Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Allt að gerast í körfunni í Keflavík

Allt að gerast í körfunni í Keflavík

Lið Kefla­víkur í körfu­bolt­anum samdi á dög­unum við sex upp­alda leik­menn sína; félagið á bæði lið í Bónus-deild­inni sem og fyrstu deild kvenna.

Þetta kom fyrst fram á vef­síð­unni karfan.is.

Leik­menn­irnir sem Keflavík samdi við eru eft­ir­far­andi:

Agnes María Svans­dóttir, Anna Lára Vign­is­dóttir, Ásdís Elva Jóns­dóttir, Bríet Sif Hin­riks­dóttir, Eva Kristín Karls­dóttir og Hanna Gróa Hall­dórs­dóttir.

Samn­ing­arnir eru frá einu ári til þriggja ára.

Á sama tíma samdi Keflavík einnig við Elent­ínus Mar­geirs­son um áfram­hald­andi störf sem aðstoð­ar­þjálf­ari A-liðs félags­ins; mun hann einnig stýra B-lið­inu í fyrstu deild­inni.

Hér að neðan má lesa frétta­til­kynn­ingu félags­ins:

Agnes skrif­aði undir tveggja ára samn­ing en hún kemut aftur til Kefla­víkur eftir dvöl hjá North Florida Ospreys í banda­ríska háskóla­bolt­anum. Kefl­vík­ingar þekkja Agnesi vel en þar er leik­maður sem mun styrkja liðið gríð­ar­lega. Agnes á að baki fjölda leikja með yngri lands­liðum Íslands og svo hefur hún einnig spilað með A lands­liði kvenna. Við bjóðum Agnesi hjart­an­lega vel­komna til­baka.

Anna Lára fram­lengdi samn­ing sinn til árs­ins 2027 en hún var valin efni­leg­asti leik­maður Kefla­víkur á síð­asta tíma­bili. Und­an­farin ár hefur Anna Lára tekið gríð­ar­legum fram­förum og í dag er hún einn af lyk­il­leik­mönnum yngri lands­liða Íslands og Kefla­vík­ur­liðs­ins. Það verður gaman að sjá Önnu Láru í vetur og við fögnum því að halda henni í okkar her­búðum næstu 3 árin.

Ásdís Elva er ein af okkar efni­leg­ustu leik­mönnum en hún kom inn í meist­ara­flokk­inn á síð­asta tíma­bili og spil­aði sinn fyrsta leik. Þar er á ferð­inni leik­maður sem lætur fátt stoppa sig. Hún á að baki leiki fyrir U15 og U16 ára lands­lið Íslands og mun á efa láta að sér kveða í vetur.

Ásdís skrif­aði undir sinn fyrsta samn­ing en hann er til tveggja ára.

Bríet Sif er komin aftur á par­k­etið í Blue Höllinni eftir nokkur ár í öðrum liðum og svo barn­eign­ar­frí. Bríet hefur komið gríð­ar­lega sterk inn í hóp Kefla­víkur og mun án efa styrkja liðið okkar mikið. Bríet er með betri skyttum lands­ins en hún spil­aði í öllum lands­liðum Íslands og á einnig leiki með A lands­lið­inu. Við fögnum því að sjá Bríet spila í bún­ing Kefla­víkur á ný og bjóðum hana inni­lega vel­komna.

Eva Kristín hefur komið afar sterk inn í meistar­flokks æfinga­hóp­inn í sumar. Hún er stór og sterk og lætur finna vel fyrir sér gegn eldri leik­mönnum liðs­ins. Hún á leiki að baki með bæði U15 og U16 ára lands­liðum Íslands. Fram­tíðin er björt hjá þessum leik­manni og það verður gaman að sjá hana þró­ast áfram. Þetta er fyrsti samn­ingur Evu en hann er til tveggja ára og við bindum miklar vonir við hana sem leik­mann.

Hanna Gróa er að skrifa undir sinn fyrsta samnn­ing við Keflavík en hann er til tveggja ára. Hanna er gríð­ar­lega efni­leg en hún sýndi það á síð­asta tíma­bili þegar hún fékk sín fyrstu tæki­færi með meist­ara­flokk Kefla­víkur að þar fer leik­maður sem á eftir að ná langt.

Hanna á fjöldan allan af leikjum yngri lands­liða Íslands en hún hefur spilað leiki í U15, U16 og nú síð­ast í sumar lék hún á Norð­ur­landa­mót­inu í Svíþjóð og svo í Rúmeníu í Evr­ópu­keppni með U18 ára lið­inu en þar var hún ein af þeim leik­mönnum sem var á yngra árinu og er því enn gjald­geng í því liði næsta sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi