Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Furðulegt val Þorsteins harðlega gagnrýnt: „Mér finnst hún ekki alveg klár í þetta“

Bryndís Arna þykir sigurstrangleg í kosningu um besta leikmanninn en Þorsteinn landsliðsþjálfari vildi meina að hún væri ekki tilbúin fyrir landsliðið – myndin er samsett
Bryndís Arna þykir sig­ur­strang­leg í kosn­ingu um besta leik­mann­inn en Þor­steinn lands­liðs­þjálf­ari vildi meina að hún væri ekki til­búin fyrir lands­liðið – myndin er sam­sett

Óhætt er segja að knattspyrnu­unnendur landsins hafi orðið hissa eftir tilkynnt var um val á landsliði kvenna í knatt­spyrnu.

Í gær tilkynnti Þorsteinn Halldórsson, landsliðs­þjálfari, nöfn þeirra leikmanna sem verða í lands­liðshóp Íslands sem mætir Wales og Þýska­landi síðar í september. Val Þorsteins hefur verið harðlega gagnrýnt af knattspyrnu­unnendum enda ekki á hverjum degi sem vara­markmaður liðs fái sæti í landsliði.

Orri Rafn Sigurðarson setti fram færslu um málið og upphófst áhugaverð umræða í kringum valið í þræði Orra.

Þorsteinn ákvað að velja Söndru Sigurðar­dóttur, vara­markmann Vals, í hópinn en fyrir um það bil hálfu ári ákvað Sandra að hætta knattspyrnu­iðkun og lagði hanskana á hilluna. Hún hætti nýlega við þá ákvörðun og hefur spilað einn leik í Bestu deild kvenna síðan. Óumdeilt er að Sandra sé ein af bestu mark­mönnum Íslands­sögunnar en það hlýtur að teljast mikið áfall fyrir aðra markmenn Bestu deildar kvenna að vara­markmaður Vals sé valin fram yfir þær. 

Þorsteinn gaf upp ástæður valsins í viðtali við Fótbolti.net

„Markvarðar­staðan er þannig að þér og mark­verðinum líði vel með þær aðstæður sem þær fara út í. Það er fullt af mark­vörðum sem hafa spilað vel og aðrir misjafnir. Ég vil fara inn í verkefnið með ákveðna reynslu, mér finnst það skipta gríðar­lega miklu máli. Þegar að maður er þjálfari þá þarf maður að taka erfiðar ákvarðanir, ég stend og fell með minni ákvörðun. Ég hef rætt þetta við marga í kringum mig og það hefur enginn sagt við mig neitt annað en að þetta sé rétt hjá mér,“ sagði Þorsteinn.

Þá hefur sú ákvörðun Þorsteins að velja ekki Bryndísi Örnu Níels­dóttur í lands­liðið vakið mikið umtal en Bryndís er lang­markahæst í Bestu deild kvenna en hún hefur skorað í 14 mörk í deildinni. Næst­markahæsti leikmaður deildarinnar er Agla María Alberts­dóttir en hún hefur skorað sjö mörk, eða helmingi færri mörk en Bryndís. Þrír framherjar voru valdir í lands­liðið sem spila á Íslandi og hafa þeir skorað samtals 16 mörk. Enn meira umtal en sú ákvörðun að velja ekki Bryndísi eru þó orð sem Þorsteinn hafði um leik­manninn í viðtali við Fótbolti.net.

„Bara, mér finnst hún ekki alveg klár í þetta,“ sagði Þorsteinn um að velja ekki Bryndísi.

„Ég horfði á hana um daginn með U23 ára lands­liðinu á móti Danmörku, það vantaði svolítið upp á hjá henni þar. Maður horfir svolítið í það á alþjóð­legum mæli­kvarða hvar leikmenn standa. Mér fannst hún ekki klár eins og staðan er í dag. Vonandi sýnir hún bara í komandi leikjum með U23 ára lands­liðinu að hún sé klár í A-lands­liðið.“

Eins og áður segir þá er Bryndís lang­markahæst í Bestu deildinni og hlýtur að sú staðreynd að hún skori á við þrjá framherja lands­liðsins til samans að benda til þess að hún standi að minnsta á sama stað og þær á „alþjóð­legum mæli­kvarða“. Þá er þetta ekki fyrsta skipti sem Þorsteinn er gagn­rýndur fyrir að velja ekki Bryndísi en það kom mjög á óvart að hún hafi ekki verið valin í hópinn seinast þegar lands­liðið spilaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.
Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi