Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Enn hefur ekkert spurst af Hind litlu á Gaza: „Ætlarðu að koma og sækja mig? Ég er svo hrædd“

Enn hefur ekkert spurst af Hind litlu á Gaza: „Ætlarðu að koma og sækja mig? Ég er svo hrædd“
Hind Hamadeh

Enn er ekk­ert vitað um örlög hinnar sex ára gömlu Hind Rajab sem sat föst í bif­reið skyld­fólks síns á Gaza, eftir að skrið­dreka­her­deild Ísra­els­hers gerði árás á fjöl­skyld­una. Hind lifði árás­ina af og grát­bað um hjálp í gegnum síma lát­innar frænsku sinnar.

Röddin á hinum enda lín­unnar var lítil og dauf; rödd sex ára stúlku, brak­andi í far­síma frá Gaza. Þannig hefst umfjöllun BBC um Hind litlu.

„Skrið­drek­inn er við hlið­inni á mér. Hann hreyf­ist.“

Rana, starfs­maður neyð­ar­síma Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu, var á hinum enda lín­unnar og reyndi að halda eigin rödd rólegri.

„Er hann mjög nálægt?“

„Mjög, mjög,“ svar­aði lítil rödd. „Ætlarðu að koma og sækja mig? Ég er svo hrædd.“

Það var ekk­ert sem Rana gat gert nema halda sam­tal­inu gang­andi.

Hin sex ára gamla Hind Rajab var föst í Gaza-borg eftir árás Ísra­els­hers og grát­bað um hjálp þar sem hún faldi sig í bíl frænda síns, umkringd líkum ætt­ingja sinna. Mannlíf fjall­aði um málið í síð­ustu viku.

Hind hafði farið af heim­ili sínu í Gaza-borg fyrr þennan dag, ásamt frænda sínum, frænku og fimm systk­ina­börnum sínum. Þetta gerð­ist mánu­dag­inn 29. jan­úar en um morg­un­inn hafði Ísra­els­her sagt fólki að yfir­gefa svæði í vest­ur­hluta borg­ar­innar og færa sig suður, með­fram strand­veg­inum.

Móðir Hindar, Wissam, minn­ist þess að það voru harðar skotárásir á svæð­inu þennan dag. „Við vorum skelf­ingu lostin og vildum flýja,“ sagði hún. „Við vorum að flýja á milli staða til að forð­ast loft­árás­irnar.“

Fjöl­skyldan ákvað að fara á Ahli-sjúkra­húsið í aust­ur­hluta borg­ar­innar, í vopn um að þar yrði skjól fyrir sprengju­árás­unum. Wissam og eldra barn hennar hófu ferða­lagið fót­gang­andi en Hind fékk far með Kia Piccanto-bif­reið frænda síns.

„Það var mjög kalt og það rigndi,“ útskýrði Wissam. „Ég sagði Hind að fara í bíl­inn því ég vildi ekki að hún myndi þjást í rign­ing­unni.“

Um leið og bíll­inn fór af stað, heyrðu þau háa skot­hvelli koma frá sömu átt.

Þegar frændi Hindar keyrði í átt að hinum þekkta al-Azhar háskól­anum, er talið að bíll­inn hefði óvænt staðið and­spænis skrið­drekum Ísra­els­hers. Lagði hann bílnum hjá nálægri bens­ín­stöð, í örygg­is­skyni en virð­ist hafa orðið fyrir skotárás.

Inni í bif­reið­inni kall­aði fjöl­skyldan eftir hjálp ætt­ingja sinna. Einn þeirra hafði sam­band við höf­uð­stöðvar neyð­ar­hjálpar Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu en starfs­maður þar hringdi í síma frænda Hindar klukkan 14:30. En það var hin 15 ára frænka Hindar, Layan, sem svar­aði í stað­inn. Í sam­tal­inu, sem tekið var upp, segir Layan starfs­manni Rauða hálf­mán­ans að for­eldrar hennar og systk­ini hafi öll verið drepin, og að það væri skrið­dreki við hlið bíls­ins. „Þeir eru að skjóta á okkur,“ sagði hún, áður en sam­talið end­aði á skot­hljóðum og öskrum.

Þegar neyð­arteymi Rauða hálf­mán­ans hringdi aftur í sím­ann svar­aði Hind litla en rödd hennar var næstum óheyri­leg, drukkn­aði af ótta. Fljót­lega kom í ljós að hún var sú eina sem enn var á lífi í bílnum, og að hún væri enn í hættu.

„Felldu þig undir sæt­unum,“ sagði neyð­arteymið við hana. „Ekki láta neinn sjá þig.“

Rana Faqih, hjá Rauða hálf­mán­anum tal­aði við Hind í síma í klukku­stundir, á meðan sam­tökin sendu beiðni til Ísra­els­hers að leyfa sjúkra­bíl að kom­ast á vett­vang.

„Hún skalf, var sorg­mædd, biðj­andi um hjálp,“ minn­ist Rana. „Hún sagði okkur að ætt­ingjar hennar væru dánir. En seinna lýsti hún því sem svo að þeir væru „Hér eru sof­andi“. Þannig að við sögðum henni að „leyfa þeim að sofa, við vildum ekki trufla þau“.“

Hind hélt áfram að biðja, aftur og aftur, um að ein­hver kæmi og sótti hana.

„Á ein­hverjum tíma­punkti sagði hún mér að það var að verða dimmt,“ sagði Rana við BBC. „Hún var hrædd. Hún spurði hversu langt væri í húsið mitt. Mér leið eins og ég væri lömuð og hjálp­ar­laus.“

Þremur klukku­stundum eftir að sím­talið hófst, var loks hægt að senda sjúkra­bíl til að bjarga Hind. Í milli­tíð­inni hafði teymi Rauða hálf­mán­ans náð sam­bandi við móður Hindar, Wissam og kom henni í sam­band við dóttur sína. Hún grét meira þegar hún heyrði rödd móður sinnar, rifjar Rana upp.

„Hún grát­bað mig um að skella ekki á,“ sagði Wissam við BBC. „Ég spurði hana hvar hún var særð, en svo dreifði ég huga hennar með því að lesa Kóraninn með henni og við báðum saman. Hún end­ur­tók hvert orð eftir mér.“

Það var orðið dimmt þegar áhöfn sjúkra­bíls­ins mætti, þeir Yousef og Ahmad en þeir létu neyð­arteymi Rauða hálf­mán­ans vita að þeir væru nálægt vett­vang­inum og væru að fara að athuga hvort her­flokkur Ísra­els­hers hleyptu þeim ekki að.

Síðan hefur ekk­ert spurts af þeim Yousef og Ahmad og ekk­ert frá Hind litlu. Síma­sam­bandið við bæði sjúkra­lið­ana og hinnar sex ára stúlku sem þeir ætl­uðu að bjarga, datt end­an­lega út.

Afi Hindar, Bahaa Hamada, sagði BBC að síma­sam­band Hindar við móður sinnar hafi enst aðeins lengur og að það síð­asta sem Wissam hafi heyrt, var hurð sem opn­að­ist og Hind sem sagði móður sinni að hún sæi sjúkra­bíl­inn í fjarska.

Afi Hindar

„Hverja sek­úndu brennur hjarta mitt,“ sagði Wissam við BBC. „Í hvert skipti sem ég heyri í sjúkra­bíl hugsa ég „kannski er þetta hún“. Við hvert hljóð, hvert skot­hljóð, hverja ein­ustu sprengju sem fellur, hverja eld­flaug sem skotið er, velti ég fyrir mér hvort dóttir mín sé skot­markið, hvort hún hafi orðið fyrir þessu.“

Hvorki Rauði hálf­mán­inn á Gaza, né fjöl­skylda Hindar, hefur tek­ist að kom­ast á vett­vang­inn en þar er enn barist og er stjórnað af her Ísraels.

„Næturnar eru erf­iðar,“ segir Rana hjá Rauða hálf­mán­anum, „þegar maður vaknar og heyrir rödd hennar í eyr­anu þar sem hún segir „komdu og sóttu mig“.“

BBC bað Ísra­els­her um upp­lýs­ingar um aðgerðir sínar á svæð­inu þennan dag og um hvarf Hindar og sjúkra­lið­anna sem ætl­uðu að sækja hana. Ítrekaði BBC aftur sól­ar­hring síðar og var sagt að enn væri verið að skoða málið.

„Hvar er alþjóða­glæpa­dóm­stóll­inn? Af hverju eru for­setar sitj­andi í stólum sínum?“ spurði Wissam, móðir Hindar.

Viku eftir að dóttir hennar hvarf, situr Wissam og bíður á Ahli-sjúkra­hús­inu, dag eftir dag, fyllir fjar­ver­una með ein­beittri von um að Hind snúi aftur á lífi.

„Ég hef keypt hluti handa henni og er að bíða eftir henni hér,“ sagði hún. „Ég bíð eftir dóttur minni hverja stund, hverja sek­úndu. Ég grát­bið úr brostnu hjarta móður, ekki gleyma þess­ari sögu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta