Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sara Lind heldur forstjórastólnum án auglýsingar – Ráðuneytið auglýsti starfið ekki

Sara Lind heldur forstjórastólnum án auglýsingar – Ráðuneytið auglýsti starfið ekki
Myndin er sam­sett

Sara Lind Guð­bergs­dóttir verður áfram for­stjóri Rík­is­kaupa, þrátt fyrir að hafa verið skipuð tíma­bundið í stöð­una eða til 31. ágúst. Skip­un­ar­tími hennar hefur verið fram­lengdur til ára­móta, þrátt fyrir yfir­lýs­ingar um að starf hennar yrði aug­lýst.

Fjár­mála­ráð­herra skip­aði Söru Lind Guð­bergs­dóttur sem for­stjóra Rík­is­kaupa tíma­bundið, án þess að aug­lýsa stöð­una. Vakti ráð­stöfun Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra athygli því Sara Lind er reynslu­lítil á þessu sviði en hún er mennt­aður lög­fræð­ingur. Hún teng­ist hins vegar Sjálf­stæð­is­flokknum.

Hring­braut sagði frá þessu og vakti athygli á að Sara Lind er eig­in­kona Stefáns Einars Stef­áns­sonar, hlað­varps­stjórn­anda Morg­un­blaðs­ins og kampa­vínsinn­flytj­anda. Þá hafa Mannlífi einnig borist ábend­ingar vegna máls­ins en það þykir lykta af vina­væð­ingu og spill­ingu. Í grein Hring­brautar er sagt frá áhyggjum vegna ráðn­ing­ar­innar því Sara Lind sé „fag­lega veikur“ for­stjóri.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sara Lind er við­riðin umdeilda ráðn­ingu en hún var á sínum tíma ráðin til starfa hjá stétt­ar­fé­lag­inu VR. Stefán Einar var þá for­maður félags­ins og Sara Lind ást­kona hans. Lögsótti hún DV vegna frétta um málið en tap­aði mál­inu fyrir Hæsta­rétti. Eftir að Stefán Einar var felldur af stóli for­manns VR var Sara látin fara frá félag­inu. Lögsótti hún þá félagið fyrir ein­elti og ólög­mæta upp­sögn en tap­aði hún því máli einnig.

Guðrún Ögmunds­dóttir, skrif­stofu­stjóri fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sagði í svari við fyr­ir­spurn Mannlífs þann 7. júlí síð­ast­lið­inn, að starfið yrði aug­lýst fyrir til­settan frest. Frest­ur­inn er nú lið­inn en engin aug­lýs­ing hefur litið dags­ins ljós enn. Þess í stað hefur frest­ur­inn verið fram­lengdur til ára­móta líkt og kom fram hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina