna þriggja mán­aða ferð mína til Mið-Aust­ur­landa með við­komu á stöðum eins og Petru, Jer­úsalem og Egypta­land, þar sem ég stalst til að brölta upp á pýramída um miðja nótt, eða það að fara upp á fjall Móses í dag­renn­ingu. Einnig er margt eft­ir­minni­legt við dvöl mína í San Francisco og öll þau ferða­lög sem ég fór í um Banda­ríkin á þeim tíma. Kannski líka þegar ég gerði verkið Hugrekki fyrir Kristni­há­tíð árið 2000 en það fylgdi því mikið umstang að koma upp 20 metra háu verk­inu án þess að koma nokkrum tækjum að, síðan þegar verkið var upp­komið í gjánni þá reið jarð­skjálfti yfir stuttu síðar, en sem betur fer stóð verkið hann af sér. Sýningin Ekkert í Hafn­ar­borg, risa­verk sem gert var fyrir sýn­ing­una Mynd sem var í Henie Onstad, síðan Hafn­ar­hús­inu. Svo má líka nefna verk­efnin sem ég gerði fyrir hótel í Las Vegas svo eitt­hvað sé nefnt.“

Verk­efnið Hug­ar­hold á lík­ama og huga á hins vegar allan hans huga þessa stund­ina og næst á döf­inni hjá Bjarna er að koma því á fram­færi sem sýn­ingu og útgáfu.

„Þetta snýst um að vinna með lífið og til­vist­ina. Þær upp­lif­anir sem hafa veru­leg áhrif á mann og öll þau fal­legu átök sem líf­inu fylgja með því að lík­amna þetta í mál­verki.“

End­ur­birt. Viðtalið birt­ist fyrst í Mannlífi 30. októ­ber 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina