Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Nathan Lane rifjar upp erfiðasta samtal lífs síns

Stór­leik­ar­inn sagði móður sinni árið 1975 að hann væri sam­kyn­hneigður. Svar hennar særði hann djúpt.

Nathan Lane rifjar upp erfiðasta samtal lífs síns
Nathan Lane Nathan opn­aði sig í við­tali við Howard Stern Mynd: CINDY ORD / GETTY IMAGES VIA AFP

Nathan Lane, einn þekkt­asti sviðs- og kvik­mynda­leik­ari Banda­ríkj­anna, var í við­tali á dög­unum hjá Howard Stern þar sem hann opn­aði sig um per­sónu­leg mál­efni, þar á meðal erf­iða stund þegar hann sagði móður sinni að hann væri sam­kyn­hneigður en það var árið 1975.

Lane seg­ist aldrei munu gleyma þeirri reynslu. „Ég vildi ekki segja henni það, en áður en ég fór höfðum við gengið í gegnum svo margt saman og ég hafði aldrei logið að henni. Þannig að ég sett­ist niður með henni og sagði: „Sjáðu til, ég veit að þú heldur að ég hafi verið að hitta stelpu, en í raun hef ég verið að hitta strák“.“

Hann rifjar upp að móðir hans hafi svarað: „Áttu við að þú sért sam­kyn­hneigður?“

„Ég hafði aldrei heyrt það orðað svona áður,“ sagði Lane.

„Og ég sagði: „Já, ég held það.“ Hún sagði það ekki af illsku eða reiði heldur með ákveð­inni sorg: „Ég vildi frekar að þú værir dáinn“.“

Lane seg­ist hafa brugð­ist snöggt við og svarað: „Ég vissi að þú myndir skilja.“

Leik­ar­inn, sem er 70 ára og meðal ann­ars þekktur fyrir hlut­verk sitt í Only Murders in the Building og Birdcage, segir mik­il­vægt að horfa á við­brögð móður sinnar í sam­hengi við tím­ann. „Þú verður að skilja að þetta var önnur kyn­slóð. Þetta var ekki mann­eskja sem var upp­lýst á þann hátt.“

Hann, sem hefur starfað sem leik­ari frá því snemma á níunda ára­tugnum og hefur hlotið Emmy-verð­laun, segir að þetta sam­tal hafi verið það erf­ið­asta sem hann hafði gert á þeim tíma.

„Mér fannst ég þurfa að gera þetta. Ég þurfti að vera heið­ar­legur við hana,“ sagði hann. „Ég hélt ein­hvern veg­inn að hún myndi skilja, en hún gerði það ekki.“

Viðbrögð innan fjöl­skyld­unnar voru þó ekki öll á sama veg. „Bróðir minn virt­ist ekk­ert kippa sér upp við þetta. Hann sagði bara: „Ég elska þig sama hvað“.“

Lane kom opin­ber­lega út árið 1999 í við­tali við The Advocate, þremur árum eftir að hann vakti mikla athygli fyrir hlut­verk sitt í kvik­mynd­inni The Birdcage, sem Mike Nichols leik­stýrði, ásamt Robin Williams og Gene Hackman.

Hann sagði að ákvörðun hans um að stíga fram hefði meðal ann­ars verið undir áhrifum af örlögum Matthew Shepard, 21 árs manns sem var myrtur fyrir að vera sam­kyn­hneigður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco