Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Margrét Löf segist vera „mjög lífsglöð og góðhjörtuð manneskja“

Rýfur þögn­ina í við­tali eftir að hafa verið dæmd fyrir að bana föður sínum. Segist vera mjög lífs­glöð.

Margrét Löf segist vera „mjög lífsglöð og góðhjörtuð manneskja“
Margrét Löf Vann til fjölda verð­launa í hesta­mennsku og námi. Mynd: Facebook

Margrét Löf, sem var í des­em­ber dæmd í 16 ára fang­elsi fyrir að hafa orðið föður sínum að bana með alvar­legri lík­ams­árás og gert til­raun til þess sama gagn­vart móður sinni á heim­ili þeirra í Súlunesi í Garðabæ, stígur fram í við­tali hjá RÚV í fyrsta sinn eftir dóm­inn.

Þar segir hún að hún stefni að því að læra lækn­is­fræði eða dýra­lækn­is­fræði.

„Ég myndi lýsa sjálfri mér fyrst og fremst sem mjög góð­hjart­aðri mann­eskju,“ segir Margrét, þegar hún er beðin að lýsa sjálfri sér.

„Já, ég elska að gefa af mér og láta gott af mér leiða og vera til staðar fyrir fólk. Og svo er ég trú, trygg, traust. Og svo er ég mjög metn­að­ar­gjörn og klára alltaf vel það sem ég tek mér fyrir hendur og vil skila því vel frá mér. Og svo er ég rosa mikil keppn­is­mann­eskja líka. Og finnst ofboðs­lega gaman að keppa.“

Margrét bað síðar Þóru Tóm­as­dóttur, frétta­konu á RÚV, að bæta við að hún væri „hrein­skilin, ein­læg, hress og góð í skóla og hafi fengið fjöl­mörg verð­laun fyrir náms­ár­angur.“

Hún lýsir sjálfri sér enn meira.

„Ég er svo­lítið svona eins og Spán­verji eða Ítali í hjart­anu. Elska að dansa og er rosa opin og svona. Finnst gaman að spjalla. Og svo­lítið eins og menn­ingin er þar, þessi suð­ræna menn­ing. Ég passa mjög vel inn í hana.“

Spurð út í fram­tíð­ar­drauma seg­ist Margrét vilja syngja og semja lög. „Mig lang­aði að nota og nýta þessa tón­list­ar­hæfi­leika sem ég hef meira. Líka var mein­ingin að læra eitt­hvað heil­brigðistengt og er jafn­vel ennþá að hugsa um dýra­lækn­inn, bara af því að ég elska dýr svo mikið. En svo var ég líka að pæla að fara annað hvort í lækn­is­fræð­ina eða beint í tauga­vís­indi, af því að ég hef svo mik­inn áhuga á manns­lík­am­anum yfir­höfuð og sér­stak­lega tauga­frumum og mænu­skaða, hef mikið verið að vinna með fólki með mænu­skaða. Mér finnst það bara svo heill­andi.“

Hún bætir við: „Og svo er nátt­úru­lega mark­miðið að stofna fjöl­skyldu, og allt þetta.“

Síðar ræðir Margrét löngun sína til að ná „innri ró“.

„Svo langar mig líka í fram­tíð­inni að geta verið búin að vinna, svona mastera þessa innri vinnu, þannig að ég verði búin að ná full­kominni stjórn ef það kemur ein­hver nei­kvæð hugsun eða nei­kvæð til­finn­ing, eða ein­hverjir erf­ið­leikar eða áföll, að geta bara tek­ist ofboðs­lega vel á við það að og vera búin að ná full­kominni innri ró og full­komnum innri frið.“

Spurð út í líðan hennar þegar hún var yngri sagði Margrét: „Já, ég myndi lýsa mér sem bara mjög lífs­glaðri mann­eskju, en ég hef lent í áföllum sem hafa verið mis­stór. Og það er miklu meiri vinna sem þarf að leggja í ákveðin áföll frekar en önnur,“ segir hún og bætir við að enn eigi eftir að vinna úr ein­hverjum þeirra. „Það er mark­miðið að klára að vinna úr því öllu.“

„Öll þessi áföll sem ég hef lent í, þau hafa mótað mig. En ég hef alltaf unnið áfram með lífið og reynt að vinna úr hlut­unum á nátt­úru­legan og venju­legan hátt. Og hef aldrei til dæmis farið að leita í það að deyfa mig, hvort sem það er með fíkni­efnum eða áfengi eða neitt slíkt.“

Margrét var spurð hver ástæðan hefði verið fyrir því að fjöl­skyldan leit­aði sér hjálpar.

„Já, við leit­uðum okkur hjálpar eða aðstoðar sem fjöl­skylda, sem ein heild, af því að það voru ákveðnir erf­ið­leikar eða brestir sem við vildum vinna úr, vildum láta hlut­ina ganga upp og láta okkur líða vel saman. Við erum fjöl­skylda sem þykir rosa­lega vænt um hvort annað og við áttum líka mjög góðar stundir, bara svo það sé tekið fram. Bara mjög góða tíma saman líka, sko. Þrátt fyrir að við leit­uðum okkur aðstoðar. Og við vildum allt það besta fyrir hvort annað líka og hugs­uðum mjög fal­lega til hvors ann­ars.“

Hún segir fjöl­skyldu­með­ferð­ina hafa hjálpað.

„Já, mér fannst það. Á ein­hvern hátt. Gerði það, alger­lega. Það var alveg eitt­hvað sem virk­aði og hafði áhrif. En kannski ekki nógu mikið.“

Hún játar að hafa lifað við van­líðan fyrir atburð­inn.

„Já, ég nátt­úr­lega hefði þurft meiri hjálp við að vinna úr mínum áföllum. Og svo nátt­úru­lega við fjöl­skyldan, líka saman. Úr okkar erf­ið­leikum.“

Þá ræðir hún eyrna­vanda­mál, sem hún seg­ist hafa fengið vegna áfalla, en sagt var frá því í dómnum yfir henni að á heim­ili fjöl­skyld­unnar mátti vart heyr­ast hljóð og áttu for­eldrar hennar sam­skipti með miða­send­ingum.

„Þetta sem ég fékk 2019, það var bara út af í raun­inni van­líðan og áföllum, það bara brestur eitt­hvað inni í lík­am­anum. Hjá mér var það bara í eyr­unum. En ég er með full­komna heyrn og allt það, ekki nein heyrna­skerð­ing. Ekki neitt sem er líf­fræði­lega eða lík­am­lega að. Þetta bara birt­ist með mis­mun­andi hætti hjá fólki. Ein­hverjir missa hárið, fá skalla­bletti. Aðrir fá ein­verja verki ann­ars staðar í lík­am­anum. Ég fékk þetta bara í eyrun og þetta er bara tengt and­legri líðan og áföllum.“

„En það getur ekki alltaf verið enda­laus streita. Og streita og streita.“
Margrét Löf

Margrét útskýrir nánar.

„Þetta er eitt­hvað svona við­vör­unar- og varn­ar­kerfi lík­am­ans. Sér­stak­lega ef ég var í ákveðnum aðstæðum. Og það er hægt að vinna í þessu og laga þetta til baka. En það getur ekki alltaf verið enda­laus streita. Og streita og streita. Og næsta áfall og næsta áfall og næsta áfall.“

„Ég hugsa mjög fal­lega til þeirra. Beggja. Þetta er nátt­úru­lega fjöl­skyldan mín. Og bara það mik­il­væg­asta í mínu lífi. Það eru mamma og pabbi. Þetta eru nátt­úru­lega for­eldrar mínir og mér þykir mjög vænt um þau. Ég hef alltaf hugsað bara mjög fal­lega til þeirra. Og borið mikla ást til þeirra. Eins og þetta bara, að pabbi sé dáinn. Ég er ennþá bara í ein­hverri afneitun, held ég sko.“

Hún seg­ist sakna föður síns „alveg svaka­lega mikið. Ég er bara alveg að fara að gráta. Já, það er svo­leiðis,“ segir Margrét Löf í við­tali við RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi