Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skorar á KKÍ að hætta við leik gegn Ísrael

Ísraelar hafa drepið yfir 270 palest­ínska íþrótta­menn síð­ast­liðin tvö ár

Skorar á KKÍ að hætta við leik gegn Ísrael
Gaza er rústir einar Skorað er á KKÍ að leika ekki gegn Ísrael í ágúst Mynd: Samsett

Félagið Ísland – Palest­ína skorar á Körfuknatt­leiks­sam­band Íslands (KKÍ) að leika ekki við lands­lið Ísraels í und­ankeppni EM karla í ágúst næst­kom­andi. Leik­ur­inn er sam­kvæmt móta­skrá KKÍ á dag­skrá 28. ágúst 2025.

Í áskorun félags­ins er bent á að Palest­ínu­menn hafi kallað eftir alþjóð­legri snið­göngu gegn Ísrael á sviði íþrótta, við­skipta og menn­ingar til að mót­mæla þjóð­ar­morði og brotum á mann­rétt­indum Palest­ínu­manna. Félagið telur að KKÍ eigi að fylgja for­dæmi íþrótta­hreyf­ing­ar­innar sem hafi úti­lokað Rússa og Bela­rússa frá mótum vegna árás­ar­innar á Úkraínu. Í áskor­unn­inni segir meðal ann­ars:

„Ísrael hefur brotið alþjóða­lög - Ísrael hefur með fram­ferði sínu brotið lög og samn­inga um mann­rétt­indi sem gilda í milli­ríkja­sam­skiptum og kveðið er á í Stofn­sam­þykkt Sam­ein­uðu þjóð­anna.

- Ísrael hefur her­setið land Palest­ínu­manna í 78 ár.

- Ísrael hefur byggt ólög­legar land­töku­byggðir á landi Palest­ínu og Sýrlands. - Ísrael hefur drepið a.m.k. 60,000 Gazabúa, þar af yfir 20,000 börn í yfir­stand­andi árás. Þúsundir eru enn grafin undir rústum heim­ila sinna. Banda­rískir læknar sem hafa starfað á Gaza telja að allt að 119,000 Gazabúar hafi fallið og þar af um 67,000 vegna hung­urs og vos­búðar. (https://www.gazahealthcareletters.org/usa-letter-oct-2-2024)

- Ísrael ræðst gegn stofn­unum SÞ, hindrar starf­semi þeirra, eyði­leggur eignir og drepur starfs­menn sam­tak­anna.

- Ísrael eyði­leggur sjúkra­hús bæði á Gaza og í Líbanon, drepur og hand­tekur lækna, hjúkr­un­ar­fræð­inga og annað starfs­fólk heils­gæsl­unnar á Gaza. - Flug­skeyta­árásir og stór­skota­lið Ísra­els­hers hefur eyði­lagt rúm­lega helm­ing sjúkra­húsa á Gaza, 87% heim­ila, 88% skóla, 75% allra sam­göngu­mann­virkja og 68% land­bún­að­ar­svæða á Gaza eru ónot­hæf.

- Ísrael hindrar aðflutn­ing matar, lyfja, vatns, og ann­arra nauð­þurfta til íbúa Gaza.“

Vísar í alþjóðadómstóla og mannréttindasamtök

Í áskor­un­inni er vísað til nýlegra nið­ur­staðna alþjóð­legra dóm­stóla og mann­rétt­inda­sam­taka sem hafa lýst hern­aði Ísraels sem lík­legu þjóð­ar­morði og ólög­legu her­námi. Þar kemur meðal ann­ars fram að Aljóð­legi saka­mála­dóm­stóll­inn (ICC) hafi gefið út hand­töku­skipun á hendur for­sæt­is­ráð­herra Ísraels og fyrrum varn­ar­mála­ráð­herra vegna hung­urs sem vopns í hern­aði, sem telst glæpur gegn mannúð.

Jafn­framt er bent á að íþrótta­mann­virki á Gaza hafi í stórum stíl verið eyðilögð, yfir 270 palest­ínskir íþrótta­menn drepnir og meiri­hluti sjúkra­húsa, skóla og heim­ila á svæð­inu lagður í rúst.

Kallar eftir samfélagslegri ábyrgð

Félagið hvetur KKÍ til að sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð í sam­ræmi við lög Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­bands Íslands, sem leggja áherslu á virð­ingu fyrir alþjóð­legum mann­rétt­indum.

„Forysta KKÍ stendur frammi fyrir mik­il­vægri ákvörðun; að leika gegn liði Ísraels og skaða þar með íþrótta­hreyf­ing­una með því að sinna ekki ákalli fórn­ar­lamba þjóð­ar­morðs. Eða að starfa skv. lögum Íþrótta- og Olymp­íu­sam­bands Íslands með því að sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð og virða og efla mann­rétt­indi. ,“ segir að lokum í yfir­lýs­ingu félags­ins.

Undir áskor­un­ina skrifar for­maður Félags­ins Ísland-Palest­ína, Hjálmtýr Heiðdal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi