Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórunn Valdimarsdóttir tekur dauðanum fagnandi

„Það verður gott að þurfa ekki að vera til“

Þórunn Valdimarsdóttir tekur dauðanum fagnandi
Þórunn Valdi­mars­dóttir Þórunn ótt­ast ekki dauð­ann Mynd: Golli

Sagn­fræð­ing­ur­inn og rit­höf­und­ur­inn Þórunn Valdi­mars­dóttir segir sorg­ina eftir frá­fall eig­in­manns síns hafa mótað líf sitt, hugsun og afstöðu til dauð­ans, en ekki brotið hana niður. Þetta kemur fram í við­tali við Þórunni sem birt­ist í Mannlífi á dög­unum.

Þórunn og eig­in­maður hennar, Eggert Þór Bern­harðs­son, voru saman í 34 ár. Eggert starf­aði um ára­tuga­skeið við Háskóli Íslands, fyrst sem kenn­ari í sagn­fræði og síðar sem pró­fessor í hag­nýtri menn­ing­ar­miðlun. Hann kom meðal ann­ars að stofnun þeirrar deildar með aðstoð Lands­banka Íslands fyrir hrun. Eggert var einnig afkasta­mik­ill höf­undur og skrif­aði tvær bækur í rit­röð­inni Saga Reykja­víkur, þar á meðal Undir báru­járns­boga um bragga­sög­una og Sveitin í sál­inni, sem kom út skömmu fyrir and­lát hans.

Þórunn seg­ist hafa haft áhyggjur af heilsu manns síns löngu áður en hann lést.

„Hann fitn­aði og vann allt of mikið þannig að ég ótt­að­ist um hann rúmu ári áður en hann dó. Ég gaf honum í jóla­gjöf gjafa­bréf til að fara í rann­sókn hjá Hjarta­vernd en hann lét árið líða án þess að nota það. Hann sagði í háskól­anum milli jóla og nýárs að hann ætl­aði að fara til læknis eftir ára­mótin 2013- 2014, fann þá að hann var orð­inn úrvinda.“

Á gaml­árs­dag árið 2013 fékk Eggert hjarta­á­fall heima. Þórunn og yngri sonur þeirra reyndu að hnoða hann, en Eggert lést áður en sjúkra­flutn­inga­menn komu á stað­inn. Æðar til hjart­ans reynd­ust vera kolstíflaðar.

Í kjöl­farið tók við sorg sem hún segir erfitt fyrir aðra að skilja.

„Sorgin er eðli­leg. Lífið sparkar í alla ein­hvern tím­ann á ævinni á allan mögu­legan hátt og við verðum bara öll að vera dug­leg. Maður verður bara að vera sáttur. Ég ýtti sorg­inni út í Faxaflóa. Bað hvítu hryss­urnar í fló­anum að nudda sorg­ina með hóf­unum og senda mér hana í smá­skömmtum. Þetta er sjálfs­stjórn. Ég er góð í sjálfs­stjórn þótt ég viti stundum ekki hvað ég eigi að gera. Þetta gerð­ist fyrir ell­efu árum. Það hjálpar að eiga kisur.“

Þórunn segir mik­il­vægt að þeir sem standa eftir hugi að eigin heilsu.

„Mik­il­vægt er að huga að heilsu þeirra er næstir standa eftir bestu getu. Þá verður sekt­ar­kenndin ekki eins óbæri­leg.“

Hún segir sorg­ina hafa breyst með tím­anum.

„Auðvitað var maður varn­ar­laus og við­kvæmur, ég hafði aldrei á ævinni þurft að vera ein. Eftir ell­efu ár er þetta frekar tregi og dep­urð en sorg, það væri synd gagn­vart til­ver­unni að hund­skast ekki til að finna björtu hlið­arnar á líf­inu eftir allan þennan tíma. Þar er ég oft­ast, sól­ar­megin.“

Þórunn leggur áherslu á virkni, hreyf­ingu og sköpun.

„Hef verið dug­leg að skrifa og gefa af mér, öll vinna er frá­bær. Ég vil frekar tala um ein­veru heldur en sorg. Maður hefur meiri tíma til að hugsa. Maður nýtur frelsis. Besta reglan er að sjá kost­ina í sinni stöðu. Muna að hreyfa sig.“

Hún lýsir einnig lík­ams­rækt sem hún stundar nú um stundir.

„Núna er ég á nám­skeiði með Lilju systur sem heitir Bein í baki í Kram­hús­inu. Þetta er mús­ík­leik­fimi, bönnuð yngri en 65 ára. Við lærum að finna hvern ein­asta vöðva lík­am­ans og gera þá sterka. Flest sitjum við eins og rækjur á stól og það eyði­leggur stoð­kerfi margra. Best er að sitja svona,“ segir Þórunn og sýnir hreyf­ing­una. „Sitji maður á hækjum sér, eins og allar konur gerðu oft á dag áður en kló­settin komu, þá teyg­ist hrygg­ur­inn.“

Aðspurð um dauð­ann seg­ist hún ekki ótt­ast hann

„Frelsun. Það verður gott að þurfa ekki að vera til. Ekkert vesen. Í gamla daga var lífið stutt og allir deyj­andi, þá var gott að hafa trú­ar­brögð sem sann­færðu fólk um líf eftir dauð­ann.“

Hún seg­ist taka dauðan fagn­andi.

„Ég tek honum fagn­andi.“

Um hvað taki við eftir dauð­ann segir hún:

„Það taka við örverur, bakt­er­íur og svo koma víurnar, orm­arnir. Þannig heldur lífið áfram og í afkom­endum. Trúin er samt góð og þessi draumur um að fara í ljósið, lífið má kalla ljós og það heldur áfram sínum straumi. Minn guð er til­veran. Ég varð trúuð sem barn og ég bý að því ennþá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu