Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Anna Kristjáns svikin af íslenskri konu á Tenerife

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það.“

Anna Kristjánsdóttir
Anna Krist­jáns­dóttir Anna situr eftir með skömm­ina Mynd: Trausti Hafsteinsson

Anna Kristjáns­dóttir, vélstjóri og húmoristi, segir farir sínar ekki sléttar gagnvart tveimur íslenskum konum á Los Cristianos á Tenerife, þar sem Anna hefur búið síðustu ár.

Í nýjustu dagbókar­færslu Önnu, sem hún birtir daglega á Facebook, segir hún frá tveimur íslenskum konum sem lýstu yfir miklum áhuga á að taka við leigu á íbúðinni sem Anna hefur dvalið í síðan hún flutti á eyjuna en hún hyggst nú flytja aftur heim til Íslands. Segir hún báðar konurnar hafa búið í litlum íbúðum og að önnur þeirra hafi sótt mikið í að taka við leigu Önnu.

„Eins og alþjóð ætti að vera kunnugt um, er ég að flytja til Íslands í vor og ekki bara það, tvær konur sem búa í nágrenninu voru tilbúnar til að taka yfir leiguna á íbúðinni sem ég bý í. Báðar bjuggu þær í litlum íbúðum með einungis einu svefn­herbergi og með litlum svölum. Önnur þeirra sóttist stíft eftir íbúðinni minni og því óskaði ég þess sérstak­lega við leigu­miðlunina sem og eigandann að hún fengi íbúðina þegar ég héldi til Íslands sem þau samþykktu og tókst mér að ná samkomu­lagi um ásættanlegt leiguverð fyrir hennar hönd.“

Þannig hefst færsla Önnu en því næst segir hún frá því að konan hafi allt í einu hætt við allt saman og eftir standi Anna með skömmina.

„Í gærkvöldi fékk ég skilaboð frá umræddri manneskju sem tjáði mér að hún væri hætt við. Hin konan sem einnig bjó of þröngt í næsta íbúða­kjarna ofan við mig var sömuleiðis hætt við og nú sit ég uppi með skömmina, að hafa aðstoðað Íslendinga um leigu­samning á íbúðinni sem hættu svo við þegar samningurinn var tilbúinn.

Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni