Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heiðrún rifjar upp erfiðan missi systur

„Ég vissi að þetta yrði endir­inn“

Heiðrún rifjar upp erfiðan missi systur
Heiðrún Jóns­dóttir Heiðrún opnar sig um and­lát systur sinnar Mynd: Golli

Heiðrún Emilía Jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í fjár­mála­þjón­ustu, kom fram í við­tala­röð Mannlífs við stjórn­endur um síð­ustu helgi. Hún er lög­maður með fjöl­breytta reynslu og hefur verið fram­kvæmda­stjóri hjá KEA, Símanum og Eimskip á miklum umróta­tímum.

Í við­tal­inu fór hún yfir vítt svið, ræddi um sigra og sorgir og allt þar á milli. Þar ræddi hún meðal ann­ars um það þegar hún missti systur sína úr krabba­meini. Hér má sjá þann kafla við­tals­ins:

Í lok árs 2020 greind­ist elsta systirin, Brynja, með lungna­krabba­mein þá 53 ára gömul og lést hún fjórum mán­uðum síðar. „Hún var versl­un­ar­stjóri Nettó í Grinda­vík, var með mik­inn verk í baki, hélt að hún væri með brjósklos og fór í skoðun. Rannsókn leiddi í ljós að hún væri með lungna­krabba­mein sem hafði dreift sér og voru komin sex æxli í mæn­una. Ég vissi að þetta yrði endir­inn, ann­ars hefði krafta­verk þurft til.“

Brynja veikt­ist á Covid-tím­anum. Heiðrún réð tíma sínum nokkuð sjálf, var vara­for­maður stjórnar Íslands­banka og meðal ann­ars í stjórn Royal Arctic Line á Græn­landi. „Ég gat farið með tölv­una til Brynju, tekið fundi þaðan og setið hjá henni. Brynja bjó í Grinda­vík og á tímum Covid var engin heima­hjúkrun í boði. Annað hvort hefði hún þurft að vera ein heima virku dag­ana eða mað­ur­inn hennar hefði þurft að vera hjá henni.“

Syst­urnarDíana, Heiðrún og Brynja

Heiðrún taldi mik­il­vægt að hann væri ekki allan sól­ar­hring­inn hjá henni og fengi eitt­hvert and­rými. Helga Jóna, dóttir þeirra, bjó líka í Grinda­vík og var mömmu sinni mikil stoð og stytta. „Ég var ákveðin í að styðja hana síð­asta spöl­inn. Ég mætti flesta morgna og var hjá henni þar til um tvö til þrjú á dag­inn þegar dóttir þeirra kom heim. Á þessum tíma voru öfl­ugir jarð­skjálftar í Grinda­vík. Ég átt­aði mig ekki á því fyrr en þetta var yfir­staðið hvað þetta var erfitt. Ég sat hjá henni og hélt henni félags­skap, við ræddum um dag­inn og veg­inn eða bara prjón­uðum í þögn­inni. Hún var stað­ráðin í því að vinna þessa bar­áttu. Ég spurði hana hvar hún vildi vera jörðuð, en hún sagð­ist ekki vera að deyja. Síðar tal­aði hún um að það væri svo skrýtið að bráðum yrði hún ekki til. Ég hafði engin svör við því og við prjón­uðum í þögn­inni.

Þegar hún dó eftir ömur­lega erf­iða bar­áttu fann ég fyrir létt­leika, var fegin hennar vegna að þess­ari hræði­legu bar­áttu væri lokið. Hún dó heima hjá sér með fjöl­skyld­una hjá sér.“

Brynja lést í maí. Um hálfu ári síðar veikt­ist yngri systir Heiðrúnar, Díana, fékk hjarta­bilun að því er virt­ist og fór suður með sjúkra­flugi. Í ljós kom að um var að ræða álag. Svo­kallað „bro­ken heart syndrome“.

Heiðrún seg­ist hafa fengið sjokk þegar hún hélt að yngri systir sín gæti líka verið að deyja. Hún tal­aði á þessum tíma við séra Vigfús Bjarna Alberts­son sem hjálp­aði mikið.

Telur Heiðrún að það sé eitt­hvað hinum megin? Að það taki eitt­hvað við eftir dauð­ann?

„Já, ég hef trú á því að það sé eitt­hvað þarna, hvað svo sem það er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu