Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Neytendur blekktir á meðan milliliður hirðir gróðann

Neytendur blekktir á meðan milliliður hirðir gróðann
Net­verslun

Ýmsar net­versl­anir nota svo­kallað „drops­hipp­ing“ í auknum mæli. Stundum eru neyt­endur blekktir til þess að halda að þeir séu að versla af litlu, inn­lendu fyr­ir­tæki, þegar þeir eru í raun að eiga við­skipti við stór vöru­hús úti í heimi þar sem varan fæst á slikk – en milli­lið­ur­inn, inn­lendi aðil­inn, hirðir verð­mis­mun­inn.

Ýmsar net­versl­anir hafa sprottið upp eins og gorkúlur síð­ustu ár og eru gæðin mis­jöfn eins og versl­an­irnar eru margar. Und­an­farið hafa tor­tryggi­legir við­skipta­hættir verið til umræðu, þar sem fólk kaupir ódýrar vörur af síðum á borð við Ali Express og selur þær svo í gegnum sínar eigin versl­anir og fyr­ir­tæki, á marg­földu verði.

Annað sem virð­ist hafa færst í auk­ana er svo­kallað „drops­hipp­ing“, á ensku, en því miður hefur blaða­maður ekki rek­ist á við­un­andi íslenska þýð­ingu á fyr­ir­bær­inu.

Drops­hipp­ing virkar þannig að ein­stak­lingur eða fyr­ir­tæki hefur sam­band við byrgja eða fram­leið­anda og gerir við hann samn­ing um að varan sem aðil­inn hyggst kaupa af fram­leið­and­anum og selja áfram, muni afhend­ast beint frá fram­leið­and­anum til við­skipta­vin­ar­ins; þriðja aðil­ans, sem pantar af milli­liðnum. Sá sem rekur fyr­ir­tækið hefur því enga milli­göngu um send­ingu vör­unnar til við­skipta­vin­ars­ins.

Rekstr­ar­að­il­inn býr sér til vef­síðu fyrir vör­urnar sem hann hyggst selja og breytir ímynd vöru­merk­is­ins eftir eigin höfði og gerir vör­urnar meira aðlað­andi. Sumir selja vör­una jafn­vel á síðum á borð við Ebay eða Amazon undir sínu eigin vöru­merki. Rekstr­ar­að­il­inn verð­leggur vör­una eftir eigin höfði, yfir­leitt mun hærra en verðið hjá fram­leið­anda – stundum marg­falt hærra.

Þegar við­skipta­vinur verslar vöru af síðu rekstr­ar­að­il­ans, kaupir net­versl­unin sem um ræðir vör­una beint af fram­leið­anda og fram­leið­and­inn sendir vör­una síðan beint til við­skipta­vin­ar­ins, án nokk­urrar milli­göngu net­versl­un­ar­innar. Eigandi net­versl­un­ar­innar græðir síðan verð­mis­mun­inn, sem getur hlaupið á þús­undum, jafn­vel tugum þús­unda króna.

Neyt­endur eru hvattir til þess að vera á varð­bergi og skoða net­versl­anir ávallt mjög vel, sem og þau vöru­merki sem þær selja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi