Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ómar lögmaður segir eina manneskju vera tvo Rúmena: Morgunblaðið birtir uppspunann

Ómar lögmaður segir eina manneskju vera tvo Rúmena: Morgunblaðið birtir uppspunann
Ómar R. Valdi­mars­son Mynd: Þór Ægisson

Ómar R. Valdi­mars­son lög­maður heldur því fram í við­tali við Morg­un­blaðið að ofgreiðsla sem honum var gert að end­ur­greiða hafi verið hafi verið vegna tveggja rúm­enskra karla sem lentu í bílslysi en ekki einnar mann­eskju. Mannlíf sagði upp­haf­lega frá þessu máli sem stað­fest er að snýst um ein­stak­ling sem slas­að­ist í bílslysi. Frásögn Ómars í Morg­un­blað­inu vekur undrun þeirra sem komu að úrskurð­inum og þekkja til mála. Þykir heim­ild­ar­mönnum Mannlífs að lög­mann­inum hefði mátt vera ljóst að til­bún­ingur hans um Rúmenana tvo hlyti að kom­ast upp.

Skjáskot úr úrskurði

Í nið­ur­stöðu Úrskurð­ar­nefndar lög­manna er talað er um einn sókn­ar­að­ila. Í við­tal­inu við Morg­un­blaðið segir Ómar úrskurð­ar­nefnd lög­manna á villi­götum í máli sem tekið var fyrir þann 14.mars síð­ast­lið­inn. Þar var Ómari gert að end­ur­greiða skjól­stæð­ingi sínum 1.859.801 krónur að með­töldum virð­is­auka­skatti að frá­dregnum inn­borg­unum vegna vinnu sinnar við inn­heimtu slysa­bóta. Staðfest er að þarna er ein­ungis um að ræða eitt fórn­ar­lamb en ekki tvo menn.

Hótar málsókn

Úrskurða­nefnd lög­manna skipa Valborg Þ. Snævarr, Einar Gautur Stein­gríms­son og Kristinn Bjarna­son. Varamenn nefnd­ar­innar eru Hulda Katrín Stef­áns­dóttir, Grímur Sig­urðs­son og Helgi Birg­is­son. Í við­tal­inu við Morg­un­blaðið segir Ómar það einnig athug­un­ar­efni að í úrskurð­ar­nefnd sitji þrír lög­menn sem eru í sam­keppni við aðra starf­andi lög­menn og bætir við að hann hafi fengið til sín við­skipta­vini sem áður hafa fengið þjón­ustu lög­manna sem sitja í nefnd­inni. „Það er ekki bara ein­kenni­legt heldur algjör­lega ófor­svar­an­legt að nokkrir lög­menn á litlum sam­keppn­is­mark­aði fari með aga­vald yfir kol­legum sínum,“ sagði Ómar ósáttur og boð­aði að hann myndi fara með málið fyrir dóm­stóla.

Áður áminntur

Þetta er ekki vera í fyrsta sinn sem vinnu­brögð Ómars eru talin ámæl­is­verð en hefur verið fjallað um nokkur þeirra mála í fjöl­miðlum á und­an­förum árum. Var það árið 2018 er Ómar var áminntur af úrskurð­ar­nefnd lög­manna vegna hátt­semi sinnar í garð umbjóð­anda síns fyrir að gefa út til­hæfu­lausan reikn­ing. Í úrskurði hér­aðs­dóms var kveðið á um að þóknun Ómars, 148 þús­und krónur, greidd­ist úr rík­is­sjóði. Fyrir Hæsta­rétti var þóknun Ómars 124 þús­und krónur til við­bótar. Ómar taldi upp­hæð­ina aðeins ná yfir hluta þeirrar vinnu sem hann vann og gaf hann út reikn­ing bæði vegna akst­urs og upp­hæðar sem vant­aði, alls rúm­lega 325 þús­und krónur. Úrskurða­nefndin taldi hvorki lög­bundna né samn­ings­bundna stoð fyrir reikn­ingnum sem var í kjöl­farið felldur niður.

Þá taldi Lands­réttur vinnu­brögð Ómars sér­stak­lega aðfinnslu­verð í dómi þann 25.mars árið 2022 eftir að Ómar áfrýj­aði dómi hér­aðs­dóms þar sem byggt var á því að lög­maður skjól­stæð­ings hans hafi sýnt af sér sak­næma hátt­semi við vinnslu og frá­gang kaup­mála. Nið­ur­staða hér­aðs­dóms sem var stað­fest af Lands­rétti var að lög­mað­ur­inn hafi ekki sýnt af sér sak­næma hátt­semi og var hann sýkn­aður af kröfum skjól­stæð­ings Ómars.

Lands­réttur til­tók sér­stak­lega í nið­ur­stöðu sinni að end­ur­rit frá Ómari fyrir Lands­rétti af aðila- og vitna­skýrslum í hér­aði voru afar óná­kvæm og á köflum vill­andi. Var lög­mann­inum sem Ómar höfð­aði málið gegn því nauð­syn­legt að leggja fram rétt end­ur­rit. Lands­réttur taldi þennan frá­gang á gerð end­ur­rit­anna sér­stak­lega aðfinnslu­verðan.

Þá braut Ómar einnig gegn reglum nr. 2/2018 um máls­gögn í einka­málum. Samkvæmt regl­unum ber lög­manni að hafa sam­ráð við lög­mann gagn­að­ila um gerð máls­gagna og hvaða skjölum sem lögð voru fram í hér­aði væri ofaukið vegna flutn­ings máls­ins fyrir Lands­rétti. Ómar stað­festi við aðal­með­ferð máls­ins að hann hafi ekki gætt að þessu. Þá hafi Ómar einnig án nokk­urs sam­ráðs sleppt því að leggja fram þrjú hér­aðs­dóms­skjöl án þess þó að vekja athygli á því með því að geta þeirra í efn­is­skrá fremst í máls­gögnum sem yfir­strik­aðra skjala. Lands­réttur sá sig knú­inn til að átelja þessi vinnu­brögð sér­stak­lega í nið­ur­stöðum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð