Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jordan Peterson er illa haldinn af sársauka

„Hann saknar þess að geta ekki lagt orð í belg um sam­fé­lags­mál.“

Jordan Peterson er illa haldinn af sársauka
Tammy og Jordan Hjónin með nýfætt barna­barn sitt Mynd: Instagram-skjáskot

Eig­in­kona Jordan Peterson, Tammy Peterson, segir að hann glími nú við taugaskaða sem hafi haldið honum frá opin­beru lífi und­an­farið.

Peterson, sem er þekktur klínískur sál­fræð­ingur og vin­sæll en umdeildur hlað­varps­stjórn­andi, hefur dregið sig í hlé frá upp­tökum á YouTube-þætti sínum og hlað­varpi, sem hefur vakið spurn­ingar meðal aðdá­enda.

Samkvæmt fjöl­skyldu hans er um að ræða „taugaskaða“ sem rekja megi til notk­unar geð­lyfja á árum áður. Tammy segir að hann sé heima hjá fjöl­skyldu sinni og fái aðstoð, en að morgn­arnir séu honum sér­stak­lega erf­iðir

„Morgn­arnir eru honum gríð­ar­lega sárs­auka­fullir og nið­ur­drep­andi. Síðar um dag­inn finnur hann stundum fyrir ein­hverri bót,“ segir hún.

Peterson tók áður benzódíazepínalyfið Klonopin, meðal ann­ars á tíma­bili þegar eig­in­kona hans greind­ist með nýrna­krabba­mein árið 2019. Þegar hann hætti notkun lyfs­ins fékk hann alvar­leg frá­hvarfsein­kenni.

Að sögn Tammy þró­aði hann með sér sjúk­dóm­inn síð­komin vöðva­ó­eirð (e. tar­dive akathisia), sem er lang­vinn hreyfir­öskun sem veldur mik­illi innri óró­leika­til­finn­ingu og óstöðv­andi þörf til hreyf­ingar. Slíkt getur komið fram sem auka­verkun við að hætta ákveðnum geð­lyfjum.

Hún segir að skað­inn af lyfja­notkun fyrir rúmum sex árum krefj­ist mik­illar þol­in­mæði og umhyggju. Þá gagn­rýnir hún heil­brigð­is­kerfið og telur að það þurfi að taka meiri ábyrgð á áhrifum slíkra lyfja.

Peterson sjálfur hefur áður lýst erf­iðu ferli við að hætta á lyfj­unum, meðal ann­ars í við­tali við Joe Rogan, þar sem hann sagði hafa upp­lifað „ótrú­legan sárs­auka í tvö ár“.

Vinur fjöl­skyld­unnar, Jonathan Pageau, segir að Peterson sé oft yfir­bug­aður af sárs­auka og van­líðan, þó hann geti stundum farið í göngut­úra, unnið að verk­efnum og átt sam­ræður, þó aðeins í stuttan tíma.

Tammy hafnar jafn­framt orðrómi um að Peterson hafi fengið blóð­sýk­ingu vegna stofn­frumu­með­ferðar. Hún segir að hann hafi aldrei fengið slíka með­ferð frá til­teknum lækni og að blóð­sýk­ingin hafi í raun komið upp þegar hann var á gjör­gæslu í Sviss vegna lungna­bólgu.

Hún segir eig­in­mann sinn ekki á leið aftur í sviðs­ljósið á næst­unni, þrátt fyrir að sam­tökin Alliance for Responsi­ble Citizenship, sem hann stofn­aði, hygg­ist halda ráð­stefnu í Lundúnum á næst­unni.

„Hann er ekki far­inn að tala um að fara aftur að vinna,“ sagði Tammy og tók fram að honum „finn­ist hann vera í annarri vídd sárs­auka.“ Bætti hún við að lokum: „Hann saknar þess að geta ekki lagt orð í belg um sam­fé­lags­mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife