Matvælastofnun varar neytendur við framleiðslulotu af Hagkaups kokteilsósu frá Myllunni-Ora vegna þess að sellerí, sem er ofnæmis- og óþolsvaldur, vantar í innihaldslýsingu vörunnar.

Myllan-Ora hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness.
Innköllunin nær eingöngu til Hagkaups kokteilsósu með best fyrir dagsetninguna 4. október 2026 (BF.04.10.2026). Varan er framleidd á Íslandi og hefur verið seld í verslunum Hagkaups.
Matvælastofnun hvetur neytendur sem eru með ofnæmi eða óþol fyrir selleríi til að neyta sósunnar ekki. Þeir eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni í næstu Hagkaupsverslun gegn fullri endurgreiðslu.
Stofnunin tekur fram að innköllunin beinist eingöngu að framangreindri framleiðslulotu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir