Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kolbeinn segir skólahljómsveitir vera eina af grunnstoðum íslensks tónlistarlífs

„Ég elska tón­list“

Kolbeinn segir skólahljómsveitir vera eina af grunnstoðum íslensks tónlistarlífs
Kolbeinn H. Stef­áns­son Er dós­ent í Háskóla Íslands. Mynd: Háskóli Íslands

Kolbeinn H. Stef­áns­son, dós­ent í efna­hags­fé­lags­fræði við Háskóla Íslands, segir skóla­hljóm­sveitir gegna mik­il­vægu hlut­verki í íslensku tón­list­ar­lífi og félags­starfi barna. Þetta kemur fram í pistli sem hann birti á Facebook eftir að hafa starfað sem sjálf­boða­liði á lands­móti skóla­hljóm­sveita um helg­ina.

„Ég elska tón­list. Þung­arokkið er ákveð­inn kjarni fyrir mér en áhugi minn á tón­list er mun víð­ari. Ég hef lengi dáðst að því hvað okkur tekst að halda úti öfl­ugu tón­list­ar­lífi á þessu fámenna skeri sem við búum á. Það er á mun öfl­ugra en við eigum að geta vænst,“ skrifar Kolbeinn í byrjun.

Í pistl­inum lýsir Kolbeinn því hvernig hann hafi varið deg­inum með yngstu þátt­tak­endum móts­ins, svoköll­uðum A-sveitum, þar sem börn víðs vegar að af land­inu komu saman í Kópavogi til æfinga, leikja og tón­leika­halds. Hann segir stemn­ing­una hafa verið afar góða og hrósar því starfi sem unnið er innan skóla­hljóm­sveita lands­ins.

Að sögn hans eru skóla­hljóm­sveitir ein af grunn­stoðum íslensks tón­list­ar­lífs þar sem börn fá tæki­færi til að læra á hljóð­færi án þess að kostn­aður verði for­eldrum ofviða. Hann bendir á að námið sé full­gilt tón­list­ar­nám sem geti leitt til frekara tón­list­ar­náms síðar meir.

Kolbeinn nefnir einnig að fjöl­margir íslenskir tón­list­ar­menn hafi hafið sinn feril í skóla­hljóm­sveitum. Þar læri börn ekki aðeins á hljóð­færi heldur einnig að spila saman í hljóm­sveit og öðlist dýr­mæta félags­lega reynslu.

Dregur úr félagslegri einangrun

Hann segir eigin reynslu af þátt­töku barna sinna í skóla­hljóm­sveitum sýna hversu mikil áhrif starf­semin geti haft, bæði tón­list­ar­lega og félags­lega. Þá bendir hann á að öfl­ugt tóm­stunda­starf geti gegnt mik­il­vægu hlut­verki í að draga úr félags­legri ein­angrun og van­líðan meðal barna og ung­menna.

Í pistl­inum vekur Kolbeinn sér­staka athygli á stöðu skóla­hljóm­sveita í Reykja­vík. Þar starfi fjórar skóla­hljóm­sveitir en biðlistar séu jafn langir og nem­enda­fjöldi þeirra, ef ekki lengri. Hann segir mörg börn kom­ast aldrei að í starf­sem­inni og fari þar með á mis við bæði tón­list­ar­nám og mik­il­vægan félags­skap.

Þarf að efla starfsemina

Að mati Kolbeins er því fullt til­efni fyrir Reykja­vík­ur­borg til að efla starf­semi skóla­hljóm­sveita enn frekar. Hann tekur þó fram að slíkt leysi ekki eitt og sér allan þann vanda sem börn og ung­menni glíma við, en telur tón­list­ar­nám vera mik­il­vægan hluta af fjöl­þættu sam­fé­lags­legu átaki til að styðja við vel­ferð barna.

Kolbeinn segir skóla­hljóm­sveitir jafn­framt vera hag­kvæma leið til að gera tón­list­ar­nám aðgengi­legt fyrir börn af tekju­lægri heim­ilum og þar með stuðla að auknum jöfn­uði í aðgengi að list­námi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu