Sósíalistaflokkur Íslands gerir stólpagrín að Ara Edwald, oddviti Miðflokksins í borginni, í nýju myndskeiði sem birt var á samfélagsmiðlunum.
Ari vakti athygli á dögunum þegar hann birti myndband af sér keyra í Austurstræti frá Pósthússtræti að Ingólfstorgi og kvarta yfir bílastæðaleysi.
Í myndskeiðinu bendir Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalista í borginni, Ara réttilega á að um sé að ræða göngugötu sem hann keyrði eftir, sem er lögbrot en síðan sýnir hún honum hversu langt er í bílastæðahús.
„Ari, það má ekki keyra hérna, þetta er göngugata. Sástu ekki skiltið?“ segir Silja Sóley í upphafi myndbandsins. Og heldur áfram:
„En ókei, kannski ertu að crave-a að fara á American og þarft að leggja bílnum þínum einhvers staðar. Kíkjum hvað er langt í næsta bílastæðahús.“
Því næst gengur Silja Sóley eftir Austurstræti og upp að bílastæðahúsinu í Vesturgötu. Oddvitinn tók einnig tímann en alls tók það hana tvær mínútur og 17 sekúndur að ganga að bílastæðahúsinu. Bendir hún að lokum á að tvö önnur bílastæðahús séu í næsta nágrenni.
„Þannig að vonandi gengur þér betur næst að keyra löglega og finna stæði.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir