Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslensk rannsókn vekur athygli

Bakt­er­íur aðlag­ast plasti á áður óþekktan hátt

Íslensk rannsókn vekur athygli
Radek B. Dudziak Radek rann­sakar plast­brjót­andi bakt­er­íur Mynd: Aðsend

Ný vís­inda­grein eftir Radek B. Dudziak, heil­brigð­is­full­trúa hjá Heil­brigð­is­eft­ir­liti Norð­ur­lands eystra, hefur verið birt í hinu virta alþjóð­lega tíma­riti Fronti­ers in Microbiology. Þar er varpað nýju ljósi á það hvernig örverur bregð­ast við plasti einu stærsta umhverf­is­vanda­máli sam­tím­ans.

Rann­sóknin bein­ist að bakt­eríu sem ein­angruð var úr íslenskum jarð­vegi, Lysinibacillus sp. RBD_002. Í stað þess að ein­blína á hefð­bundið plast­nið­ur­brot með sér­stökum ens­ímum, eins og flestar rann­sóknir gera, skoðar verk­efnið það sem ger­ist áður en slíkt ferli hefst svo­kallað „early-stage“ stig.

„Þetta er í raun fyrsta skrefið í ferl­inu, þegar bakt­er­ían stendur frammi fyrir plasti sem nær eina orku­gjafa og þarf að finna leið til að lifa af,“ segir Radek, sem er 45 ára en hefur búið á Íslandi í 24 ár.

Aðlögun frekar en beint niðurbrot

Nið­ur­stöð­urnar sýna að bakt­er­ían fram­leiðir hugs­an­lega ekki þekkt plast-ætandi ensím, eins og PETasa. Þess í stað fer hún í öfl­ugt aðlög­un­ar­ferli: virkjar streitu­við­brögð, breytir efna­skiptum sínum og byrjar að nýta þau efni sem losna smám saman úr plast­inu.

Raf­einda­smá­sjár­myndir benda jafn­framt til þess að yfir­borð plast­s­ins veik­ist þar sem bakt­er­ían vex, sprungur og smá­breyt­ingar mynd­ast sem gætu auð­veldað frekara nið­ur­brot síðar.

Slíkar rann­sóknir eru enn mjög fáar á heims­vísu, þar sem áhersla hefur hingað til verið á ensím og beint nið­ur­brot. Nið­ur­stöð­urnar benda til þess að skiln­ingur á þessum fyrstu stigum geti verið lyk­il­at­riði í þróun raun­hæfra lausna við plast­mengun.

Samvinna lífvera gæti verið lykillinn

Ein af áhuga­verð­ustu nið­ur­stöð­unum er að bakt­er­ían virð­ist bregð­ast hraðar við en sumar þekktar plast­brjót­andi bakt­er­íur. Þetta bendir til þess að fram­tíð­ar­lausnir kunni að byggj­ast á sam­vinnu mis­mun­andi líf­vera frekar en einni „ofur­bakt­eríu“.

„Það má ímynda sér vist­kerfi þar sem ein teg­und veikjar plastið fyrst, og aðrar taka síðan við og brjóta það lengra niður,“ segir Radek í sam­tali við Mannlíf.

Frá engu til vísinda

Bak­grunnur Radeks sjálfs er ekki síður athygl­is­verður. Hann kom til Íslands árið 2001 frá Póllandi, án þess að hafa lokið form­legri menntun og án þess að tala tungu­málið. Hann tók þá ákvörðun að læra íslensku og mennta sig frá grunni.

Hann lauk fram­halds­skóla í gegnum Háskóla­brú Keilis, síðan BSc-gráðu í heil­brigð­is­líf­tækni og MSc-gráðu í auð­linda­fræði frá Háskól­anum á Akureyri. Í dag starfar hann sem heil­brigð­is­full­trúi sam­hliða áfram­hald­andi rann­sóknum og meist­ara­námi í Stjórnun.

Á meðan á námi stóð gekk fjöl­skylda hans í gegnum erf­iðan tíma þegar dóttir hans var í krabba­meins­með­ferð, reynsla sem hann segir hafa mótað sig bæði per­sónu­lega og fag­lega.

„Það eru fleiri svona sögur“

Radek segir mik­il­vægt að minna á að hans saga sé ekki eins­dæmi í ljósi þess að umræðan um inn­flytj­endur hér á landi hafi und­an­farið verið frekar nei­kvæðar unan­farið.

„Það eru margir sem koma hingað til lands og leggja mikið á sig til að mennta sig og byggja upp líf. Ég er bara einn af þeim. Það væri gott að sjá fleiri slíkar sögur fá pláss,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina