Áhrifavaldurinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir hefur stofnað fyrirtæki en greint er frá þessu í Lögbirtingablaðinu.
Fyrirtækið heitir Heilsusetur Virago ehf. og er Hafdís er þó ekki eini stofnandi þess en Laufey Ó Gísladóttir er með henni í þessu.
Hafdís er framkvæmdastjóri félagsins og fer með prókúruumboð þess en tilgangur félagsins er „heilsuefling“ samkvæmt skráningu.
Hrólfur Þór Valdemarsson er skoðunarmaður félagsins.
Hafdís hefur verið einn af þekktustu áhrifavöldum landsins á undanförnum árum en hún hefur einnig starfað sem einkaþjálfari.


























Athugasemdir