Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Ég finn að ég er ekki eins mjúk og ég var áður“

Bryn­hildur S. Björns­dóttir, stjórn­ar­for­maður GG verks, segir frá ferli sínum og lífs­leið í við­tala­röð Mannlífs við stjórn­endur. Hún mætti með frum­burð­inn í skól­ann sem ung móðir, hóf háskóla­nám með þrjú börn, lærði í hrun­inu að eng­inn er öruggur með vinnu og ákvað þá að leyfa sér áhætt­una. Nú rekur hún bygg­ing­ar­fyr­ir­tæki með eig­in­manni sínum og leggja þau allt undir.

„Ég finn að ég er ekki eins mjúk og ég var áður“
Bryn­hildur Björns­dóttir Var vara­þing­maður Bjartrar fram­tíðar en sneri sér að við­skiptum að fullu. Mynd: Golli

Bryn­hildur S. Björns­dóttir er fram­kvæmda­stjóri þjón­ustu og sam­skipta, stjórn­ar­for­maður og með­eig­andi GG Verks sem er eitt af stærstu bygg­inga­fyr­ir­tækjum á Íslandi. Áður gegndi hún þar starfi fram­kvæmda- og fjár­mála­stjóra. Bryn­hildur er menntuð í stjórnun og talar meðal ann­ars um sig sem stjórn­anda og hvað ein­kennir góðan stjórn­anda. „Mig langar ekki til að reka bygg­inga­fyr­ir­tæki sem er alveg eins og eitt­hvað annað,“ segir Bryn­hildur. Þá segir hún: „Það er ótrú­lega gaman að fá að setja fingrafar sitt á fyr­ir­tæki í þessum bransa sem er almennt séð mjög karllægt.“

Það er heim­il­is­legt í skrif­stofu­hús­næði GG Verks. Veggir eru mál­aðir í fal­legum litum, ýmis kvót eru á veggjum, mjúkir sófar í ljósum litum eru í miðju rým­inu og kveikt er á ilm­kertum.

Bryn­hildur S. Björns­dóttir, sem rekur fyr­ir­tækið ásamt eig­in­manni sínum, Helga Gunn­ars­syni, situr á skrif­stofu sinni. Hún kemur fram, heilsar hlý­lega og býður til sætis í fund­ar­her­berg­inu. Þar eru veggir mál­aðir vín­rauðir en ann­ars er gler­veggur á þeirri hlið sem snýr út í aðal­rýmið. Hún kemur svo inn með stóran Nóa Síríus-konfekt­kassa og tvö vatns­glös. Og við byrjum að ræða um upp­hafið. Æskuna.

Dóttir læknis og píanóleikara

„Ég held ég hafi verið í sjö grunn­skólum og mest í Reykja­vík. Ég átti unga for­eldra þannig að það var mikið flutt,“ segir hún en móðir hennar var 19 ára þegar hún fædd­ist og faðir hennar tví­tugur. Þau giftu sig ári áður en hún fædd­ist en skildu ári síðar.

Móðir Bryn­hildar er Steinunn Birna Ragn­ars­dóttir, píanó­leik­ari og fyrrum Óperu­stjóri, og faðir hennar er Björn Logi Björns­son læknir. Þegar Bryn­hildur var fimm ára flutti móðir hennar ein til Boston til að fara þar í fram­halds­nám í píanó­leik og bjó Bryn­hildur hjá móð­ur­ömmu sinni og -afa þar til hún var 12 ára en þá flutti móðir hennar heim til Íslands. „Ég var eina barna­barnið og var eins og blóm í eggi.“ Hún sá móður sína í sum­ar­fr­íum og jóla­fr­íum og svo vann amma hennar hjá Loft­leiðum og var þess vegna með frí­miða og heim­sótti hún móður sína reglu­lega til Banda­ríkj­anna.

Faðir hennar flutti líka til Banda­ríkj­anna í sér­nám og eign­að­ist fljót­lega konu og börn eftir að leiðir hans og Stein­unnar skildu. Bryn­hildur, sem er einka­barn móður sinnar, seg­ist eiga ynd­is­leg hálf­systk­ini. „Þetta er svona blönduð fjöl­skylda alveg par excellence.“

Bryn­hildur segir að tón­listin sé stór hluti í lífi sínu og litla stúlkan hlust­aði oft á móður sína spila svo sem þegar hún var að und­ir­búa sig fyrir ein­leik­ara­prófið áður en hún flutti svo vestur um haf. „Mitt systk­ini var svo­lítið flyg­ill­inn. Það var keppi­nautur minn um tíma mömmu. Það var ann­að­hvort ég eða flyg­ill­inn. Maður var nátt­úr­lega alinn upp við tón­list frá upp­hafi og mitt helsta áhuga­mál frá því ég man eftir mér var að spila plötur. Ég átti mínar plötur og þegar mamma var ekki að spila mátti ég hlusta á þær. Sumar voru barna­plötur en svo voru það líka plötur með tón­list eftir Tja­jkovskij.“

Dóttir píanó­leik­ar­ans lærði á píanó í nokkur ár en svo fór hún að læra á selló á ung­lings­ár­unum. „Mamma segir að ég hafi sagt að ég ætl­aði bara að læra þangað til ég yrði örugg­lega ekki atvinnu­tón­list­ar­maður af því að ég ætl­aði ekki að fara inn í þann heim. Það var ekki mitt. Ég vildi bara gera mitt eigið. Ég byrj­aði seint að læra selló, eða upp úr ferm­ingu, og hætti þegar ég var 18 ára. Ég hlusta hins vegar ótrú­lega mikið á tón­list og úr öllum áttum. Mamma var auð­vitað mikið í klassík­inni en pabbi kom inn með djass, popp og rokk.“

Bryn­hildur seg­ist hafa verið að hlusta á tón­list á skrif­stof­unni. „Ég var að fá sam­an­tekt­ina hvað ég hlust­aði mikið á Spotify síð­asta ári. Það voru 122.000 mín­útur sem er einn þriðji af árinu. Ég hlusta eig­in­lega stans­laust frá því ég vakna á morgn­ana og þar til ég fer að sofa. Þetta er ólík tón­list. Ef ég er stressuð þá nota ég tón­list til að róa mig niður og þá hlusta ég á klassík eða djass. Svo þegar ég þarf að pikka mig í gang þá hlusta ég eig­in­lega á allt nema þung­arokk og teknó.“

Tón­listin gefur Bryn­hildi mikið og hún seg­ist einmitt nota hana mikið til að stýra and­legu hlið­inni. Hún segir að þetta sé í raun­inni svipað og hug­leiðsla til að róa and­ar­drátt­inn eða til að róa aðstæður eða skapa stemmn­ingu ann­að­hvort fyrir sig eða aðra. „Ég hef sagt við mann­inn minn að ég held að það væri ekki til verri pynt­ing­ar­að­ferð fyrir mig heldur en að taka af mér tón­list­ina. Hún er stór partur af mér.“

Móðir 19 ára

Bryn­hildur seg­ist hafa verið skrýtið barn. Hún hafi snemma orðið ábyrgð­ar­full, kannski af því að for­eldrar hennar voru ekki á staðnum. „Það var vel hugsað um mig hjá ömmu og afa en ég þurfti kannski að taka ábyrgð á mér svo­lítið snemma. Það eina sem ég man eftir að hafa leikið mér með voru dúkkur og mig lang­aði að verða mamma frá því ég man eftir mér. Ég var alltaf með ein­hverja dúkku með mér alveg þangað til ég varð ell­efu ára. Þetta var eitt­hvað umhyggju- eða mæðragen. Svo nátt­úr­lega end­aði það þannig að ég eign­að­ist mitt fyrsta barn nítján ára, alveg eins og mamma. Ég hætti að spila á sell­óið þegar ég var ófrísk.“

Bryn­hildur sá fyrir sér eftir grunn­skóla­nám að vinna með börnum eða fötl­uðu fólki og fór á upp­eld­is­braut í Fjöl­brauta­skól­anum í Breið­holti. Þegar náms­efnið sem tengd­ist upp­eld­is­fræð­inni var búið lang­aði hana að færa sig í smærri skóla og úr varð að hún kláraði mennta­skóla­árin í Kvenna­skól­anum. Það var svo á þriðja ári í Kvenna­skól­anum sem frum­burð­ur­inn fædd­ist, drengur.

„Það var ótrú­lega heim­il­is­legt. Ég mátti koma með hann með mér í skól­ann og láta hann sofa fyrir utan glugg­ann á kennslu­stof­unni þannig að ég gat fylgst með þegar hann vakn­aði. Starfs­menn skól­ans voru ótrú­lega góðir við mig og gáfu mér frjálsa mæt­ingu síð­asta árið. Við mamma bjuggum þá í Þing­holt­unum og þó að sonur minn eigi mjög góðan pabba þá var þetta svo­lítið sam­eig­in­legt verk­efni okkar mömmu. Pabbi hans hefur verið í lífi hans frá byrjun og stjúp­mamma hans örfáum mán­uðum síðar. Þau eru enn í dag miklir vinir okkar hjón­anna og upp­á­halds­ferða­fé­lagar. En þarna var ég nítján ára og mamma mín þrjá­tíu og átta ára. Og hún orðin amma.“

Bryn­hildur kímir. „Ég er fjöru­tíu og átta ára núna. Tíu árum eldri en hún var þegar hún var orðin amma. Hún er rosa­lega spræk amma og hún og sonur minn, sem er tutt­ugu og átta ára, eru bestu vinir. Þau ferð­ast saman, en þau eru bæði ein­hleyp, og hafa til dæmis farið saman til Japans þrisvar sinnum.“

Þroskaðist hratt

Hún bendir á að hún hafi verið mjög ung þegar hún fór að taka ábyrgð og að hún hafi þroskast hratt. „Ég fann mig í því að ég gæti mögu­lega tekið ábyrgð, leitt hluti áfram og hjálpað öðrum að blómstra. Það end­aði þannig.“

Eftir stúd­ents­prófið starf­aði Bryn­hildur sem aðstoð­ar­fræðslu­stjóri Vinnu­skól­ans. Hún gift­ist svo ung æsku­vini sínum og flutti með honum til Noregs þar sem hann fór í nám og á meðan eign­uð­ust þau tvö börn með eins árs milli­bili, son og dóttur. Leiðir þeirra skildu síðan. Í Noregi vann hún í leik­skóla.

Líf fólks getur verið alls konar og þegar Bryn­hildur er spurð um lífs­reynslu sem hafi mótað hana seg­ist hún hafa verið ótrú­lega lánsöm en nefnir þó eitt.

„Ég gekk mjög langt í að vera dug­leg og gera allt það rétta“

„Ef maður fer í af hverju maður er eins og maður eða af hverju ég fór í stjórnun bygg­ist örugg­lega á því að mamma og pabbi voru ekki bæði hjá mér frá því ég var fimm ára. Ég var hjá ömmu og afa. Mamma fór í námið og pabbi var með aðra fjöl­skyldu og bjó líka víðs vegar um landið og svo vest­an­hafs um tíma. Þannig að þó það hafi verið ótrú­lega vel um mig séð og mamma hafi aldrei verið langt undan þá mót­aði þetta mig auð­vitað og ég þurfti svo­lítið snemma að treysta á sjálfa mig. Þetta voru sárar til­finn­ingar og það var erfitt að skilja þetta,“ segir Bryn­hildur sem seg­ist í dag skilja móður sína sem var efni­legur píanó­leik­ari og lét drauma sína ræt­ast og var þar með fyr­ir­mynd sín.

„Kannski það nei­kvæða við þetta var að ég pass­aði svo mikið upp á að vera dug­leg og fékk mjög mikið frá umhverf­inu að ég væri dug­leg. Og þá varð ég alltaf dug­legri og dug­legri. Ég gekk mjög langt í að vera dug­leg og gera allt það rétta, ekki bara reyna. Ég lagði áherslu á að vekja ekki nei­kvæða athygli á mér, velja réttu leið­irnar og hafa alla góða. Það fylgdi mér mjög lengi.“

Lærði hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði

Tuttugu og átta ára og ein­stæð móðir með þrjú börn hóf Bryn­hildur BA-nám í hag­fræði, heim­speki og stjórn­mála­fræði við Háskól­ann á Bifröst. Hana lang­aði að fara í lög­fræði en hugs­aði með sér að hún væri orðin of gömul þar sem námið er svo langt. „Mér fannst ég vera orðin svo full­orðin og ég var komin með svo mörg börn. Það var algert rugl að hugsa svona þegar maður horfir á það núna.

Ástæðan fyrir því að ég fór í HHS-námið var að ég vissi ekki hvað ég ætl­aði að verða en í nám­inu fékk ég ein­hvern veg­inn grunn í mörgu og eig­in­lega skiln­ing á efna­hags­líf­inu en samt líka hvaðan hug­mynd­irnar komu. Þetta er eitt það skemmti­leg­asta sem ég hef gert. Námið kveikti mik­inn náms­þorsta í mér sem fylgir mér enn þann dag í dag,“ segir Bryn­hildur.

„Þetta var þegar Bifröst var stað­ar­skóli og það var svaka­legt fjör og gaman að vera á kampus. Þetta var æðis­legt og ynd­is­legur tími en það var auð­vitað álag.“

Bryn­hildur fór síð­ustu önn­ina sína sem skiptinemi til Singa­pore þar sem hún lagði stund á nám í asískum stjórn­málum og efna­hags­lífi. Börnin dvöldu hjá feðrum sínum á meðan.

Og árið 2007 útskrif­aðis Bryn­hildur með BA-prófið. Hún var þá orðin ófrísk en hún kynnt­ist eig­in­manni sínum, Helga, ári áður.

„Ég sótti um starf sem aðstoð­ar­maður þings­manns sem ég fékk en svo sagði ég þeim að ég væri nýbúin að kom­ast að því að ég væri ófrísk og fór þá um haustið í meist­ara­nám í opin­berri stjórn­sýslu við Háskóla Íslands. Yngsta dóttirin kom svo í heim­inn árið 2008 í miðju meist­ara­námi.

Ég var í opin­berri stjórn­sýslu í einn vetur, þar sem mér fannst það vera fram­hald á því sem ég hafði verið að læra og ekki nógu mikil áskorun og ákvað ég að söðla alger­lega um og skipta yfir í meist­ar­nám í stefnu­mið­aðri stjórnun við við­skipta­fræði­deild háskól­ans.“ Hún kláraði það nám.

Útskrifaðist í byrjun hruns

Árið 2008 breytt­ist ýmis­legt. Efna­hags­hrun var stað­reynd og Geir H. Haarde bað Guð um að blessa Ísland.

„Þegar ég útskrif­að­ist úr stjórn­enda­nám­inu árið 2009 þá var það á sögu­lega vondum tíma til að útskrif­ast í við­skiptum og ég var í sjálfu sér kannski með litla starfs­reynslu miðað við marga aðra á þessum tíma af því að ég var búin að vera í þessu brasi, barna­bras­inu. Komin með fjögur börn þrí­tug. Þannig að ég útskrif­að­ist í byrjun krepp­unnar, eða um vorið 2009, og það var alveg aug­ljóst að það var ekk­ert margt að fara að ger­ast. Ég fékk reyndar strax starf í gegnum skól­ann en leið­bein­and­inn minn benti á mig í úrvinnslu í Háskól­anum í Reykja­vík á stórri mannauðs­rann­sókn sem er gerð árlega. Ég vann eitt­hvað í því og svo fór ég að hugsa með mér hvað ég ætti að gera næst. Ég var ekk­ert mjög áhættu­sækin á þessum tíma en hugs­aði með mér að þarna hefði maður engu að tapa af því að það væru hvort sem er allir að missa vinn­una sína, meira að segja fólk í opin­bera geir­anum var ekki öruggt.

Vinkona mín Svava, sem ég hafði kynnst í skipti­nám­inu í Singa­pore, kom með hug­mynd um að stofna fyr­ir­tæki fyrir alla þessa frum­kvöðla eða bók­staf­lega alla þá sem voru búnir að missa vinn­una sína en á tíma­bili höfðu til dæmis hönn­uðir og arki­tektar verið að vinna í bönkum. Það voru allir hjá bönk­unum. Svo fóru bank­arnir og þá var þetta flotta tæki­færi fyrir fólk að gera það sem það lang­aði að gera. Og ótrú­leg­asta fólk stofn­aði fyr­ir­tæki og fór að gera skap­andi hluti en vissi kannski ekk­ert um fjár­mála­hlið­ina. Þannig að Svava, sem hafði starfað í end­ur­skoðun og bók­haldi, kom með þá hug­mynd að stofna við­skipta­þjón­ustu fyrir þessi örfyr­ir­tæki í raun­inni, þessa litlu frum­kvöðla. Við fórum í Klak-við­skipta­hrað­al­inn og unnum þar keppni um við­skipta­á­ætlun og stofn­uðum árið 2010 fyr­ir­tækið, Hagsýn, sem var fjár­mála­þjón­usta fyrir frum­kvöðla. Það óx ótrú­lega hratt á fjórum árum.“

Bókhalds- og rekstr­ar­þjón­ustan Hagsýn sér­hæfði sig í lausnum fyrir frum­kvöðla, sjálf­stæða atvinnu­rek­endur og smærri fyr­ir­tæki.

Bryn­hildur nefnir fjögur ár vegna þess að árið 2014 bað eig­in­maður hennar, Helgi, hana um að taka við fram­kvæmda- og fjár­mála­stjóra­stöðu GG Verks, bygg­inga­fyr­ir­tæk­inu sem hann og bróðir hans höfðu stofnað árið 2006. „Fyr­ir­tækið hafði vaxið og þeir voru ekki með bak­grunn í stjórnun eða rekstri og mér fannst þetta var mjög spenn­andi. Úr varð að ég og Svava seldum fyr­ir­tækið.“

Sitjandi varaþingmaður

Áður en fjallað verður áfram um GG Verk og störf Bryn­hildar þar er vert að geta þess að hún var á árunum 2013-2016 sitj­andi vara­þing­maður fyrir Bjarta fram­tíð.

„Það var svo leið­in­legt eftir hrunið. Það voru allir svo nei­kvæðir og það var alltaf verið að tala um Icesave og hrunið og ég var svo pirruð á þessu. Svo heyrði ég af flokki sem ætl­aði að gera þetta öðru­vísi og hét Björt fram­tíð og var í raun­inni smá frum­kvöðla­starf­semi og þar voru aðilar sem höfðu ekk­ert áður verið í póli­tík. Mér fannst það vera spenn­andi. Ég rétti bara upp hönd og sagð­ist vera til í að vera á bak við tjöldin og hjálpa ef ég gæti með rekst­ur­inn. Ég var í þessum stóra stofn­enda­hópi og fór strax í fram­kvæmda­stjórn og var gjald­keri flokks­ins frá byrjun. Ég ætl­aði alls ekki að vera í fram­lín­unni, ég var bara að reka mitt fyr­ir­tæki en mig lang­aði mikið til að rödd lít­illa fyr­ir­tækja heyrð­ist. Það hefur alltaf verið talað um risa­fyr­ir­tæki en raunin er þó sú að yfir 90% fyr­ir­tækja flokk­ast undir lítil fyr­ir­tæki.

Heiða Kristín hringdi í mig dag­inn áður en list­arnir voru kynntir fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar 2013 og bað mig um að vera í þriðja sæti á Reykja­vík suður-list­anum en hún og Guð­mundur Stein­gríms­son voru aðaldrif­kraft­arnir. Ég þurfti aðeins að hugsa þetta en ég hringdi í mömmu mína og systur mína og auð­vitað mann­inn minn. Hann var svo­lítið nervös varð­andi hvernig talað er um póli­tíkusa en það var mjög týpískt hjá mömmu og systur minni sem sögðu að ég færi aldrei fyrir minna en þriðja sætið.“ Bryn­hildur hlær. „Ég var til í að vera í tutt­ugusta sæti eða vera alveg aft­ast. En ég sagði bara „já“.

Okkur gekk mjög vel í þessum kosn­ingum, fyrstu kosn­ing­unum, og það fóru tveir þing­menn inn á mínum lista, Óttar Proppe og Róbert Marshall, þannig að ég var vara­þing­maður þeirra beggja. Þannig að ég end­aði svo­lítið mikið inni á þingi á því tíma­bili og svo var ég stjórn­ar­for­maður flokks­ins í eitt ár, 2015-2016. Þetta átti bara að vera svo­lítið þægi­legt ár en þá komu Panama-skjölin og það var farið beint í kosn­ingar. Þá þurfti ég að taka þátt í því að skipu­leggja snarpa kosn­inga­bar­áttu þar sem mark­miðið var 8% og að vera í rík­is­stjórn en við vorum í 1,5% og úr varð 7,2% og rík­is­stjórn.“

Bryn­hildur segir það hafa verið dýr­mæta reynslu að vera sitj­andi vara­þing­maður. „Ég er mjög fegin eftir á að hafa rétt upp hönd og tekið þátt af því að þetta er í raun­inni ekk­ert annað en sam­fé­lags­þjón­usta, að reyna að koma að ein­hverju og breyta. Þetta var mjög áhuga­verð reynsla og mjög skemmti­leg og ég hefði ekki viljað sleppa þessu. En það var líka ákvörðun að end­ast ekki. Ég tók ákvörðun þegar ég var stjórn­ar­for­maður og var að vinna að því að koma flokknum í rík­is­stjórn að um leið og var búið að kjósa og þau voru komin inn þá hætti ég. Og það var hár­rétt fyrir mig af því að ég þurfti þarna eig­in­lega að velja hvort ég vildi vera í við­skiptum eða í stjórn­málum. Og ég vildi í grunn­inn vera í við­skiptum eða sem sagt í atvinnu­líf­inu. En auð­vitað kitl­aði þetta. Enda hrika­lega gaman. Og ég þakk­lát með­eig­endum mínum í GG að leyfa mér að gera bæði um tíma. Það þýddi auð­vitað ein­hverja fjar­veru en ég bætti það held ég upp með mik­illi vinnu í GG þess utan. Þessi ár eru svo­lítið í móðu. Slíkt var álagið. Og mað­ur­inn minn lærði til dæmis að elda á þessum tíma, enda var ég ekki lengur þessi hús­móðir sem ég hafði alltaf verið. En ég er nátt­úru­lega fárán­lega vel gift og ég held að við séum bæði helsta klapp­stýra hvors ann­ars. Þarna þurfti ég á umburð­ar­lyndi og skiln­ing að halda sem hann og fjöl­skyldan öll sýndi mér.“

Bryn­hildur starf­aði sem fram­kvæmda- og fjár­mála­stjóri GG Verks á árunum 2014-2019 og var sitj­andi vara­þing­maður nokkrum sinnum á árunum 2013-2015 eins og áður kom fram. Þá var hún stjórn­ar­for­maður Sjúktra­trygg­inga Íslands á árunum 2017-2021.

Hún elskar að læra og á árunum 2018-2023 stund­aði hún nám í „Owner/Pres­ident Mana­gement” við Harvard Business School sem er fyrir eig­endur og æðstu stjórn­endur eigin fyr­ir­tækja. Um er að ræða þriggja ára nám með þremur stað­ar­lotum. Nemendur voru í stað­námi í mánuð á hverju ári en ann­ars var um fjar­nám að ræða. Hún átti að útskrif­ast árið 2020 en vegna Covid-heims­far­ald­urs­ins breytt­ist það.

Stjórnmálin leikrit

Bryn­hildur nefnir mann­lega þátt­inn þegar hún er spurð hvað hún geti nýtt sér í dag þegar kemur að stjórn­mála­reynsl­unni.

„Við­skipti og stjórn­mál snú­ast um mann­eskjur í raun­inni og byggj­ast upp á mann­eskjum. En það er margt í við­skiptum sem mér finnst að stjórn­mál gætu tekið til fyr­ir­myndar og það er sam­starf og að vinna í sömu átt, alveg sama í hvaða liði er spilað. Það kom mér mikið á óvart að þetta snýst mikið um lið og egó en ekki sam­eig­in­leg mark­mið. Ef íslensk stjórn­mál eru skoðuð þá held ég að við séum ekk­ert svo ólík. Það eru allir hérna sós­í­alde­mókratar, mark­aðs­hyggju­fólk, þannig lagað séð. Það er ekki komm­ún­ismi hérna eða fas­ismi. Við viljum öll vel­ferð­ar­sam­fé­lag, við viljum öll geta skarað fram úr og við viljum borga okkar skatta og fá eitt­hvað fyrir skatt­ana okkar. En af því að flokk­arnir heita ólíkum nöfnum þá vinnur fólk í þeim á móti hvert öðru og það kom mér nei­kvætt á óvart í stjórn­málum. Og það er bæði innan flokka og milli flokka og kannski verst innan flokka. Og það eru kannski von­brigði með stjórn­málin. Það sem kom mér líka á óvart í stjórn­málum er að þetta er svo­lítið leik­rit. Þetta er samt ekki svo slæmt og það vinna allir miklu betur saman á bak við tjöldin á Alþingi heldur en sést og svo er fólkið í sjón­varp­inu og þá setja sig allir í stell­ingar og kepp­ast um orðið.

Þetta var óskap­lega skemmti­legur vinnu­staður og það sem er kannski líka svipað er að það er rosa­legur hama­gangur. Engir tveir dagar eru eins. Ég gleymi aldrei þessum Panama-degi þegar ég var óvænt stödd uppi á þingi og þá var ég ekki sinu sinni á þingi. Ég var bara stjórn­ar­for­maður flokks­ins og var í bak­her­bergi þegar allir voru að leita að Sigmundi og hann var ein­hvers staðar á leið­inni til for­seta og það var eft­ir­för og flokk­ur­inn hans labb­aði um og vissi ekk­ert. Þetta var eins og bíó­mynd. Það var eins og spennu­saga að vera þarna.“

Helgi hafði viðrað þær áhyggjur sínar í upp­hafi að Bryn­hildur gæti endað á milli tann­anna á fólki ef hún færi í stjórn­mál. Hún seg­ist hafa sloppið mjög vel. „Það veit eig­in­lega eng­inn að ég var í stjórn­málum nema þeir sem voru ann­að­hvort í stjórn­málum á sama tíma eða ein­hverjir stjórna­málanördar. Það er leið­in­legt að sjá það að það er mikið af góðu fólki sem kemur úr stjórn­málum sem á erfitt upp­dráttar í atvinnu­líf­inu af því að það er búið að stimpla það. Það er mikil synd af því að upp til hópa er fólk í stjórn­málum af heilum hug. Þetta er fórn. Það er skot­veiði­leyfi á þetta fólk og það er eig­in­lega allt túlkað því í óhag af því að það er spenn­andi.“

„Þetta er svaka­leg fórn“

Nettröll koma til tals. „Þetta er hræði­legt. Ég er mjög fegin að hafa gert þetta og ég ber mikla virð­ingu fyrir þeim sem eru til­búnir til að gera þetta og ég segi oft við fólk sem hefur hæst og kvartar mest yfir því hvað allt sé ómögu­legt á þingi að prófa þetta sjálft af því að þetta er ekki svo ein­falt.“

Bryn­hildur segir að sér finn­ist vera of mik­ill hæga­gangur í kef­inu; opin­bera kerf­inu. „Það er bara ofsa­lega erfitt að breyta. Og það eru kannski von­brigðin. Þess vegna finnst mér vera auð­veld­ara að vera með eigið fyr­ir­tæki þar sem sveigj­an­leik­inn er þannig að ef við ákveðum að gera eitt­hvað þá gerum við það. Það þarf ekki að fara í gegnum neinn. Það þarf ekki að fara í gegnum ein­hverjar nefndir, emb­ætt­is­menn og ráð. Til að byggja hús þarf auð­vitað að fara í gegnum mik­inn pró­sess hjá hinu opin­bera en við­skipta­lífið er almennt kvik­ara umhverfi. En að því sögðu er ótrú­legur hæga­gangur í öllu opin­bera kerf­inu hvað varðar yfir­ferð og sam­þykktir teikn­inga og skipu­lags sem veldur oftar en ekki miklum sein­k­unum á fram­kvæmd­ar­tíma og gerir fram­kvæmd­irnar því mun dýr­ari sem skilar sér svo út í verð­lag mann­virkja. Ábyrgð hins opin­bera er því mikil þar. Hver mán­uður sem líður tikkar á ótrú­lega háum vöxtum og kostn­aði. Það er oft talað um verk­tak­ana í þessu sam­hengi en lítið talað um þátt hins opin­bera. Við getum gert svo miklu betur þarna saman.“

HjóninBryn­hildur og eig­in­maður hennar, Helgi, eiga GG verk.

Reka GG Verk saman

Eins og þegar hefur komið fram stofn­aði eig­in­maður Bryn­hildar, Helgi, GG Verk árið 2006 ásamt bróður sínum, Gunnari, sem er smiður en þau Bryn­hildur eru einu eig­endur GG Verks í dag. Faðir þeirra bræðra og annar afi voru smiðir og segir Bryn­hildur að þeir bræður hafi farið að vinna hjá föður sínum frá því þeir voru strákar þannig að það hafi eig­in­lega aldrei neitt annað komið til greina en að vinna í þessu fagi.

„Þeir voru lengi vel und­ir­verk­takar í upp­steypu og þegar ég varð fram­kvæmda- og fjár­mála­stjóri árið 2014 þá var stærsta ákvörð­unin tekin fyrstu vik­una að þeir myndu hætta að vera sjálfir á hamr­inum. Þeir voru þá sjálfir að smíða. Ég sá strax að fyr­ir­tækið gæti ekki stækkað ef þeir væru sjálfir fastir í að smíða.“

Starfs­menn voru þá um tutt­ugu og veltan um 600 millj­ónir króna að sögn Bryn­hildar. Starfs­menn í dag eru um hund­rað fyrir utan álíka fjölda und­ir­verk­taka og í ár verður veltan tæp­lega átta millj­arðar en hún hefur þrett­án­fald­ast síðan Bryn­hildur kom inn í fyr­ir­tækið 2014 og fyr­ir­tækið komið í hóp 10 stærstu bygg­inga­verk­taka á Íslandi.

„Þegar ég fór að vinna hjá fyr­ir­tæk­inu voru þeir að breyt­ast úr því að vera und­ir­steypu­und­ir­verk­takar þar sem þeir sáu um að steypa hús fyrir aðra aðal­verk­taka en þeir voru þó nýbúnir að vinna fyrsta verk­efnið sitt sem aðal­verk­takar fyrir Búseta en það var unnið á árunum 2013-2014. Og það var stórt skref.

Breytti ferlum og markaði vörumerki

Þegar ég hóf störf hjá fyr­ir­tæk­inu gaf ég mig ekki út fyrir að vita neitt um bygg­ingar eða hvernig á að byggja en þeir kunna það. Ég kom inn með skipu­lagið, mark­aðs­málin, ferla­hugs­un­ina, gæða­kerfið og vand­aða mannauðs­stjórnun. Við tókum þá ákvörðun í nóv­em­ber 2014 að fá alþjóð­lega ISO-9001 gæða­vottun en á þeim tíma var bara einn verk­taki á land­inu sem var með það og við vorum komin með það átta mán­uðum síðar. Ég veit að það getur tekið nokkur ár þannig að við keyrðum hratt og örugg­lega á þetta. Þetta var kannski í fyrsta sinn sem það var ein­hver ferla­hugsun hjá fyr­ir­tæk­inu og almenni­leg tölvu­væð­ing og kannski líka þetta kven­lega. Það er svo margt búið að ger­ast í þessum bransa á tíu árum. Ef maður fór inn á bygg­inga­svæði á þessum tíma þá sá maður ekki marga með hjálma. Það var hins vegar mikil kúreka­stemmn­ing. Og þegar ég bað um ein­hver gögn þá var bara pappír á verk­stöð­unum. Og við vorum ekki með heima­síðu hvað þá sýni­leg á sam­fé­lags­miðlum. Það hefur bara mikið breyst í brans­anum og almennt til góðs. Þannig að ég kom kannski inn með það. Ég byrj­aði að gera heima­síðu og brandið og svo ferla, frammi­stöðu­mat og starfs­manna­sam­töl, eitt­hvað sem eng­inn sem vann hérna hafði farið í í þessum bransa á þeim tíma. Það var þetta stjórn­un­ar­lega og fag­lega sem við þekkjum úr öllum öðrum brönsum.“

Bryn­hildur seg­ist vera góð í því þegar kemur að skipu­lagi, ferlum, stefnu­mörkun og sýn og hvernig eigi að fram­kvæma þetta allt. „En við nátt­úr­lega búum til hús og bygg­ingar og ég geri ekk­ert af því. Ég er hins vegar mjög góð í að passa að það séu ferlar á bak við hvernig við und­ir­búum það, hvernig við áætlum það, hvernig við nálg­umst við­skipta­vini okkar, hvernig við fylgjum hlut­unum eftir og hvernig við ráðum og rekum. Ég held að þetta vinni allt mikið saman. Við hefðum senni­lega aldrei getað náð þess­ari stærð öðru­vísi en að vera með eitt­hvað skipu­lag og eitt­hvað kerfi, gæða­kerfi, og ég átta mig á því. En fyrst og fremst erum við nátt­úr­lega með frá­bært fólk og það eru allir svo vilj­ugir og gef­ast ekki upp á að vera til í ein­hverjar breyt­ingar af því að við breyt­umst mjög mikið hérna og inn­leiðum hratt hluti og núna er mikil áhersla á að nýta gervi­greind sem mest hjá okkur,“ segir hún.

Selja beint til íbúðakaupenda

„Það er orð­inn mjög stór hluti og það eru allir bara til í allt. Við kynntum nýlega nýjan Vegvísi sem er leið­ar­vísir­inn okkar frá und­ir­bún­ingi verk­efna til afhend­ingar. Það eru allir svo vanir því að við séum að reyna á okkur eða bara að verða betri. Það er alveg á hreinu að þetta bygg­ist allt á því að við erum með frá­bært fólk sem er alltaf til í að reyna að skara fram úr í öllu sem við gerum. Bæði starfs­fólk og und­ir­verk­taka sem við eigum orðið ára­löng sam­bönd með.“

Árið 2016 fór GG Verk að vinna að sínum eigin verk­efnum þar sem fyr­ir­tækið byggir og selur svo beint til íbúða­kaup­enda. „Það var mjög stór draumur hjá þeim bræðrum. Í dag eru 50% verk­efna þannig að við þróum verk­efni, byggjum og seljum beint til kaup­enda eða íbúða­eig­enda og svo 50% útboðs­verk þar sem við erum aðal­verk­takar fyrir til dæmis fjár­festa eða opin­bera aðila.“

Bryn­hildur segir að GG Verk taki bara að sér stór verk­efni og að fyr­ir­tækið taki almennt ekki að sér verk­efni undir einum og hálfum millj­arði króna. „Flest okkar verk­efni eru fjöl­býl­is­hús með fimm­tíu íbúðum eða meira eða stærri mann­virki á borð við íþrótta­hallir og ýmis stærri atvinnu­hús­næði. Við erum nýbúin að klára 150 íbúðir sem var eigið verk­efni í Hamra­nes­inu í Hafn­arf­iði og við erum svo núna að byggja um tvö hund­ruð íbúðir í Gufunesi fyrir aðra fjár­festa en erum þegar búin að byggja þar hund­rað og fimm­tíu íbúðir. Við erum að stækka við­bygg­ing­una í Firðinum auk nýs hátækni­bóka­safns, íbúða og hót­els sem er líka unnið fyrir aðra fjár­festa. Það er byrjað að steypa sökkla í Roða­hvarfi þar sem við erum sjálf að fara að byggja níu­tíu íbúðir og þá erum við að byggja sól­ar­hrings­þjón­ustu­í­búðir í Urð­ar­hvarf­inu sem er unnið fyrir fjár­festa en jafn­framt mjög sam­fé­lags­lega jákvætt verk­efni. Síðan erum við að byggja sjö fjöl­býl­is­hús í Hnoðra­holti í Garðabæ og er það eigið verk­efni.“

Svakaleg áhætta

Það fylgir því áhætta að fjár­festa í svona stórum verk­efnum og segir Bryn­hildur að þau geti aldrei verið viss um að þetta gangi upp. „Þetta er svaka­leg áhætta og það er líka eitt­hvað sem ég þurfti að þró­ast út í af því að ég var frekar þeim megin í líf­inu þegar ég var á þessum kross­götum, ung kona nýkomin úr námi og búin að vera að hugsa um öryggi og jafn­vel að starfa hjá hinu opin­bera. En það var kannski ákveð­inn vendi­punktur þarna hjá mér og vakn­ing. Þetta var í hrun­inu, mað­ur­inn minn var að reka bygg­inga­fyr­ir­tæki og það var allt undir - heim­ilið og allt - og ég fatt­aði að það væri eng­inn öruggur. Það eig­in­lega varð til þess að ég þorði til dæmis að stofna mitt eigið fyr­ir­tæki sem var alls ekki svona áhættu­samt af því að það voru ekki fjár­fest­ingar á bak við það; við þurftum bara tölvu, prent­ara og síma. En ég efast samt um að ég hefði gert það nema út af þeirri lífs­reynslu sem það var að ganga í gegnum hrunið með allt undir hvort sem var. Allt í einu hafði maður engu að tapa og allt að vinna,“ segir hún.

Þau eru með allt undir í rekstr­inum.

„Eitt sem ég hef lært af mann­inum mínum líka er að það er ekk­ert hægt að vera hálfur í þessu og það er allt undir. Og það gleym­ist kannski svo­lítið í umræð­unni um fyr­ir­tækja­eig­endur og bara fyr­ir­tækja­rekstur almennt, sér­stak­lega þá sem eru ekki bakk­aðir upp af ein­hverjum sjóðum eða fjár­festum. Við erum ekki með neina svo það sé tekið fram og í dag er ég og mað­ur­inn minn, Helgi, eini eig­endur og það er allt undir. Það er eng­inn sjóður á bak við okkur. Þetta verður bara að ganga upp.“

Þakkar Guði að vera með manninum sínum í rekstri

Oft hriktir í stöðum rekst­urs­ins vegna óvissu.

„Efna­hags­um­hverfið er eins og hjarta­línu­rit. Ég er mjög skipu­lögð og áætl­a­naglöð að eðl­is­fari en hins vegar verður maður líka að vera með þetta „þetta redd­ast“ og að allt verði í lagi. Og hvað ef? Og hvað er það versta sem getur gerst?“ Bryn­hildur nefnir í þessu sam­bandi hug­leiðslu, góða tón­list og gott hjóna­band. „Ég þakka Guði fyrir að vera með mann­inum mínum í þessu af því að það er mjög erfitt að útskýra þetta fyrir öðrum þetta álag, áhyggj­urnar, press­una og óviss­una. Það breytt­ust til dæmis allar for­sendur vegna Covid-heims­far­ald­urs­ins og svo Úkra­ínu­stríðs­ins. Öll virð­is­keðjan riðl­að­ist. Það hækk­uðu öll aðföng. Við vorum kannski búin að gera fast­verð­samn­inga til þriggja ára við verk­kaupa um að byggja ein­hverja blokk og hún kost­aði ákveðið en til dæmis timbrið og stálið hækk­uðu langt upp í rjáfur og vísi­talan tók ekk­ert á því strax. Það leið langur tími þangað til það gerð­ist þannig að það var algjör for­sendu­brestur. Og þá er það bara krísu­stjórnun og það er bara 24/7 að finna út úr þessu, tala við sitt fólk, snúa bökum saman og ráða fram úr hlut­unum.“

Opin og hreinskilin

Bryn­hildur er spurð hvernig það hafi haft áhrif á hana að vera karl­inn í brúnni eða reyndar konan í brúnni.

„Í fyrsta lagi er mjög gaman að vera konan í brúnni í þessum bransa. Miðað við hvað ég er mikil „stelpu­stelpa“, mikil kona og „girl power“ alla leið þá finnst mér ótrú­lega gaman að vinna mikið í kringum karl­menn. Mér finnst þeir vera skemmti­legir og það hefur líka verið æðis­legt að hafa getað haft áhrif á það að fjölga konum. Gæða- og örygg­is­stjór­inn er kona, frá­far­andi fjár­mála­stjóri er kona og mannauðs­sér­fræð­ing­ur­inn er kona. Af fjórum verk­efna­stjórum eru tvær konur. Þannig að það er mjög gaman að sjá konum fjölga í stjórn­enda­stöðum í brans­anum og við reynum alltaf að hafa augun opin fyrir því af því að mér finnst við vinna bara svo miklu betur saman heldur en í sundur.“

„Mig langar ekki til að reka bygg­inga­fyr­ir­tæki sem er alveg eins og eitt­hvað annað“

Að jafna kynja­hlut­fall er leið að árangri, að mati Bryn­hildar.

„Jafn­frétti er ekki bara rétt­læt­is­mál heldur hreint og klárt gæða- og rekstr­ar­mál, enda sýna allar rann­sóknir að fyr­ir­tæki sem hafa gott jafn­vægi í kynja­hlut­falli stjórn­enda vegnar mun betur en þar sem er eins­leitni. Það er kannski það sem hefur litað mig, mig langar ekki til að reka bygg­inga­fyr­ir­tæki sem er alveg eins og eitt­hvað annað. Mér finnst gaman að reyna að gera það eitt­hvað öðru­vísi og ég held að það sé kannski þessi sam­runi kven­lægra og karllægra gilda og hæfni sem gerir það að verkum. Þannig að það er ótrú­lega gaman að fá að setja fingrafar sitt á fyr­ir­tæki í þessum bransa sem er almennt séð mjög karllægt. Við getum verið svo geggjuð saman.“

Þó að það séu hlut­falls­lega fleiri konur í stjórn­enda­hlut­verkum hjá GG Verki en gengur og ger­ist í brans­anum er þó mik­ill meiri­hluti starfs­manna karlar og er Bryn­hildur síðan spurð hvernig hún vill að fólk upp­lifi sig sem stjórn­anda.

„Ég vil kannski fyrst og fremst að fólk upp­lifi mig sem stjórn­anda sem veit hvert hann er að fara og hvert fyr­ir­tækið er að fara. Það er mik­il­vægt fyrir mig að fólk skilji gildi okkar, hvað skiptir okkur máli og hver við viljum verða þegar við verðum stór þannig að það sé skýr­leiki í loft­inu og að fólk fatti og finni það raun­veru­lega að þó að við séum að búa til bygg­ingar að þá er fólk aðal­at­riði og það er fólkið sem býr til bygg­ing­arnar, býr í þeim og starfar. Og ég vil að það viti, skilji og finni að það sé ein­hver með plan. Og þegar það er óró­leiki sem er svo oft í efna­hags­um­hverf­inu að maður haldi ró sinni og sé með plan og að allir viti hvert það er. Mér þætti mjög vænt um ef fólk skynj­aði það eða því liði þannig.“

Þegar Bryn­hildur er spurð hvort hún telji að hún sé öðru­vísi stjórn­andi en karl­kyns stjórn­andi seg­ist hún telja að hún sé kannski opn­ari. „Ég er hrein­skilin. Ég held ég sé ekk­ert endi­lega lengur mjúk. Ég var það fyrst. Fyrst skipti mig miklu máli að öllum lík­aði vel við mig og það var akk­il­les­ar­hæll.“

Var það kannski út af óör­yggi? „Já, það var eitt­hvað slíkt. Þetta var eitt­hvað sem ég þurfti að taka á þegar ég var í nám­inu úti af því að þar fór maður í gegnum mikil per­sónu­leika­próf og það var verið að skoða mann frá öllum sjón­ar­hornum sem stjórn­anda. Þegar ég kom út í námið árið 2018 mæld­ist ég allt of diplómat­ísk sem yfir­stjórn­andi og allt of fljót að breyta um skoðun ef aðrir komu með góð rök og stóð kannski ekki nógu fast á minni sýn. Mér var sagt að með þessu myndi ég missa virði mitt sem yfir­stjórn­andi af því að það er verið að fjár­festa í ákveðnu virði og virðið bygg­ist upp á ein­hverri reynslu og þekk­ingu en ef maður vill fara sömu leið og meiri­hlut­inn þá er ekk­ert virði í manni.

„Ég finn að ég er ekki eins mjúk og ég var áður.“

Það var tekið hart á þessu í nám­inu á öðru árinu í nám­inu sem er fyndið vegna þess að ég held að allir upp­lifi mig sem mjög ákveðna mann­eskju og halda jafn­vel að ég sé grjót­hörð og ósveigj­an­leg sem var og er enn svo langt frá sann­leik­anum. Það urðu kafla­skil samt þarna árið 2019 hjá mér varð­andi þetta og ég finn að ég er ekki eins mjúk og ég var áður. Það teng­ist líka reynsl­unni. Ég veit ekki hvort það er gott eða slæmt en númer eitt er að vera sann­gjarn og mann­legur en ef hlut­irnir eru hins vegar ekki í lagi þá er ég ekki mjúk. Ég hækka ekki róm­inn en er þó mjög skýr og segi afdrátt­ar­laust að þetta sé ekki ásætt­an­legt hvort sem það er birgi, starfs­maður eða við­skipta­vinur.“

Einkenni góðs stjórnanda

Bryn­hildur S. Björns­dóttir hefur verið í stjórn­enda­störfum í áraraðir og er menntuð í fræð­unum. Hún er auð­vitað spurð hvað ein­kenni góðan stjórn­anda.

„Stjórn­andi þarf að elska fólk og vera fær í sam­skiptum, fær í að miðla. Einmitt það sem við vorum að tala um áðan - að fólk viti hvert fyr­ir­tækið er að fara, hvað skiptir fyr­ir­tækið máli og hvaða kröfur eru gerðar. Það er mjög mik­il­vægt að geta miðlað þessu. Stjórn­and­inn þarf líka að vera fram­sýnn. Og hann verður að vera taktískur. Og stra­tegískur. Og hann verður að geta lesið umhverfi sitt og séð glufur á mark­aði og greint, verið góður grein­andi. Verið góður í að greina ógnir og tæki­færi og ná að miðla þessu og búa til ein­hvers konar leið þangað. Ég held að það eigi við alls staðar en hann verður að vera þraut­seigur og í jafn­vægi af því að það er stans­laust verið að kippa undan manni fót­unum. Og það bara liggur í hlut­ar­ins eðli - ef þú ert með hund­rað eða fleiri starfs­menn þá koma alls konar hlutir fyrir og stundum mjög erf­iðir hlutir. Það er bara eðli­legur hluti af því að vera stjórn­andi og bera ábyrgð. Það þarf til dæmis að geta verið sveigj­an­legur og gera sér grein fyrir aðstæðum og geta spilað með þegar eitt­hvað kemur upp á hjá fólki.“

Hún ítrekar að miðl­unin sé lyk­il­at­riðið. „Það er alveg sama hversu klár stjórn­and­inn er og hversu góður grein­andi hann er og með sýn - ef hann nær ekki að miðla því þá fær hann ekki fólk með sér.“

Kalt að vera yfirstjórnandi og eigandi

Bryn­hildur hefur verið eins og fyrr segir fram­kvæmda- og fjár­mála­stjóri GG Verks en er núna fram­kvæmda­stjóri þjón­ustu og sam­skipta, stjórn­ar­for­maður og með­eig­andi en seg­ist samt ekki upp­lifa sig á toppnum í líf­inu. Hún er samt spurð hvort það geti verið kalt á toppnum en hún var vissu­lega áður fram­kvæmda­stjór­inn og er nátt­úr­lega annar eig­and­inn og stjórn­ar­for­mað­ur­inn. „Það er alveg kalt að vera yfir­stjórn­andi og eig­andi fyr­ir­tækis. Ég orða það bara þannig. Maður fær mjög sjaldan hrós. Maður fær miklu frekar að vita hvað megi fara betur. Og það liggur bara í hlut­ar­ins eðli. Þannig að það er eng­inn sem gefur manni reglu­lega upp­byggj­andi end­ur­gjöf eins og þegar fólk er með yfir­mann. Það er eitt. Þetta er svipað og í stjórn­mál­unum þar sem fólk fær eig­in­lega bara nei­kvæða end­ur­gjöf. Reyndar fæ ég alveg jákvæða end­ur­gjöf þar sem ég á ynd­is­lega sam­starfs­menn en ég meina að almennt er það eins og ég nefndi. Sem betur fer á ég mann­inn minn að sem kollega og með­eig­anda. Ég hugsa að það væri mjög ein­mana­legt að vera einn eig­andi fyr­ir­tækis eða í ein­hverri eig­enda­grúppu sem væri ekki tengd svona sterkum böndum. Þannig að það er æðis­legt.“

Leiðinlegt að talað sé um „elítu“

Bryn­hildur talar um orð­ræð­una í sam­fé­lag­inu þegar kemur að fyr­ir­tækja­eig­endum. Hún bendir á að stundum sé talað um „elítu“ sem henni finnst vera leið­in­legt. „Fólk sér kannski bara það góða. Fólk sér bara ferða­lögin sem farið er í vegna þess að maður getur ekki tekið sér frí og verið á land­inu af því að maður er alltaf að hérna heima. Þetta lítur kannski mjög glæsi­lega út en það veit eng­inn hvað maður er að glíma við á meðan, áhyggj­urnar og efna­hags­um­hverfið eða hvað hefur verið að ger­ast til dæmis inn­an­húss í fyr­ir­tæk­inu. Ég held að fólk gefi sér að það sé aðeins glæsi­legra að vera fyr­ir­tækja­eig­andi með­al­stórs fyr­ir­tækis heldur en það raun­veru­lega er. En það er ótrú­lega gaman og gef­andi. Annars myndi ég ekki vera það.“

Það er bæði álagið og áhættan. „Þessu fylgir mikil áhætta og maður leggur allt undir og leggur allt í þetta og það er ekk­ert sem heitir helg­ar­frí eða kvöld­frí. Maður er alltaf að. Það er hik­laust fundað á kvöldin og um helgar ef það eru krísur. Við erum líka að tala um bygg­inga­fyr­ir­tæki og það getur allt gerst á verk­stöð­unum. Allt í einu fer kannski ein dæla að leka og þá þarf að rjúka til. Það er eng­inn sem kemur í stað­inn fyrir fyr­ir­tækja­eig­anda. Það er eng­inn með allt undir nema hann. Eðlilega.“

Sitthvor hæfnin og færnin

Karl­maður kemur inn á skrif­stof­una og sést í gegnum glerið sem skilur að fund­ar­her­bergið og alrýmið. Þetta er Helgi, eig­in­maður Bryn­hildar og með­eig­andi. Hún er spurð hvernig það sé að vinna með eig­in­mann­inum og hvort þau tali mikið um vinn­una á heim­il­inu.

„Það þurfti alveg tíma til að slípa það en við vorum akkúrat að tala um það í hádeg­inu að við erum til dæmis glötuð í að vinna saman að sam­eig­in­legum verk­efnum þar sem við erum að gera það sama heima. Ekki hérna í vinn­unni heldur heima. Ef við erum að gera upp bað­her­bergi þá rek­umst við á af því að við erum mjög ólík. Hann hugsar hlut­ina vel en ég veð áfram. En í vinn­unni gengur það ótrú­lega vel af því að við erum með sitt­hvora hæfn­ina og færn­ina. Mér dettur ekki í hug að hafa skoð­anir á því hvernig á að byggja hús og hann hefur ekki skoðun á því hvernig eigi að byggja upp ferla og stra­teg­íur. Við kunnum svo vel að meta hvað hitt kann að það gengur mjög vel. Svo erum við með sitt­hvora skrif­stof­una og erum ekk­ert alltaf á sömu fund­unum.

Varðandi hvort við tölum mikið um vinn­una utan vinnu, já. Við höfum aldrei sett upp reglu um að gera það ekki af því að það er allt undir. Þetta er svo mikið líf okkar. Og fjöl­skyldan er líka með okkur í þessu,“ segir Bryn­hildur en þrjú af fjórum börnum hafa unnið fyrir fyr­ir­tækið að ein­hverju leyti.

Stór­fjöl­skylda Helga á sum­ar­bú­stað og þangað fara þau oft og stundum fer Bryn­hildur þangað ein til að vinna og ein­beita sér að vinn­unni.

Bryn­hildur og Helgi kynnt­ust á ung­lings­ár­unum. Hún var fimmtán ára en hann nítján. Þau bjuggu bæði í Selja­hverfi og heim­sótti hún oft heim­ili hans þar sem hún þekkti bróður hans sem er tveimur árum eldri en hún. Hún við­ur­kennir að þau hafi strax orðið skotin í hvort öðru, hún og Helgi, en ekk­ert gerð­ist. Ald­urs­mun­ur­inn á þessum aldri er meiri en þegar um full­orðna er að ræða. Það var svo árið 2006 sem þau byrj­uðu að vera saman og í dag búa þau ásamt tveimur yngstu dætr­unum í ein­býl­is­húsi í Selja­hverfi, hverf­inu þar sem þau kynnt­ust.

„Þetta var allt saman skrifað í skýin árið 1992,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur