Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bróðir Margrétar Löf opnar sig um andlát föður síns

„Af hverju gerði eng­inn neitt?“

Bróðir Margrétar Löf opnar sig um andlát föður síns
Margrét Löf Hálf­bróðir Mar­grétar opnar sig um málið Mynd: Facebook

Bróðir Mar­grétar Höllu Hans­dóttur Löf er þeirrar skoð­unar að unnt hefði verið að koma í veg fyrir þann harm­leik sem end­aði með því að hún ban­aði föður þeirra, Hans Löf, í Súlunesi í fyrra. Hann segir að kerfið hafi brugð­ist og lýsir bæði hand­töku­deg­inum og þeirri upp­lifun sem hann hefur haft af mál­inu í kjöl­farið.

„Það sem mér finnst verst í þessu öllu saman er að það hefði verið hægt að grípa inn í,“ segir hálf­bróðir Mar­grétar, sem dæmd var fyrir mann­drápið í apríl 2025. Þau eru sam­feðra en ólust ekki upp saman.

Í síð­ari þætti Víta­hrings Mar­grétar Löf á Rás 1 segir hann frá sinni sýn á málið. Hann kýs að stíga ekki fram undir nafni. Í þátt­unum er leit­ast við að skýra hvernig aðstæður innan fjöl­skyld­unnar þró­uð­ust á þann veg að úr varð ban­vænn atburður.

Bróð­ir­inn gagn­rýnir að heil­brigð­is­starfs­fólk hafi ekki gripið til harð­ari aðgerða þegar grunur vakn­aði um að faðir hans væri beittur heim­il­is­of­beldi. Hans Löf leit­aði ítrekað til lækna vegna áverka sem hann hafði hlotið af völdum Mar­grétar dag­ana áður en hann lést. Sjálfur seg­ist bróð­ir­inn ekki hafa haft hug­mynd um ofbeldið sem átti sér stað á heim­il­inu.

„Ég skil alveg að fólk sé að velta því fyrir sér: Hvar var bróð­ir­inn? Af hverju steig hann ekki inn í? Ég skil það alveg, því mín saga er ekki þarna úti. Það veit eng­inn hvernig okkar sam­band var. Fólk hélt kannski að ég hefði alist upp á heim­il­inu og þetta væri hið hefð­bundna fjöl­skyldu­mynstur. En það var ekki. Ég hefði stigið inn í á sek­únd­unni hefði ég vitað af þessu.“

„Mikill ljúflingur“

Hálf­bróðir Mar­grétar var kom­inn vel á ung­lings­ald­ur­inn þegar hún fædd­ist og hafði í raun ekki myndað tengsl við föður sinn fyrr en mun síðar. Samband móður hans og Hans Rolands Löf var stutt og feðgarnir kynnt­ust ekki fyrr en dreng­ur­inn var orð­inn tólf ára. Í þætt­inum rifjar hann upp hvernig sam­band þeirra þró­að­ist með árunum og minn­ist föður síns með hlýju.

„Hann var mik­ill ljúf­lingur, vildi öllum vel og sýndi fólki mikla umhyggju. Honum var ekki sama um fólk. Hann var líka mik­ill grínisti og hafði lúmskan húmor.“

Þegar Margrét fædd­ist var bróðir hennar kom­inn á mennta­skóla­aldur. Hann segir að þegar hún var barn hafi hann von­ast til að frekja og yfir­gangur myndu minnka með aldr­inum, en að það hafi verið aug­ljóst að hún stjórn­aði for­eldrum sínum. Hann taldi sig þó ekki í stöðu til að gera athuga­semdir.

„Ég bjó aldrei hjá þeim. Þegar ég kom þá var ég bara sem gestur.“

Gríðarlegt sjokk

Hann lýsir einnig morgn­inum þegar lög­regla hafði sam­band og greindi honum frá því að faðir hans væri á gjör­gæslu og að systir hans hefði verið hand­tekin. Frétt­irnar komu honum algjör­lega í opna skjöldu þar sem hann hafði ekki haft hug­mynd um ofbeldi á heim­il­inu. Enn stærra áfall beið hans þó á spít­al­anum.

„Þetta var mikið sjokk þegar ég labb­aði inn og sá framan í hann. Ég held ég hafi staðið þarna gap­andi örugg­lega í mín­útu. Ég var algjör­lega óund­ir­bú­inn því.“

Hann segir föður sinn hafa verið alvar­lega slas­aðan, bæði í and­liti og á lík­ama.

„Ég var orð­laus. Ég hafði aldrei séð neina ofbeld­is­fulla hegðun frá henni. Frekja og yfir­gangur, já. En ofbeldi? Nei. Þetta kom mér algjör­lega á óvart.“

Finnur fyrir reiði

Í kjöl­farið hafi margar spurn­ingar vaknað, ekki síst þegar í ljós kom að faðir hans og eig­in­kona hans höfðu ítrekað leitað lækn­is­hjálpar vegna áverka. Þrátt fyrir að heil­brigð­is­starfs­fólk hafi farið að gruna heim­il­is­of­beldi voru þau ávallt send aftur heim. Bróð­ir­inn telur að annað hvort lög­reglu eða honum sjálfum hefði átt að vera gert við­vart.

„Af hverju gerði eng­inn neitt?“

Aðspurður seg­ist hann finna fyrir reiði.

„Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta. Að starfs­fólkið sé bundið vilja fórn­ar­lambs­ins til þess að kæra eða grípa til aðgerða. Mér finnst það bara ekki halda vatni. Afleið­ingin er þessi; hann lætur lífið og mamman stórslösuð. Í þessum til­vikum þegar þú ert með svona aldrað fólk sem er hrætt, það kannski gerir sér ekki grein fyrir því hvaða úrræði standa þeim til boða. Þá á ein­hver að koma og reyna að aðstoða þetta fólk, ekki senda það aftur heim til kval­ara síns.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi